| Eyjaskeggjar Ár :1991 |
Eyjaskeggjum yfirleitt
Ekki virðist leiðast neitt
af þeim ljómar brosið breitt
um bjartar ágústnætur.
Þá taka þeir fram tjöldin sín
tambórínur og brennivín.
Peyjar iðka glens og grín
við glettnar Eyjadætur.
Hvort sem er bomsuveður eða blikandi sól,
þeir bara skella niður tjaldi og stól.
Í léttu skapi síðan dansa dátt
við dynjandi hljóðfæra slátt.
Sumir drabba og dandalast
og daðra þar sem ákafast,
upp um brekkur ólátast
og elta á sér skottið.
Aðrir sitja eldinn við,
Amor sér um framhaldið.
Við Eyjaskeggja ástandið
astir geta sprottið.
Í nokkra daga er lifað létt,
lífið tekur gleðisprett,
finnast mörg, við Fjósaklett,
fallin strá í lautum,
er morgunsólin mild og blíð
miðlar yfir dal og hlýð
upplýsingum um atlot þýð
á ástarinnar þrautum.
|
| Lag og texti :Lýður Ægisson |
Sækja
Hægrismella með mús og velja Save Target As
|
| |
| Ásfangin í þér Ár :2006 |
Fyrst kom vetur svo kom vor
Örstutt sumar, aftur haust
Mér fannst ég alltaf vera að stíga í sömu spor
Þegar þú komst inn í líf mitt
sólin gegnum skýin braust
Til að breyta mínu lífi þurfti þor
Margir arka æfiveginn
eins og lest fer um sitt spor
Aðra hristir lífið eins og lítið strá
Sumar yfirgefa alltof snemma æsku sinnar vor
Aðrar aldrei sína draumaprinsa fá
Þegar allt á verri veginn fer
Vindur stendur beint í fang á mér
Get ég alltaf fundið skjól hjá þér
Bros þitt leiðarljós til mín
Við öll leiðindi er ég laus
Ástfangin í þér upp fyrir haus
Þetta sumar bráðum liðið
Aftur kemur haustið svalt
Sumarylurinn er enn í hjarta mér
Og hann hitar mig í vetur
Sama hvað það verður kalt
Hamingjan er stundum þar sem ástin er.
|
| Lag og texti :Magnús Eiríksson |
Sækja
Hægrismella með mús og velja Save Target As
|
| |
| Undurfagra ævintýr Ár :1937 |
Undurfagra ævintýr,
ágústnóttin hljóð
um þig syngur æskan hýr
öll sín bestu ljóð.
Ljósin kvikna,
brennur bál,
bjarma slær á grund.
Enn þá fagnar sér hver sál
sælum endurfund.
Glitrandi vín og víf
veita mér stundarfrið,
hlægjandi ljúfa líf,
ljáðu mér ennþá bið.
Undurfagra ævintýr,
ágústnóttin hljóð
um þig ljómar ljúf og hýr
lífsins töfraglóð.
|
| Lag :Oddgeir Kristjánsson Texti :Árni úr Eyjum |
Sækja
Hægrismella með mús og velja Save Target As
|
| |
| Hátíðarnótt í Herjólfsdal Ár :1939 |
Hátíðarnótt í Herjólfsdal
Hittumst bræður, í Herjólfsdal
Hittumst bræður, í Herjólfsdal
hátíðarkvöld æskan á völd.
Fyllum háreistan fjallasal
fagnaðarsöng nóttin er löng.
Við drekkum glæsta guðaveig,
glaðir tæmum lífsins skál í einum teig.
Vonir rætast við söngvaseið,
sorgir og þraut líða á braut,
Gleðin brosir nú björt heið,
bjargfugla hjal ómar í dal.
Á Fjósakletti brennur bál
böndum ástar tengir nóttin
sál við sál.
|
| Lag :Oddgeir Kristjánsson Texti :Árni úr Eyjum |
Sækja
Hægrismella með mús og velja Save Target As
|
| |
| Lífið er yndislegt Ár :2001 |
Á þessu ferðalagi fylgjumst við að, við eigum
örlítinn vonarneista fyrir hvort annað
í ljósu mánaskini vel ég mér stund og segi
ég myndi klífa hæstu hæðir fyrir þig
ég væri ekkert án þín
myrkrið hverfur því að
lífið er yndislegt, sjáðu,
það er rétt að byrja hér
lífið er yndislegt með þér
blikandi stjörnur skína himninum á
hún svarar
ég trúi varla því sem augu mín sjá
og segir
ég gef þér hjarta mitt þá skilyrðislaust
ég veit að
þú myndir klífa hæstu hæðir fyrir mig
ég væri ekkert án þín
myrkrið hverfur því að
lífið er yndislegt sjáðu
það er rétt að byrja hér
lífið er yndislegt með þér
lífið er yndislegt sjáðu
það er rétt að byrja hér
lífið er yndislegt með þér
nóttin hún færist nær
hér við eigum að vera
núna ekkert okkur stöðvar fær
undir stjörnusalnum inní Herjólfsdalnum
lífið er yndislegt sjáðu
það er rétt að byrja hér
lífið er yndislegt með þér
lífið er yndislegt sjáðu
það er rétt að byrja hér
lífið er yndislegt með þér
lífið er yndislegt ó lífið er yndislegt
lífið er yndislegt sjáðu
það er rétt að byrja hér
lífið er yndislegt með þér
lífið er yndislegt með þér…..
|
| Lag :Hreimur og co Texti :Hreimur og co |
Sækja
Hægrismella með mús og velja Save Target As
|
| |