|
.:Lýðs:. !
| fimmtudagurinn 23. febrúar 2006 |
Stundum verður allt sem ég stend fyrir niður að falla ! Já það er málið.....ég fékk á mig ámæli fyrir það sem ég skrifa þ.e. að ég þyki víst ekki hafa nægilega mikla fjölbreytni í þessum skrifum mínum....en fótbolti og tölvur eru víst ekki fyrir alla ! En ég lofaði Lóu vinkonu minni að ég mundi hafa eitthvað sem höfðar kannski meira til hennar......vona að þetta sé það ;-)
Hvað er bikinívax ? Þegar hár eru fjarlægð af viðkvæmum svæðum líkamans, hvort sem er að framan verðu eða aftan. Þessi aðferð, að fjarlægja óæskileg hár, er að verða sífellt vinsælli með hverju árinu. Í þessari “aðgerð” eru nær öll hár fjarlægð fyrir utan lítið svæði á munaðarhól kvenmannsins. Sumar konur vilja hins vegar fjarlægja öll hárin en þá er einnig tekið af óæðri endanum. Vinsælasta tegundin er Brazillian wax og verður fjallað um það hér.
Afhverju bikinívax ? Mörgum konum finnst þessi aðferð einkar hentug ef t.d. hugað er að sólarstrandarferð og hugsanlegt að sundföt verði mikið notuð. Öðrum finnst þessi aðferð henta vel við efnislítil undirföt. Einnig þykir sársaukinn lítill í samanburði við þann unað sem sum pör upplifa vegna þessa kynæsandi “klippingar”. Hér má hver og einn ímynda sér hvað hann vill útfrá þessum upplýsingum ;-)
Fæ ég að klæðast einhverju á meðan þessu stendur ? Að öllum líkindum færðu að vera í einhverri spjör þó líklegast g-streng. Þegar hins vegar Brazillian wax er framkvæmt er ekki vænst til að nokkur spjör hylji líkamann.
Hvernig er Brazillian wax ? Fyrst er byrjað að snyrta hárin með skærum, því næst eru tekin lítil svæði í einu með hinu hefðbundna heita vaxi. Vaxið er sett á lítin blett, strimillinn er svo settur á vaxið og kyppt snöggt af. Því næst er vaxið þurrkað af. Þau hár sem eftir sitja eru tekin með töng. Þessi aðferð er talin vera sú besta sem völ er á í bransanum vegna þess hve vel hún virkar.
Tekur þetta langan tíma ? Það er misjafnt eftir þeim sem framkvæmir, oftast á bilinu 15 – 20 mínútur.
Þarf maður að vera í einhverri skrýtinni stellingu á meðan ? Að liggja á bakinu með fætur útrétta má telja sem skrýtna stellingu. En einnig má gera ráð fyrir að þú þurfir að fara á fjóra fætur við þetta.
Er þetta vont ? Já það er vont en það venst þ.e. því oftar sem þetta er gert þeim mun auðveldara verður þetta.
En ég tek kannski eitthvað meira skemmtilegt fyrir næst....Lóa þetta var fyrir þig ;-)
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 23. febrúar 2006 kl.: 00:15
Athugasemdir
(25)
|
|
|
| þriðjudagurinn 21. febrúar 2006 |
Ljótt er það Já það má með sanni segja að íþróttir eru langt frá því að vera hættulausar.....næstum sama hvaða íþrótt það er.....kannski ekki bridge eða skák (nema sinaskeiðabólga teljist með :-) og þar eru boltaíþróttir ekki undanskyldar ! Það var t.d. eitthvað í loftinu í heimi knattspyrnunnar um helgina því tveir leikmenn, bæði á Englandi og Ítalíu, fótbrotnuðu illa um helgina í leik með sínum félagsliðum. Þetta voru Alan SMith hjá Man Utd og Fransesco Totti hjá Parma. Brotiin voru víst keimlík þó það hafi verið öllu verra hjá Smith sem líklega verður frá keppni í einhverja 8 - 9 mánuði :-/ Sussi bussi....það er víst ekki alltaf tekið út með sældinni að vera knattspyrnumaður !

Eins og sjá má er þetta heldur ljótt svona í nærmynd og hefur mar enga öfund af að vera Alan Smith þessa dagana. En o well ég er farinn á fótboltaæfingu =)
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 21. febrúar 2006 kl.: 22:26
Athugasemdir
(7)
|
|
|
| mánudagurinn 20. febrúar 2006 |
Nóg um að vera ! Já það er á hreinu að það er nóg um að vera þessa dagana.....helgin var fín.....heldur í rólegri kantinum....mar var ekkert að skvetta í sig þar sem mar er að fara í próf núna á morgun sko ;-) Jamms það er sko Viðskiptalögfræði á morgun.....hmmm......well.....það hlýtur að reddast =) En svo verður að minnast á Júróvisíón en þetta fór eins og mar átti von á.....þ.e. Silvíja Nótt tók þetta....verður gaman að sjá hvernig það kemur út í Aþenu ! Fylgjumst með því bara ;-) Hauu já svo var það Steini bróðir og familíja......en þau voru að fá sér hvolp mar........usss magnað flottur mar.....eins og sjá má =)

Familíjan hjá þeim er alltaf að stækka.....nú eru þau orðin 7 þarna í Þorlákshöfninni......já og ekki má gleyma frændum mínum tveim á Eskifirði sem eru hluti af þessu batteríji líka, þeir Andrés og Ásbjörn......massa familíja.......og já Ásbjörn.....við þurfum að setja mynd af þér hérna á síðuna.....græjum það næst þegar þú kemur í bæjinn ;-) Þau eru svo með heimasíðu hér......endilega kíkið á hana.
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 20. febrúar 2006 kl.: 21:09
Athugasemdir
(17)
|
|
|
| föstudagurinn 17. febrúar 2006 |
Enginn er óhultur !
Jamm það er ljóst að enginn er óhultur.....en nú er það nýjasta í heimi tækninnar að það sé kominn tölvuormur sem herjar á Apple tölvur. Þetta ætti í sjálfu sér ekki að vera frásögum færandi nema það að eitt af því sem að fólk setur sem kost við Apple tölvur, þegar það er að kaupa þær, er að það séu engir vírusar ! En nú er það ljóst að svo sé ekki.......en skv. nýjustu fregnum er kominn vírus sem herjar á Apple........skoðið frétt um málið hér.
Ég ætla bara að segja fyrir mitt leiti að þá eru til vírusvarnir fyiri Windows stýrikerfin sem virka bara þræl vel og ég lendi örsjaldan í vandræðum með þetta.....þá er spurningin þessi núna.....hvernig er með vírusvarnir fyrir Apple ? Hmm ekki veit ég af neinni ! En ég er á því að þetta sé kannski frekar BIN villa (bilun í notanda :-) þ.e. að eigendur tölva eru einfaldlega ekki nógu vel vakandi í þessum málum og því fer sem fer. Reyndar er ekki hægt að alhæfa í þessum málum en það er oft einnig vankunnátta sem á sinn hlut að máli. En allavega.....ég segi bara Áfram Windows =)
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 17. febrúar 2006 kl.: 14:05
Athugasemdir
(37)
|
|
|
| fimmtudagurinn 16. febrúar 2006 |
Jæja.....þá er að styttast í Söngvakeppni Sjónvarpsins....en já hún er á laugardaginn ! Hmmm mar attlar að sjálfsögðu að horfa á þetta enda ekki annað hægt. Það verður gaman að sjá hvernig þetta endar.....undankeppnin hefur ekki verið eins skemmtileg í árabil og þó nokkuð um fín lög þarna. Mér finnst t.d. lögin Mér við hlið sem Regína Ósk flytur, Andvaka sem Guðrún Árný flytur sem og hið magnaða lag sem Silvíja Nótt er með......hehehe.....þetta er flott lag og ég yrði ekki svekktur ef hún yrði send út ! Það er alveg kominn tími að reyna eitthvað svona atriði.......einhver var að benda á að þegar Páll Óskar fór fyrir okkar hönd þá hafi hneykslan og forvitnin átt að færa okkur stig en mér finnst lagið sem Silvíja er með flottara =) Hún er fín söngkona og helvíti flott bara ;-) Þannig að það væri gaman að sjá hana fara út til Grikklands.
En svona til að hita upp fyrir helgina þá er hérna textinn að laginu hennar Silvíju og um að gera að söngla með á laugardaginn þegar pæjan stígur á stokk ;-)
Okei!
Hey þú, ógeðslega töff, ég er að tala við þig Ég er Silvía Night shining in the light Ég veit þú þráir mig
Born in Reykjavík, hæfileikarík ekkert landsbyggðarfrík Ég veit ég vinn fokkins úrslitin, öll hin lögin hafa tapað
Til hamingju ísland með að ég fæddist hér Ég er Silvía Nótt og þið haldið með mér, Eurovision nation fær sko flog er ég kem ég er fædd til að vinn'etta, tremma í hel!
*Töff töff töff*
Mitt lag, ógeðslega töff ekkert nineties ógeð Það er töff, ókey, það er ekkert gay ég er komin hér to stay
Og hinar tíkurnar eru bólugrafnar en ég er hrein-mey Þið elskið mig, þið dýrkið mig en samt eitthvað svo glatað
Til hamingju ísland með að ég fæddist hér Ég er Silvía Nótt og þið haldið með mér Eurovision nation fær sko flog er ég kem ég er fædd til að vinn'etta, tremma í hel!
*Je je je!*
Ísland, Til hamingju Ísland, Til hamingju Ísland,Til hamingju Ísland, Til hamingju Ísland, Til hamingju Ísland, Til hamingju Ísland, Til hamingju Ísland.
Ring ring ring
Ring ring ring
Ring ring ring
Ring ring ring
Til hamingju ísland með að ég fæddist hér Ég er Silvía Nótt og þið haldið með mér Eurovision nation fær sko flog er ég kem ég fer til að vinn'etta, tremma í hel!
Til hamingju ísland með að ég fæddist hér Ég er Silvía Nótt og þið haldið með mér Eurovision nation ég fer fyrir þig Rústa þessu dæmi fæ tremma-verð stig
*Töff töff töff*
Góða skemmtun allir á laugardaginn ;-)
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 16. febrúar 2006 kl.: 13:48
Athugasemdir
(18)
|
|
|
| mánudagurinn 13. febrúar 2006 |
Mamma þín er kona !
Amm það er alveg ljóst........maður lifandi skal það heita heillin.......nú fer að styttast í þessu mar.....nú þarf mar að fara finna sér en arbejde fyrir framtíðina.....amm....mar verður víst ekki skólanörd það sem eftir er =) En það væri samt ekki leiðinlegt......skóli er alveg fine.......reyndar ekki hvað varðar pjénsa........en það er önnur saga ;-)
En já mar er meira að segja farinn að spá í það hvert á að fara í sumar.....hehe.....en við erum að spá í að fara til Svíþjóðar......heimsækja Jóhann og Önnu.....ohhhh hlakkar alveg til.....ég hef aldrei komið til Sverige ! Ussss svo er ég kominn með eina flugu á bak við annað eyrað.......en það er ef Ívar Ingimars og co komast upp í ensku úrvalsdeildina í vor....sem er mjöööööög líklegt að gerist.....þá langar mig að fara í haust og sjá þá spila.......t.d. á móti Man Utd eða eikkað........ussssi.....það væri snilld.....well ég allavega læt mig dreyma =)
En o well.....ég er farinn að ÉTA =) l8er !
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 13. febrúar 2006 kl.: 18:54
Athugasemdir
(46)
|
|
|
| fimmtudagurinn 9. febrúar 2006 |
Well o well......nú er mar að fara koma sér aftur í gang.....jamm mar er hreinlega búinn að vera latur þessa dagana......en nú er lag og kjellinn er að fara af stað aftur í ræktina =) Hver kannast ekki við þetta væl þ.e. að vera að fara af stað en ekkert gerist !? En eins og ég segi þá erum við Leiknir að fara ar stað og nú skal tekið á því ;-) Það þarf víst ekki að taka það fram að okkar vettvangur verður Technosport í Hafnarfirði.......snilldar æfingastöð.....þar er allt til fyrirmyndar......en það Leiknir, Tinna og Inga Steina eiga heiðurinn að þessu ;-)
Þannig að það var ekki annað hægt en að uppfæra RUMAPLANIÐ góða........en það er skedjúlið okkar fyrir næstu mánuði ;-)
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 9. febrúar 2006 kl.: 09:11
Athugasemdir
(6)
|
|
|
| fimmtudagurinn 9. febrúar 2006 |
Úúúúííí.....nú er lag......er að taka tvo heiðurs drengi með mér í ræktina og attla að koma þeim af stað.....þetta eru þeir Daníel Moon og Peter McHutchinson ! Uss þetta verður stemmarinn eini =)
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 9. febrúar 2006 kl.: 00:16
Athugasemdir
(5)
|
|
|
| miðvikudagurinn 22. júní 2005 |
Well.....það er búið að vera margt í gangi undanfarna daga......mar fór í bústað um helgina með tengdó......það var svona líka helví** næs......reyndar hefði mátt vera aðeins betra veður......en hvað um það.
Núna er bara að huga að næstu skemmtun......en það er að sjálfsögðu þjóðhátíðin en hún verður helgina 29, 30 og 31 júlí.......usss mar.....það er nú orðið ljóst að það verður endurkoma hjá Mafíu Vestmannaeyja og eru menn að undirbúa þessa endurkomu á fullu ;-) Þetta verður snilldin Einar.......ég kem með fréttir svona við og við um hvernig það gengur allt saman ;-)
En það er spurning að kanna á eyjunni fögru í suðri, hvernig gangi að undirbúa hátíðina miklu.....hmmmmm best að tjékka á því......já og borga farið til Eyja =)
ps. hér er ein flott auglýsing......nauðsynlegt að hafa hljóð ;-)
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 22. júní 2005 kl.: 16:27
Athugasemdir
(216)
|
|
|
| fimmtudagurinn 16. júní 2005 |
Hmmmmmmmmmmmmmmm.........ég er var víst eikkað í ruglinu með þetta 10 ára ammali mar :-/ Það eru víst 10 ár liðin í ár frá stofnun Mafíu Vestmannaeyja ! Usssi bussi......það er svo sem ekkert verra.......þá er eins gott að mar komist á þjóðarann =) Reyndar er fátt sem bendir til þess að mar komist ekki ;-) Þannig að þetta verður stemmning !
En annars er mar að fara í bústað um helgina......hann er einhversstaðar í grend við Bifröst (hvar svo sem það er :-) En þetta er víst í Borgarfirði......mar hlýtur að ramba á þetta =) Þannig að mar bloggar víst ekkert aftur fyrr en eftir tæpa viku.......well farið hefur fé betra..........!
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 16. júní 2005 kl.: 10:54
Athugasemdir
(7)
|
|
|
| mánudagurinn 13 júní 2005 |
Helgin góða helgin.......það var frekar rólegt um þessa helgina.....var með múttu í heimsókn og svona.....það var farið í kolarann og svolleiðis ;-) Svo mættu audda bræður mínir á svæðið líka......þannig að þetta var massa fínt mar......!
Ég var einmitt að fá póst frá blóðbræðrum mínum úr Mafíu Vesmannaeyja rétt í þessu......það eru víst 10 ár frá stofnun félagsins á næsta ári.....usssi það verður eikkað gert á næsta ári þá ! Þetta verður massíft
Hér er svo linkur á gömlu síðuna ;-)
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 13. júní 2005 kl.: 09:40
Athugasemdir
(2)
|
|
|
| fimmtudagurinn 9. júní 2005 |
Fiiiiiiiiimtudagur ! Ekki verra að það´sé að koma helgi......eina ferðina enn.......hmmmm......hvað skal gera þessa helgina ?? Er reyndar að vefsmíðast eikkað en svo kannski skellir mar einhverju á grillið og svona ;-) Fær sér kannski einn kaldann !
Það má samt segja að mar sé ekki alveg enn kominn yfir Maiden tónleikana........mmmmm.....þeir voru svakalegir =) Hér eru einhverjar myndir frá þeim !!! Tjékk it át ;-)
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 9. júní 2005 kl.: 13:06
Athugasemdir
(8)
|
|
|
| Eftir Maiden dagurinn ! |
Mikið helv**i voru mínir menn í Iron Maiden þéttir........usssss.....þeir fóru hreinlega á kostum......og ekki skemmdi sviðið og sviðsframkoman fyrir..........úffffffff þeir kunna þetta enn =) Reyndar hefur víst illa gengið að fá leyfi fyrir einhverjum eld, flugeldum eða svolleiðis en það var óspart notað í gær ;-) Snilldin Einar........

Það voru bara tekin lög af fyrstu 4 plötunum á þessum tónleikum......Iron Maiden......Killers......Number of the beast og Peace of mind.......en það var ekkert verra mar.......þarna voru tekin lög eins og Sanctuary, Number of the beast, The trooper, Running Free, Run to the hills og fleiri........ussss mar ! Ég þarf reyndar að komast yfir lagalistann við tækifæri......man þetta ekki alveg allt.......mar er samt alveg sáttur !
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 8. júní 2005 kl.: 11:16
Athugasemdir
(0)
|
|
|
| mánudagurinn 6 júní 2005 |
Úúúúú.........mar er svona rétt að skríða saman eftir góða helgi......var alveg hauslaus á fös.....það var óvissuferð í vinnunni =) Well þetta var svo sem ágætt ;-)
Svo fór mar á tónleika í Hafnarfirðinum á lau......það voru t.d. Búdrýgindi ( snillingar !! ), Hildur Vala, Selma Björns og svo Botnleðja........maður lifandi.....þeir klikka aldrei !?!?!? Mar tók nokkrar myndir.......hendi þeim líklega inn við tækifæri ;-)
En það má ekki gleyma því að á morgun eru tónleikar ársins á Íslandi !!!! Það eru audda heiðursmennirnir í Iron Maiden sem eru að koma og ætla að rokka yfir hausamótunum á okkur ! Ussss mar......ég á ekki von á að þeir verði síðri en árið 92 eða þegar þeir komu hingað síðast......mar missti audda ekki af þeim þá heldur ;-) Usssssssssssssssss hlakka ekki lítið til mar.....!
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 6. júní 2005 kl.: 14:10
Athugasemdir
(0)
|
|
|
| þriðjudagurinn 30. maí 2005 |
Well......við skötuhjú vorum í gistingu í Hveragerði á aðfaranótt sunnudagsins á gistiheimili sem heitir Frost & Funi......snilldar gisting og umhverfið er magnað.......tjékkið á myndunum ;-)
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 31. maí 2005 kl.: 23:13
Athugasemdir
(8)
|
|
|
| þriðjudagurinn 30. maí 2005 |
Well......nú er mar allur að koma til mar......það er búið að slaka vel á eftir skóla törnina og mar er að komast í gang aftur ;-) Það er margt um að vera þessa dagana......ég er að fara í óvissuferð á föstudaginn........úffff þetta verður einhver stemmningin =) Þetta er ferð með vinnunni minni (VÍS) og það er Tölvudeildin sem er með skemmtinefndina þetta árið......þannig að ég og Binni vinnufélagi minn vorum sendir í að selja miða í óvissuferðina.......hehe....við fórum í hermannagalla og vorum með allan painball gírinn sem hugsast getur og hlupum um allt fyrirtækið =) Hehe þetta var snilld.....liðið var alveg að trúa því að það væri verið að fara í paintball.......en þó ég viti ekki allt um þetta þá verður það allavega ekki paintball =)
En þetta verður án efa snilldin Einar......hlakka ekki lítið til =)
Hehehe var að finna þetta á vefnum =) Fretandi nunnur......djöfull held ég að amma mín mundi hlæja að þessu =)
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 31. maí 2005 kl.: 22:26
Athugasemdir
(9)
|
|
|
| föstudagurinn 27. maí 2005 |
Jibbí skibbí.....þá er mar loksins kominn í sumarfrí.....og þá verður eikkað almennilegt gert.....allavega fer mar í húsdýragarðinn :-| Eða kannski ekki =)
Magnað.....var að skoða hinn annars magnaða vef eyjar.net en þar var svoldið flott frétt.....en þessi ungi Eyjamaður var valinn í U84 landsliðið =) hehe skondið......hefði haldið að þetta ætti að vera U21 árs.......kannksi er bara komið lið fyrir eldri borgara ;-)

En mar er allavega að fara til Hveragerðis á morgun.....en við skötuhjú ætlum að gista á Frost og funa en það er svoldið flottur staður og mikil og falleg náttúra þarna í kring.......þannig að það verður afslöppun bara......en já svo á Þórey ammali á sunnudagiinn en mín kona verður 26 ára ;-) Komum meira að því seinna......!
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 27. maí 2005 kl.: 11:02
Athugasemdir
(6)
|
|
|
| þriðjudagurinn 24. maí 2005 |
Hmmmmmmmmmmmmmmmm.........lífið er yndislegt.......jamms....það er að styttast í þjóðhátíð......ekki nema 65 dagar !!! En mar er audda búinn að bóka ferð til og frá Eyjum......og einnig er frágengið með gistingu og svona......þannig að þetta getur varla klikkað.......7.....9....13 ;-) Það er víst búið að ráða öll helstu böndin sem eiga að vera í ár á stóra sviðinu......skylst að það verðr Skímó og í svörtum fötum.......svo verður eikkað af minni spámönnum þarna.......kemur allt í ljós ;-) En annars er hægt að fylgjast grannt með því sem er að gerast á síðunni Dalurinn.is......snilldar síða.....tjékkið á henni !
Well.......sumarið er tíminn =)
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 24. maí 2005 kl.: 14:56
Athugasemdir
(3)
|
|
|
| fimmtudagurinn 19. maí 2005 |
Úfff....það var nú lítið varið í undankeppni Júróvision......okkar lag komst ekki einu sinni áfram.....well það er víst lítið við því að gera......þá getur mar líka gert eikkað annað bara á laugardagskvöld =)
En snilldin Einar.......var að fá helvíti gott vídjó í hendurnar......tjékkið á því =) Mögnunin...!
ps. mar þarf víst Quicktime player fyrir þetta ;-)
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 19. maí 2005 kl.: 23:05
Athugasemdir
(2)
|
|
|
| þriðjudagurinn 17. maí 2005 |
Vúúúúhúúú.....þá er búið að loka verkefninu......ussi bussi það er loksins búið að útskrifa þetta blessaða Bsc verkefni okkar félaganna......þannig að þriggja mánaða vinnu er loksins lokið ;-) Við fáum svo einkun á föstudaginn.....eða svo var sagt í morgun......við vorum sem sagt með lokasýningu á verkefninu í morgun.....þetta var að sjálfsögðu opin kynning....þannig að þú hefðir alveg getað komið ;-) En það var sem betur fer fámennt en þó góðmennt....þannig að þetta heppnaðist bara nokkuð vel !
Já mar.....svo vorum við skötuhjúin í bústað um helgina og var massa fjör í kringum það mar....það var farið á fjórhjól og allt mar......þetta var audda tær snilld.......hendi kannski einhverjum myndum af þessu á síðuna við tækifæri........well best að halda áfram lífinu =)
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 17. maí 2005 kl.: 20:32
Athugasemdir
(5)
|
|
|
|
|