| Hver er ég? | Bloggið | Myndir | Vísuhornið | Ýmislegt |
.:Lýðs:. !

þriðjudagurinn 25. apríl 2006
Hvað er um að vera ?
Alú alú.....akkúrat er bara ekkert að gera....nú er mar búinn í prófum, lofi sér guð og sé hann þér náðugur, en ég er engu að síður á 3ja vikna námskeiði ;-) En nóg af því !

Helgin var engu að síður góð og tjillað var út í æstu æsar á laugardaginn......fór að hitta vini mína og við smelltum okkur að borða á Red chilli. Þrátt fyrir langan afgreiðslutíma þá var þetta bara fínasti matur ;-) Það má alveg skí*a þessu =) Eftir mat var svo farið í heimahús og spjallað og þannig......rólegt bara.....það var kannski ekki að sjá að mar hafi verið að klára próf......hehe.....hlýt að vera að eldast =)

En eins og ég segi þá er svo sem rólegt um að vera.....mar á að vera að læra eins og ég veit ekki hvað en eftir svona próftörn tekur smá tíma að komast aftur í gang......þetta kemur ;-) En kannski mar taki bara törn um helgina í þetta ! En well.....ég ætla allavega fara þykjast vera gera eikkað.

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 25. apríl 2006 kl.: 17:50 Athugasemdir (16)

laugardagurinn 22. apríl 2006
Þetta er að klárast !
Amms málið er svo einfalt.....núna er ég að verða búinn með prófin í bili.....síðasta prófið er í fyrramálið (þetta er skrifað aðfaranótt laugardags ;-) kl 9 og ég er að pakka saman og halda í koju. Ég var í stæ prófi í dag og ég vona að ég hafi náð því kvikyndi.....er ekkert sérstaklega sterkur í stæ.....Óli Týr var svo slakur kennari......hehehe.....nei nei, þetta segir meira um mig en nokkurn annan ;-) Ég held bara að ef mar hefði meiri áhuga á stæ þá væri þetta annað....reyndar var ég að læra nýja hluti í þessu bara rétt fyrir próf ;-) En síðasta prófið er sko í verkefnastjórnun og vonandi að mar nái að massa það !

En allavega....helgin er framundan og það verður aldeilis tjillað......ætla mér að hitta á fólkið sem mér þykir vænt um á morgun þ.e. Lóu og Tanna (já og Kammillu og Emmu ;-) og bara taka því rólega ! En allavega....hafið það bara sem best þið sjálf um helgina ;-)

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 22. apríl 2006 kl.: 00:16 Athugasemdir (8)

Miðvikudagurinn 19. apríl 2006
Upphitunar og skemmtikvöld ÍBV PART II
Well það er allt að verða klárt fyrir þetta magnaða upphitunar og skemmtikvöld meistaraflokks ÍBV í knattspyrnu.....dagskráin er að taka á sig mynd og nú þegar er það ljóst að þarna verður m.a. uppistand með Svenna Waage í broddi fylkingar, Svala dj kemur til með að þeyta skífum og Páll Magnússon, útvarpsstjóri með meiru, mun sjá um að opna þessa skemmtun ;-) Svo verður ÍBV liðið þarna ásamt þjálfaranum og verða m.a. kynntir nýir búningar liðsins og fleira !

Nú þegar eru seldir 60 miðar af 180 (reyndar eru þessar tölur síðan í gær ;-) þannig að nú fer hver að verða síðastur........um að gera að skella sér á þetta og hitta á liðið og svo auðvitað Eyjamenn yfir höfuð =) Það skal tekið fram að þetta er ekki herrakvöld og því eru stelpurnar kvattar til að mæta líka ;-)

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 19. apríl 2006 kl.: 10:04 Athugasemdir (6)

Annar í páskum 2006
Upphitunar og skemmtikvöld ÍBV
Jamms.....nú fer að styttast í að knattspyrnuvertíðin fari af stað og er áætlað að hafa upphitun fyrir tímabilið á föstudaginn n.k. (21. apríl) En það verður víst mögnuð dagskrá þarna og ef mæting verður góð þá verður stemmingin engu lík......ég meina ef einhverjir kunna að skemmta sér þá eru það Eyjamenn ;-) Það er alveg ljóst !



Hér má svo finna auglýsinguna fyrir þetta ;-)
Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 17. apríl 2006 kl.: 00:46 Athugasemdir (32)

föstudagurinn langi 2006
Já langur er hann heillin
Well páskar eru víst á næsta leiti....uuu ég er að fara að borra inn í Sandgerði....þannig að bara gleðilega páska ;-)



Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 14. apríl 2006 kl.: 13:41 Athugasemdir (6)

þriðjudagurinn 11. apríl 2006
Allt í blússi
Já það má með sanni segja.....nú er mar kominn í páska "frí" en það er ekki próf fyrr en 21. apríl næst.....engu að síður er mar ekkert að slaka á.....mar má ekkert við því =) En ég er nú þegar búinn með 3 próf. Þetta hefur gengið nokkuð vel....að ég held....og þetta er bara að klárast hjá manni ;-)

En það verður nóg um að vera næstu daga hjá mér....frændur mínir tveir voru að koma í bæinn.....þeir Ásbjörn og Andrés Þorsteinssynir og ætla ég að kíkja á þá á morgun....hlakka ekki lítið til =)

Svo er ég boðinn í svartfuglaveislu til pabba á fimmtudaginn.......matarboð í Sandgerði á föstudaginn.......úúúúúúú......Smári kokkur hér kem ég =) Ég er sko búinn að vera í átvaglsæfingarbúðum síðustu daga til að undirbúa Sandgerðisboðið =) Mmmmmmm hohohoho.........shit.....verð að hætta hugsa um mat =)

Þannig að það er nóg um að vera næstu daga þó svo mar verði einn í kotinu um páskana......en Þórey er að fara til Eyja ! En ég bara geri eikkað af mér á meðan ;-)

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 11. apríl 2006 kl.: 23:07 Athugasemdir (13)

sunnudagurinn 9. apríl 2006
Síðan endurheimt
Well ég hef fengið síðuna mína aftur í loftið......biðst afsökunar ef einhverjum fannst þetta óviðunandi =) Hehe hverjum er ekki sama !? En allavega þá hef ég nóg um að blogga.....nenni því samt ekki alveg núna því ég er á leið í koju ;-)

Gnight =)

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 9. apríl 2006 kl.: 22:57 Athugasemdir (7)

laugardagurinn 8. apríl 2006
Þá er það hafið !

vs.

Jamms í dag er það fyrsti leikurinn um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta ! Það eru snillingarnir í UMFN (Njarðvík fyrir þá sem ekki vita ;-) sem spila við Borgnesinga........Borgnesingarnir unnu í undanúrslitum Íslandsmeistarana frá því í fyrra, Keflavík, en Njarðvíkingarnir tóku KR-inga í kennslustund ;-) Það er ljóst að þetta verður massa skemmtilegt einvígi og hlakka ég mikið til að sjá Frikka vin minn kljást við George Byrd, miðherja Borgnesinga...sem er massífur á velli...en Frikki hefur nú spilað við Yao Ming og gerði það vel....þannig að ég hef trú á mínum manni í þessu......en ég allavega ætla mér að mæta á fyrsta leikinn sem fer fram á heimavelli UMFN Ljónagryfjunni =) Þetta verður án efa magnað........!

ÁFRAM Njarðvík !!!!

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 8. apríl 2006 kl.: 09:22 Athugasemdir (6)

föstudagurinn 7. apríl 2006
Jæja nú hefst alvaran
Jamm nú er mar kominn með nýja vinnu ;-) Ég var að skrifa undir í dag hjá Kögun......allt að gerast ;-) Ég byrja að vinna þar 22. maí nk, og hlakka ekki lítið til að takast á við það sem er í boði þar =) Nú er mar náttlega að verða búinn með skólann og þetta var ekki lengi að gerast ! Mar ræddi við nokkur fyrirtæki en það var Kögun sem stóð uppúr ;-)

En annars er bara allt fínt að frétta.....prófin eru í fullum gangi og næst er það Viðskiptalögfræði á þriðjudaginn. Svo eru víst að koma páskar en ég verð nú bara hérna í RVK að læra.......sendi bara Þórey til Eyja.....mar má ekkert vera að því að fara með.......mundi líklega ekki læra neitt ef ég gerði það =) En allavega......nóg um að vera þessa dagana !

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 7. apríl 2006 kl.: 19:24 Athugasemdir (6)

mánudagurinn 3. apríl 2006
OK þá !
Hann átt ammal um dæinn,
Hann átt ammal um dæinn,
hann átt ammalann Ófeigur bróðir minnnn,
Hann átt ammal um dæinn !!!!

Til lukku með það Ófeigur minn ;-)

ps. ég verð þrítugur í haust það er þá eins fallegt að ég fái flottustu ammalis kveðju EVER =)

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 3. apríl 2006 kl.: 18:13 Athugasemdir (6)

sunnudagurinn 2. apríl 2006
Próóóóóóóf
Já maður lifandi.....nú er mar kominn á fullt í prófin ! Ohhhh bara leiðinlegt.....en einhver verður að gera þetta =) En já ég var eiginlega inntur eftir innleggi hérna (hehe innlegg....hljómar eins og dömubindi =)

En þessa dagana er það Mannauðsstjórnun sem er á morgun.....úfff.....en það reddast ;-) Svo er það Tölvusamskipti á miðvikudaginn :-/ En þetta gengur svo sem þokkalega held ég ;-)

Heyrru já svo var ég nú búinn að lofa systur minni henni Dagmar Ósk einu vídjói hérna......þeir sem hafa nægilega góða nettengingu ættu að sækja þetta...er alveg 4.5 mb......hér er hún að keppa í Boccia sl. helgi.....fínt kast -)

Vídjó af Dagmar í Boccia !

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 2. apríl 2006 kl.: 10:28 Athugasemdir (6)

laugardagurinn 25. mars 2006
Já já já maður !!!!
Vitið þið góðu hræður sem hérna komið inn.....nú er senn að ljúka einum skemmtilegasta degi sem ég hef lifað =) Ég get svo svarið fyrir það =) Sko við mútta mín fórum að sjá systir mína hana Dagmar Ósk keppa á Íslandsmótinu í Boccia ! Vá hvað þetta var gaman maður......hehe ég er ennþá brosandi =) Okkar lið, ÆGIR, var mætt þarna í setninguna og þau voru alveg glæsileg þarna ;-) Hópurinn var, systurnar Dæja og Júlíanna sem skipuðu B-liðið ásamt Dagmar Ósk, Óli Jóns vinur minn, Guðni Davíð gæji, Ylfa og Anton snillingur voru svo í A-liðinu.

Í dag var það riðlakeppnin en B-liðið, þrátt fyrir góða byrjun, náðu ekki í úrslitakeppnina að þessu sinni. En A-liðið fór að mér skyldist áfram og þau eiga að spila aftur á morgun ;-) Flott hjá þeim ! En já þetta var alveg svakalega gaman að upplifa og þetta verður vonandi oftar og þá er ég mættur =) Það er ljóst !¨



En það má ekki gleyma pæjunum sem fóru með hópinn eða Margrét Bjarna og Kristín Óskars.....þær voru alveg magnaðar. En svona að endingu.....þá setti ég nokkrar myndir á netið.....skoðið þær HÉRNA ;-)
Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 25. mars 2006 kl.: 21:26 Athugasemdir (337)

þriðjudagurinn 21. mars 2006
Helgin framundan !
Já maður lifandi....það verður massa mikið að gerast nk. helgi mar.....hún Mútta mín ætlar að koma á fastalandið því elsku systir mín er að fara að keppa í Bocchia á laugardaginn ;-) Ohhh hvað mig hlakkar til mar !!!!!! Sko hún Dagmar Ósk systir mín er nýbyrjuð að æfa og er að koma til RVK að keppa í fyrsta sinn ! Hún er í B-liðinu með þeim Dæju, Júlíönnu og Antoni ;-) Þetta er hörku lið alveg hreint og þau eiga víst að keppa á laugardaginn kl 11 í Stakkabergi.......sem ég held að sé í Breiðholtinu ! Þetta verður eflaust gaman =)

Svo eru tengdó líka að koma hingað því við erum svo að fara í fermingu á sunnudaginn.......ammmmmm.......nammm.....þýðir það ekki bara eikkað gott að borða ? Hehe en það er systir Gunnars Heiðars, frænda Þóreyjar sem er að fermast.....damn ég veit ekki einu sinni hvað hún heitir =) En foreldrana þekki ég þó allavega ;-) Jamm þannig að það verður nóg um að vera um helgina og ég hendi svo inn úrslitum frá mótinu hérna um leið og færi gefst og ég ætla að taka einhverjar myndir og svona líka ;-)

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 21. mars 2006 kl.: 13:11 Athugasemdir (0)

Miðvikudagurinn 15. mars 2006
VAAAARÚÐ !!!!
Maður lifandi......var að koma úr bíjóinu.....úfff ég hef ekki séð eins slaka mynd, síðan Þórey tók á leigu myndina Death by magic, í langan tíma ! Ja hérna hér....það eru fínir leikarar þarna á ferð s.s. Colin Farrell (reyndar alveg orðinn þreyttur) og Christian Bale (var allavega flottur í Batman ;-) En þessi mynd sökkaði spik FEITT ! Þetta var myndin The new world....hún á víst að fjalla um Pocahontas og John Smith en það bara einfaldlega gerðist ekkert þarna !? Þetta var ekkert smá dautt......ég á ekki orð ennþá.....mar var alltaf að bíða eftir einhverju en neiiii ekki í þessari mynd......kannski í The new world 2.....en o well.....ég allavega mæli EKKI með þessari.



Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 15. mars 2006 kl.: 22:58 Athugasemdir (2)

þriðjudagurinn 14. mars 2006
Rétt upp hönd sem.....
.....finnst þetta of mikið af upplýsingum ! Well ég get ekki annað en deilt þessu með ykkur báðum sem lesa bloggið mitt ;-) En ég fór í klippingu í gær, sem er ekki frásögðum færandi, en sú sem að klippir mig alltaf hafði forfallast og það var þarna einhver kona sem tók þetta að sér. Ég var rétt sestur í stólinn þegar tjellingin byrjar að tala um það að hún og fjölskylda hennar ættu tík, Cocker Spaniel, og nú væri verið að reyna að sæða hana !?!? Okeiiiiiiii......gott og vel að eiga hundstík, en þarf ég að vita af þessari SÆÐINGU ? Hmmmm uuuu neiii allavega ekki eikkað sem mig vantaði að vita ! En vitið menn.....tjellingin talaði um þetta allan tíman sem hún var að snyrta á mér skallann......ég er bara feginn að ég hélt einhverju af hárinu mar......ég meina hún var bara að masa um hvernig þetta hafi gengið og gengið ekki því greyið hundurinn sem átti aldeilis að humpa hennar tík hafi einfaldlega ekki kunnað til verks og ég veit ekki hvað og hvað !?!? Úffff....ég reyndi nú bara að hafa gaman af þessu en ég verð bara að segja eins og er að mér þótti þetta ekkert ýkja spennandi umræðu efni..........það er eins gott að einn ónefndur frændi minn lennti ekki í þessum aðstæðum.......hann hefði grafið sig í stólinn =) Hehe þetta var alveg spes......það er eins gott að Agnes, þessi sem klippir mig annars, verði kominn næst þegar ég þarf að fara í klippingu.....ég verð lengi að fyrirgefa henni þetta =)




Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 14. mars 2006 kl.: 14:14 Athugasemdir (98)

mánudagurinn 13. mars 2006
Hann á ammal í da.....
Já hann Steini bróðir minn á sko ammali í dag en kappinn er ** og 7 ára gamall ;-) Og lítur ekki út fyrir að vera degi eldri =)



En já það var nóg að snúast um helgina.....málið er að ég spilaði á firmaamóti FH á laugardaginn með Duffanum og gekk okkur þokkalega......við enduðum í 2. sæti í okkar riðli......þurftum að vinna síðasta leikinn til að komast í úrslit en þar sem við gerðum 1-1 jafntefli í þessum leik þá dugði það ekki til :-/ En við duttum út á lakari markatölu ! Þetta var engu að síður þræl skemmtilegt og eiga þeir FH-ingar heiður skilið fyrir þetta framtak ;-)











 
  Tanni frændi og Kamilla Stebbi Braga á siglingu

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 13. mars 2006 kl.: 10:37 Athugasemdir (6)

föstudagurinn 10. mars 2006
Að vera eða vera ekki !
Well ég verð víst að biðjast afsökunar á því að ein og ein bloggfærsla er að detta út hérna hjá mér, en það er einhverjum mongólítum um að kenna sem þurfa endilega að sanna það að þeir geti með óprúttnum hætti komist hérna inn og hent þessu út hjá mér.......mér finnst það bara gaman......þetta er bara leiðinlegt fyrir ykkur hin sem nenna að lesa þetta =) En þessir menn sem um ræðir eru með LÍTIL typpi og hana nú ;-)

En já annars þá er bara helgi að renna upp.......nei ekki Helgi Karl en næstum kannski.....en þetta verður líklegast bara róleg helgi......það er reyndar árshátíð hjá skólanum mínum en ég einfaldlega nenni ekki að fara =) Kannski er mar að eldast :-( Nú attla ég bara að taka því rólega þangað til 25. mars en þá verður sko óvissuferð hjá Technosport ;-) Það verður án efa massa ferð =) En ég lofa að reyna að blogga eikkað meira um helgina ;-)
Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 10. mars 2006 kl.: 12:54 Athugasemdir (17)

miðvikudagurinn 1. mars 2006
Magnað fyrirbæri
Well....ég verð eiginlega að segja eins og er......það kom berlega í ljós klassa munur á tveimur dagblöðum í gær ! Jamm, allir vita hversu ósmekklegar forsíður DV hafa verið undanfarið og bar þar kannski hæst þegar myndin af kennaranum á Ísafirði var sett þar. Það var verið að bera sakir á mann en það var ekki búið að sakfella hann....ég ætla mér ekki að draga úr því hver meint brot hans áttu að hafa verið en þetta fór því miður svo að hann tók sitt eigið líf :-/ Já þetta hefur verið einkar ósmekklegt á þessum bæ en ég get ekki sagt það sama um þá hjá Fréttablaðinu........já mér fannst forsíðufrétt ásamt mynd þar í gær MÖGNUÐ ! Svo einfalt var það......en þar var að finna grein um strætóbílstjóra greyið sem missti báða fætur í árekstri við vörubíl í Ágúst.......sko ég veit að þetta er kannski ekki hressasta umræðan en.....þarna var karlinn kominn á tvo gervifætur og hann er farinn að ganga aftur !?!?! Hversu magnað er það ? Já mar spyr sig.....en eins og ég segi að bara með svona stuttum innleggjum má sjá klassa mun á fréttamennsku.....það er allavega að mínu mati !

En þess má samt geta að eigendur þessara tveggja blaða er víst á sömu höndum, en nota bene.....þarna eru tvær mismunandi ritstjornir starfandi ;-)
Þið getið sótt fréttablaðið í gær, hér !

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 1. mars 2006 kl.: 09:01 Athugasemdir (21)

mánudagurinn 27. febrúar 2006
Ég ekki skilja :-/
Amm.....við Þórey fórum í bíó í gær til að sjá myndina Casanova, með þeim Heath Ledger og Sienna Miller. Myndin var alveg fine sko en flestir ættu svo sem að þekkja söguna af gaurnum sem einfaldlega veifar sprellanum um allar trissur við góðan orðstýr. En já þarna í bíó var nú meirihlutinn bara stelpur og svo ég......en þetta er kannski meira svona stelpumynd ! En eitt sem ég ekki alveg skilja er það að þrátt fyrir það hvernig hann var að fara með tjellingarnar í myndinni þá þykir stelpum þetta samt vera bara æðislegt ! Sko þegar almennt talað einhver gaur tekur upp á þessari iðju að ota sínum tota kannski meira en góðu hófi gegnir þá þykir það ekki til eftirbreytni......en þarna var þetta bara í lagi og þótti bara "sætt" !?!?!? Já þetta fannst mér kannski ekki alveg vera í jafnvægi við það sem mar heyrir kvenfólk aðallega predika um. Það má segja í þessu tilfelli hafi rassgatslausa músin skitið feitt !

En svona til að draga þetta saman þá var þetta svo sem ágætis ræma (má alveg taka á leigunum þegar þar að kemur) en hún fær svona 2 og 1/2 stjörnu frá mér ;-)
Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 27. febrúar 2006 kl.: 14:45 Athugasemdir (7)

laugardagurinn 25. febrúar 2006
Hvað gerir mar ekki fyrir vinina ?
Úí.....það er víst bullandi helgi í gangi og nóg um að vera víst....mar attlar reyndar að chilla bara þessa helgi og vinna bara eða eikkað.

Já og talandi um helgi......eða Helga en Helgi Björns er gæi.....það er alveg ljóst ! Ég meina maðurinn er að verða 100 ára og lítur samt helvíti vel út......tjékk it át



En annars er það af þessum heiðursmanni að frétta að hann gaf út snilldar disk fyrir jólin......þetta er rólyndis diskur sem tekur á lögum eftir Magga Eiríks en þessi stórsöngvari og megatöffari rúllar þeim upp eins og honum einum er lagið ;-)

Þetta innlegg var í boði Lóu vinkonu =)
Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 25. febrúar 2006 kl.: 20:25 Athugasemdir (6)

Page:  << Prev  1  2  3  4  5  6  7  8 9  10  11  12  13  14  15  16  17  18  19  20  21  22  23  Next >>


Powered by Web Wiz Journal version 1.0
Copyright ©2001-2002 Web Wiz Guide