Longtæmnósí....! Já komiðið sæl og blessuð.....nú hefur margt og mikið gerst síðan síðast. Þar á meðal páskaferð til Eyja, sem heppnaðist einkar vel. Ófeigur bróðir átti ammali þá helgi og ég veit ekki hvað. Þá var sundmót ekki alls fyrir löngu hjá Íþróttafélaginu Ægir og gekk þeim bara þokkalega vel á því móti. Svo var sl. helgi hladið hið árlega íslandsmót í Boccia.....MAGNAÐ =)
Myndir frá mótunum má finna hér
Íslandsmótið í Boccia 2008 Ægir mætti með 3 lið í ár og gekk liðunum misjafnlega vel. A liðið stóð sigg einna best en þau kepptu í afar sterkum riðli í 1. deild. Liðið er skipað þeim Ólafi Jónssyni, Guðna Davíð Stefánssyni og Ylfu Óladóttur. Liðið vann 2 leiki af 4, sem verður að teljast gott miðað við riðilinn sem þau lenntu í. Sem dæmi vannst sigur, í bráðabana þó, gegn liði sem hafði m.a. íslandsmeistara í einstaklingskeppni í Boccia og því ógnar sterkt lið þar á ferð. En af öllum ólöstuðum var það Ólafur Jónsson sem spilaði eins og herforingi. En liðið var reyndar allt að spila vel ;-)
Svo var þetta náttlega allt toppað með svakalegu lokahófi á sunnudeginum en í ár var það hinn eini sanni Páll Óskar sem hélt uppi stemmningu og gerði það einkar vel. Það sem magnaðast var þó, var að hann gaf án efa öllum í húsinu eiginhandaráritun og ekki var fátt um fólk á svæðinu ! Það eru held ég ekki allir sem mundu gera þetta ! Eða það held ég =)
Allavega hefur þetta staðið uppúr síðustu dagana og þá er meira spennandi framundan =)
|