Kominn aftur….!
Jamm það er kominn tími á mig að blogga núna en maður er búinn að vera agalega upptekinn síðustu daga og vikur. Það má eiginlega segja að maður sé rétt að skríða saman eftir verslunarmannahelgina…..hlýtur að koma að því þar sem það er komin enn ein helgin
Þjóðhátíðin Úff, það má segja að Þjóðhátíðin 2007 hafi verið með þeim betri þ.e. hvað varðar veður, dagskrá, stemmingu, mætingu og skemmtilegheit. Veðrið var í tvísýnu framan af vikunni og gæti ég best trúað að margir hverjir hafi beðið fram á síðustu stundu að ákveða hvert skyldi halda þessa verslunarmannahelgi. Í mínum huga var það aldrei spurning þar sem maður hefur í raun ekki farið annað sl. 25 ár eða svo. Í ár var mætt á miðvikudegi til Eyja og nokkurn veginn farið beint í framkvæmdir þar sem verið var að skipta um þak á húskofanum hjá mútter. En það var löngu kominn tími á að það yrði gert þar sem farið var að leka niður á kerluna inni !? En það var engu að síður búið að tala við iðnaðarmenn í Eyjum nokkrum sinnum sl. 3 ár en enginn af þeim sá sér þann sóma í að mæta ! Ojjjjj sé þessum mönnum en þeir vita það best sjálfir hverjir þeir eru og vonandi fá þeir í það minnsta hiksta þegar ég dissa þá hérna En já svo var þetta líka fína skrall alla helgina og það í fínu veðri. Við vorum reyndar ekki með neitt tjald sjálf þetta árið en það hefur sitt að segja. Reyndar fengum við inni hjá Jónatani frænda og Lóu minni sem var æði en það er samt leiðinlegt að vera inni á öðrum, fólk hefur yfirleitt nóg með sitt. En við erum þeim engu að síður afar þakklát fyrir að hafa okkur ;-) Já helgin kom sem sagt vel út og eftir hana var farið í að mála húskofann hjá múttu og er hann alveg prýðisfallegur í dag……held bara krúttlegasta húsið á Faxastígnum.
Nýr sími Ég er loksins búinn að fá mér nýjan síma enda kominn tími á þann gamla. Ég fékk mér HTC S710 sem ég held að sé vel þess verður til að leysa gamla flugfreyju símann af hólmi =) En þetta er svokallaður snjallsími en hann keyrir á Windows Mobile 6 stýrikerfinu. Þarna er hægt að taka við tölvupósti, fara á MSN, skoða vefsíður o.s.frv. Þetta er heilmikil græja og maður verður án efa smá tíma að læra á þetta. En nánari upplýsingar um símann má finna hér.

Framundan Já það er sko margt framundan, komin helgi núna þar sem mikið er um að vera s.s. fyrsta umferð í enska boltanum og svona. Þá eru nokkur afmæli framundan eins og Guðrún Dís (frænka Þóreyjar), Selma Ragnars frænka, Ómar frændi og Selma Hrönn. Svo er ég nú sjálfur í næsta mánuði ;-) Já og Tanni mánuði seinna…..en Tanni og Ómar verða loksins komnir í heldrimanna tölu þar sem þeir ná þeim merka áfanga að verða 30 ára !!!! Bara komnir á fertugsaldurinn =)
En annars þá ætlar maður að taka djamminu með ró og reyna æfa vel og borða rétt, en maður er jú búinn að drekka áfengi held ég fyrir næstu 3 mánuði =)
En jæja nóg í bili……góða helgi !
|