|
.:Lýðs:. !
| miðvikudagurinn 19. júlí 2006 |
Nýtt lén í gagnið ! Jamms mar er að taka nýtt lén í gagnið og því er viðbúið að það verði eikkað pikkles með þetta.......ég bið ykkur bæði að vera því þolinmóð =)
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 19. júlí 2006 kl.: 15:57
Athugasemdir
(0)
|
|
|
| fimmtudagurinn 13. júlí 2006 |
22 dagar í hátíðina sem kennd er við þjóð ! Júmms......það hefur ekkert breyst....ég er enn á leiðinni á þjóðhátíð í ár =) Og já það er alltaf að styttast í þetta ;-) Nú er mar byrjaður að hita upp.....mar hlustar á þjóðhátíðarlögin í vinnunni....er að æfa nokkur lög á gítarinn...kíkir reglulega á dalurinn.is til að fylgjast með því hvað er að gerast. Það verður hörku dagskrá.....meðal annarra þá verða snillingarnir í Jet Black Joe eftir flugeldana á laugardagskvöldinu, þarna verða einnig Dr. Spock, Hoffman, Bubbi Mortens, Stuðmenn, Á móti sól og fleiri og fleiri......! Þetta er náttlega fyrir utan alla aðra fasta liði eins og Brennuna á Fjósakletti, flottustu flugeldasýningu í Evrópu og brekkusöngnum með Árna Johnsen =) Úffff magnað.....ég get ekki beðið =)
Annars.....þá er bara ekkert annað að frétta =)
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 13. júlí 2006 kl.: 21:06
Athugasemdir
(249)
|
|
|
| miðvikudagurinn 5. júlí 2006 |
Þjóðarinn hér kem ég !!!! Jamms.....málið er svo gott sem stein dautt ! Við erum ákveðin í því að það sé ekkert vit í að missa af Þjóðaranum.......Víííííííííí =)
Kjartan Vídó......þú ert sjálfur F E Y....hehe

Lífið er yndislegt sjáðu......það er rétt að byrja hér =) Endilega kíkið á Dalurinn.is.....þar eru alltaf nýjustu fréttir af undirbúningi fyrir Þjóðhátíðina ;-)
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 5. júlí 2006 kl.: 22:16
Athugasemdir
(17)
|
|
|
| Ammalisdagurinn hans Pabba |
Helgarferð á Sigló Já ég verð að byrja á að senda pabba mínum ammalis kveðju en hann er 38 ára í dag =) Til hamingju með daginn PABBI ;-)

Kallinn er glang glang flottastur !
En já það var farin helgarferð norður í land, nánar tiltekið í höfuðstöðvarnar Siglufjörð. Við Þórey lögðum land undir fót eftir vinnu á föstudaginn og brunuðum þetta á c.a. 5 tímum. Það fynda við þessa ferð var að ég var alltaf að leita að Staðarskála til að stoppa aðeins og teygja úr skönkunum en þegar ég var kominn í Varmahllíð þá varð mér ljóst að ég hafi ekki fylgst alveg nógu vel með =) Magnað hvað mar tekur vel eftir. Ekki get ég sagt að ég sé nægjanlega vel að mér í landafræðinni heldur þar sem ég var í sífellu að spyrja Þórey hvort það stæði ekki alveg örugglega Staðarskáli á sjoppunni í Varmahlíð =) hehe. Þegar við svo lendum á Sigló, kl c.a. 11 um kvöld, þá tók þar á móti okkur höfðingi mikill eða sera Sigurður Ægisson sóknarprestur á Sigló, en hann er bróðir pabba. Við fengum nefnilega gistingu hjá sera og var það fyrsta sem mætti okkur þegar inn var komið glæsileg veisla. Þarna var lambalæri, brúnaðar kartöflur og allar græjur……usss ég verð svangur við tilhugsunina. Við forum sem sagt vel nærð í koju.
Laugardagurinn var tekinn tiltölulega snemma…..það var búið að leggja á borð fyrir okkur og þessi líka fíni morgunmatur. Sjaldan ef aldrei hefur mar lennt í annari eins kræsingum….þetta var eins og að vera á 5 stjörnu hóteli =) Eftir morgunmat var farið í sundlaugina og aðeins skolað af sér. Eitt var alveg magnað, en sérann hafði tekið í fóstur 6 þrastarunga en mamma þeirra hafði dáið frá þeim svona litlum og kallinn tók þá til sín og gefur að borða með flísatöng. Það var ægilega gaman að sjá hann gefa þeim……hehe…..snilld Dagurinn fór svo meira og minna í það að vera hjá ömmu, en það er hægt að sitja og hlusta á sögur hennar í marga klukkutíma án þess að leiðast……..amma mín er langflottust ;-) Við forum engu að síður við á Síldarmynjasafnið að skoða og svo auðvitað á bryggjurnar til að renna fyrir fisk. Ég og Finnbogi bróðir forum svo oft þarna þegar við vorum litlir og þetta var eiginlega nostalgia að rifja þetta allt upp =) Um kvöldið var svo enn ein veislan hjá séra Sigurði en þá var það laxaveisla…….mmmmm……hefði ekki trúað að þetta væri svona gott =) Einnig bauð hann að smakka siginn silung sem tengda pabbi hans gerir…….vá mar…….hann var svoldið sætur fiskurinn……magnað…..mæli með þessu ;-)

Ég að dorga =)
Sunnudagurinn var svo tekinn snemma því áætlað var að fara á Ólafsfjörð til að heimsækja Einar bróðir tengda pabba…..sem og við gerðum. Það var alveg þræl gaman að koma þarna og við fengum góðann túr um bæinn með Einari. Við héldum svo heim á leið um 14 frá Ólafsfirði, vel úttroðin af pönnukökum og vorum komin til borg óttans um kvöldmatarleytið. En ég get alveg sagt að ég mæli með því að folk skoði þessa staði. Siglufjörður er alveg óskaplega fallegur á góðum sumardegi. En ég setti nokkrar myndir á síðuna og getið þið kíkt á þær hér ;-)
Ég verð enn og aftur að minnast á höfðinglegar móttökur Sigga frænda, en hann var alveg magnður !
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 3. júlí 2006 kl.: 12:08
Athugasemdir
(49)
|
|
|
| miðvikudagurinn 29. júní 2006 |
Eyjan mín bjarta Hehehe ég hef fengið fín viðbrögð frá vinum mínum við því að ég ætli ekki að mæta á Þjóðhátíð í ár ! Well....málið er víst ekki enn frá gengið þ.e. það er ekki enn búið að panta flug eða neitt þannig og því ekki öll nótt úti enn ;-)
En svona fyrst við erum að tala um Eyjarnar þá langar mig að taka upp eina vinsælustu umræðu um Vestmannaeyjar (þ.e. fyrir utan Þjóðhátíð ;-) en það eru samgöngumálin. Lengi hefur verið reynt að fá samþykkt að smella göngum milli lands og Eyja en nú virðist það hafa verið blásið af. Það nýjasta í þessu er að samgönguráðherra okkar Sturla Böðvarsson kom fram með þá tillögu (eða heyrði af henni á eyjafrettir.is kannski ?!) að smella ferjulægi í Bakkafjöru og sigling til lands tæki þá aðeins 30 mín. En eins og fram kemur á vef Sturlu www.sturla.is þá yrði þetta ekki klárt fyrr en í fyrsta lagi árið 2010. En já það er kannski bara spurning hvort þetta sé málið ?! Gaman væri að heyra skoðanir sem flestra við þessu því þetta varðar okkur öll !
Hér má svo lesa grein Sturlu um þetta mál.
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 28. júní 2006 kl.: 13:14
Athugasemdir
(64)
|
|
|
| laugardagurinn 24. júní 2006 |
Ussilíus bussilíus ! Maður lifandi......mar bara eiginlega gleymdi sér =) Mar er víst með blogg hérna sko......en lífið er búið að vera yndislegt undanfarið sko ! Var að fá ábendingu um að það væru "aðeins" 40 dagar fram að þjóðaranum :-) Úff það er of stutt.......mar nebblega veit ekki hvort mar verður á suðurhafseyju þegar tíminn rennur upp :-/ En það er allt saman ennþá á teikniborðinu =) En sko ef mar færi þangað þá væri tjaldað og læti.......en við sjáum hvað setur. Það er nebblega verið að spá í að kíkja á Jóhann Sigurð og Önnu í Sverige ;-)
En jú margt er í bígerð......en það á að smella sér á Sigló n.k. en það nebblega var ekki alveg hægt að taka á móti okkur þessa helgi......þannig að mar er bara spenntur að fara norður og rifja upp það sem brallað var í den =) En við Finnbogi bróðir áttum það til að bralla margt skemmtilegt þarna. Eitt var þó einna eftirminnilegast þegar við bræður tókum allan klósettpappír heima hjá Ömmu og Afa og vöfðum utan um húsið þeirra =) hehehe já og svo fór að rigna :-) En mér skylst að Afi hafi ekki verið neitt sérstaklega sáttur við peyjana í það skiptið =) hehehe
En já svo er það eitt....mar verður að skella sér á bryggjuna og dorga svoldið vel......það var ósjaldan farið á bryggjurnar og veitt nokkra marhnúta eða svo =) Amma hefur oft sagt okkur þá sögu að oftar en ekki þegar hún brá sér úr húsi þá lágu andvana marhnútar á tröppunum hennar og veiðistangir okkar bræðra ;-) Gaman gaman !
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 24. júní 2006 kl.: 21:43
Athugasemdir
(2458)
|
|
|
| fimmtudagurinn 15. júní 2006 |
Þýskaland hér kem ég ! Já heldur betur....nú er mar að fara til Þýskaland ! Þannig er mál með vexti að Kögun ætlar að gera víðreist og það á að bjóða til þessarar ferðar.....jamms og makar verða að sjálfsögðu velkomnir með =) Það er fyrirhugað að fara nánar tiltekið til Berlínar og það er meira að segja búið að velja hótel og alles ;-) Hér má finna upplýsingar um hótelið.....það heitir víst Park inn......massa flott. Ferðin verður reyndar helgina 15 - 18 sept. en það er svo sem í lagi.....málið er að ég á ammali á sunnudeginum 17. sept og verð víst 30 ára =) En o well mar hlýtur að geta fagnað þessu tímamótum í Berlín eins og hvar annarsstaðar =) Það er alveg ljóst að það gefst allavega smá tími í að skoða sig um og svona þannig að mar er bara spenntur.........kannski mar fari á knattspyrnuleik eða eitthvað.......fái sér Bratwurstpylsu og bjór ;-) En eins og ég segi.....mar er bara spenntur.
Af öðru þá er svo sem helgin framundan og nóg um að vera......HM í gangi og allt í blússi....lífið er gott ;-)
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 15. júní 2006 kl.: 22:06
Athugasemdir
(19)
|
|
|
| föstudagurinn 9. júní 2006 |
Yeeeeessss Magnifæsent.....þeir Steini og pabbi unnu keppnina um sjómannalagið á Hátíð hafsins.....keppnin var sem sagt haldin á Rás 2 í dag og unnu þeir með 20 atkvæðum =) Þannig að ég vill endilega þakka öllum þeim sem greiddu okkar lagi atkvæði ;-) Steini á svo að flytja lagið á morgun á hafnarbakkanum í Reykjavík ;-) Endilega fyrir þá sem hafa áhuga að kíkja á það. Hér má finna dagskrá hátiðarinnar.
Annars er mar að jafna sig á flensunni og mar er allur að koma til.....svo eru mínir bekkjarfélagar að útskrifast á morgun og vill ég bara senda þeim heilla óskir hér og nú ! Ég er stoltur af ykkur öllum ;-) En allavega.....góða helgi allir.
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 9. júní 2006 kl.: 21:24
Athugasemdir
(7)
|
|
|
| fimmtdagurinn 8. júní 2006 |
Poppland á morgun ! Já gott fólk....ég vill endilega biðla til ykkar með morgundaginn þ.e. að Steini bróðir og pabbi voru að koma lagi áfram í keppninni um Sjómannalagið 2006. Steini samdi lagið og pabbi sá um textann og verður kosið um lagið í Popplandi á morgun milli kl 12:45 og 16:00 ! Lagið heitir Sól gyllir sundin og finnst mér, þó ég segi sjálfur frá magnað ;-) Þeir eiga heiður skilinn fyrir þetta lag ! Endilega tjékkið á þessu á morgun.
Annars liggur mar bara fyrir heima en mar sér til hvað mar gerir á morgun.....sé bara til með það ;-)
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 8. júní 2006 kl.: 21:15
Athugasemdir
(174)
|
|
|
| miðvikudagurinn 7. júní 2006 |
Magnað úthald Ég get ekki annað en smellt nokkrum línum hérna inn.....sko ég var að horfa, eins og væntanlega margir aðrir, á ammalistónleikana hans Bubba í gær ! Váááá hvað kallinn er í flottu formi !?!? Ég vona að ég verði svona flottur þegar ég verð 50 =) Hehehe eða kannski eins og Rúni Júll þegar ég verð 110 ára eins og hann er í dag :-) Hehe hann er alveg flottur líka !
En annars er bara nóg um að vera þessa dagana....mar er að fara í óvissuferð á laugardaginn n.k. þannig að það er margt í deiglunni ;-) En best að láta þetta duga í bili.
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 7. júní 2006 kl.: 21:01
Athugasemdir
(11)
|
|
|
| laugardagurinn 3. júní 2006 |
Well well well Mar er víst enn á meðal lifenda.....mar er ekki alveg að standa sig í þessu blessaða bloggi =) En o well það þýðir ekkert að væla það ;-)
Það er búið að vera nóg um að vera......vinnan komin á skrið og svona.....bara spennandi. Í dag er ég búinn að vera að passa fyrir systur Þóreyjar.....þær voru eitthvað að skondrast um með múttu sína í dag.....ég sá um barnaskarann á meðan ;-) Eigum við ekki að segja að kallinn hafi meira að segja skipta á kúkableyju og alles =) Ég hélt að ég mundi ekki reyna þetta fyrr en minn eiginn krói væri kominn í heiminn......en ég meina einhver varð að gera þetta og ég vissi ekki einu sinni hvernig bleyjan átti að snúa =) hehehe en þetta gekk alveg prýðislega ;-) Kjellinn getur ýmislegt !

En svo er það þvælingur á morgun....Selfoss og ég veit ekki hvað.......þannig að það er nóg um að vera.
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 3. júní 2006 kl.: 21:15
Athugasemdir
(11)
|
|
|
| fimmtudagurinn 25. maí 2006 |
Skólinn búinn =) Well þá eru öll próf á bak og burt og aðeins 6 einingar eftir í Bs-inn ;-) Jámm hver hefði trúað því að mar ætti eftir að taka 3 ára háskólanám í Tölvunarfræði fyrir svona 10 árum síðan =) hehe well það er nú að gerast og sýnir bara að allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi.
Annars eins og ég segi þá er mar bara að koma sér á ról eftir prófin og mar er byrjaður að vinna......ég er að vinna hjá Kögun og lýst alveg svakalega vel á þann stað og þau verkefni sem ég er að fara í. Ég verð mest að forrita í Java og það er svo sem alveg fine =) En það er ljóst að nú verður mar að fara skella sér á eikkað smá djamm og er aldrei að vita að það gerist nú um helgina......þó það sé ekki alveg klárt........ennþá =) En allavega.......i'm back ;-)
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 25. maí 2006 kl.: 16:02
Athugasemdir
(175)
|
|
|
| sunnudagurinn 21. maí 2006 |
Allir er'að gera það gott.... Já og ég held ég líka ;-) En nú er helgina rétt í þessu að klárast og á morgun byrja ég í nýju vinnunni minni =) Usss hlakka alveg til.....Kögun er náttlega massíft fyrirtæki og ég er spenntur fyrir verkefnunum sem ég fæ að reyna við. Þetta byrjar á námskeiði strax á þriðjudaginn og svo fer mar væntanlega í einhver verkefni þar á eftir ;-) Þannig að þetta er allt voða spennandi.
Já svona fyrst mar var að minnast á helgina og svona þá voru eiginlega allir sem ég þekki á skrallinu....þó sérstaklega í gær....Júróvisíón keppnin í gangi og svona......okkur var að sjálfsögðu boðið í heimahús til að horfa á þetta og var það alveg vel =) Það var grillað og ég veit ekki hvað. Svo var farið að raða í sig drykkjunum og hver og einn valdi sér lið eða kannski frekar land til að halda með í keppninni. Ég valdi að sjálfsögðu Finnland sem kom sá og vann kvikyndið ;-) Eins og allir vita þá heitir Finnskabandið Lordi.....

Það var ekki annað hægt að segja en að þetta hafi bara verið flott sem sigurlagið þar sem hin lögin voru einfaldlega ekkert sérstök þ.e.a.s að mér fannst......en þetta var bara skemmtilegt kvöld og ég held að flest allir sem voru þarna með okkur séu mér sammála. Svo var fólk að týnast í bæinn og svona en ég var nú bara rólegur.......tek þetta kannski út næstu helgi =)
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 21. maí 2006 kl.: 14:49
Athugasemdir
(305)
|
|
|
| föstudagurinn 19. maí 2006 |
Helgina er framundan Well það er víst nóg um að vera þessa helgina......Júróvisíón í gangi en kannski er ekkert spennandi að fylgjast með því þegar við Íslendingar erum ekki lengur með =) En eins og flestir vita þá komst Silvía Nótt ekki í aðalkeppnina ! En ég veit ekki.....mér fannst flutningurinn eitthvað smá mis hjá henni en þó voru lög eins og það Tyrkneska. En annars var þetta svoldið fyndið eins og gaurinn með grænahárið.......hann var eins og standlampi =) Magnað fyrirbæri.

Það margt til í þessum skrýtna heimi sem við búum í =) En allavega......góða helgi bara allir ;-)
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 19. maí 2006 kl.: 09:20
Athugasemdir
(12)
|
|
|
| mánudagurinn 15. mái 2006 |
Nóg um að vera á næstunni ! Úfff....nú er mar á síðustu metrunum í skólanum....reyndar próf á morgun =) En mar er einhvern veginn með hugann við eitthvað allt annað =) En ég var aðeins að skoða myndir frá síðasta giggi Jet Black Joe á Gauknum en mar var víst þar sko ;-) Bara svona forvitni. En það er alveg slatti spennandi að gerast á Gauknum á næstunni.......hér eru nokkur dæmi:
30. og 31. maí - Tónleikar með Dúndurfréttum 15. júni - Útgáfutónleikar Jet Black Joe 16. júní - Ball með Jet Black Joe
En þetta er aðeins sá hluti sem mér finnst eitthvað spennandi......það verður eitthvað um að vera líka Júróvisíónhelgina o.s.frv. En ég ætla að sjá hvort mar komist ekki á hitt allt saman =)
Hérna er svo slóð á allt draslið ;-)
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 15. maí 2006 kl.: 10:57
Athugasemdir
(6)
|
|
|
| sunnudagurinn 14. maí 2006 |
Magnaðar hreyfingar Usss mar.....var að fá þetta vídjó sent hérna áðan (uuu núna er nótt úti ;-) En þarna er á ferðinni einhver gaur sem er að stikla á stóru í þróun dansins ! Þarna má sjá m.a. breakdans, kósakka, Grease dansinn, YMCA,´línudans, Michael Jackson og margt fleira......snilld.....tjékkið á þessu hérna
Well.....annars er þetta búið að vera fín helgi....var í dag (eða gær kannski :-) á bræðrabrölti en við bræður og gamli vorum að þvælast hist og her um borgina......hittum einnig á Tanna frænda.....ekki leiðinlegt =) Svo var massa flottur snæðingur um kvöldið eða Önd og Heiðagæs.......mmmmmmmmm.......úfff ég er enn með blóð í......well þið vitið hvar! (nei í Lóa ekki þar :-) En svo er framundan próf á þriðjudaginn þannig að það er nóg um að vera ;-)
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 14. maí 2006 kl.: 02:01
Athugasemdir
(5)
|
|
|
| fimmtudagurinn 11. maí 2006 |
MAD blöðin ! Hver man ekki eftir MAD blöðunum svokölluðu.....þetta blað var allsráðandi hérna fyrir svona 10-15 árum og mar var alveg að míga á sig yfir sumum bröndurunum =) En eitt er þó á huldu....hvað varð um peyjann sem var alltaf utan á blaðinu ? Hér að neðan má sjá það ;-)

Snilldin Einar.......en annars þá er helgin að koma og nóg um að vera.....Ófeigur bróðir er að koma á morgun og verður hér fram yfir helgi. Við ætlum svo bræðurnir að hittast í hádeginu á laugardaginn og það á Style-num ;-) Usss já það á sko að skella í sig vel og fara svo til gamla að horfa á fússball ;-) Það er víst einhver bikaúrslitaleikur en það eru einhver smálið sem spila þann leik.....ekkert svakalega spennandi =) En að leik loknum ætlum við bræður að smella okkur á byssusýningu í Kópavoginum.......usssi....það verður víst nóg um dýrðirnar þar ;-) En mar er bara spenntur !
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 11. maí 2006 kl.: 14:37
Athugasemdir
(9)
|
|
|
| þriðjudagurinn 10 maí 2006 |
Hahaha snillingur Jamm það má með sanni segja að hann Ófeigur bróðir minn sé algjör snillingur......hehe....hann var víst að fara í eitthvað þama partý sl. föstudag og hann ætlaði að vera Sergeij =) Bara fyndin mynd =)

En annars fer mar nú að detta í sumargírinn en það er búið að vera hálf óheiðarlegagott veður. Það er svoldið erfitt að vera að vinna að einhverju skítugum verkefnum í skólanum á meðan veðrið leikur hvern sinn fingur.......kannski mar fari bara í Nauthólsvíkina um helgina......nei segi bara svona ;-) Það er einhvern veginn þannig að þegar mar byrjar að grilla og svona.....þá bara kemst mar í stemmningu =) Ég get alls ekki sagt að mér leiðist svona gott veður.....langt því frá.....þannig að ég tek þessu bara fagnandi.....skólinn er að verða búinn ;-)
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 10. maí 2006 kl.: 09:01
Athugasemdir
(0)
|
|
|
| Laugardagurinn 6. maí 2006 |
Ég elska Íslendinga ! Já það má með sanni segja.....við erum svo fyndin þjóð.....ég meina nú er sól farin að skína í heiði og þá fara hlutirnir að gerast......við förum að spóka okkur um í "hitanum". Um leið og hitinn fer 5 gráður yfir frostmarkið þá fara menn að sjást á nærbolnum og stuttbuxum. Ekki má nú gleyma "ströndinni" góðu þ.e. Nauthólsvík en þangað flykkjast sólarþyrstir íslendingar um leið og sól glennir sig =) Hehe mér finnst þetta svo fyndið. Get ekki af því gert....ég meina allt gott og blessað fyrir þá sem þetta fíla.....en ég meina.....við búum á Íslandi.....það er engin strönd hérna !

Engu að síður er þarna meira að segja spilað og keppt í strandblaki.......hehehe.....útlendingar sem hingað koma á þessum tíma eru í suðurskautslands gallanum á meðan við erum næstum á adams og Evu klæðunum......magnað.......ég elska Íslendinga !
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 6. maí 2006 kl.: 18:37
Athugasemdir
(11)
|
|
|
| þriðjudagurinn 2. maí 2006 |
Meiriháttar æðislegt Amms það er búið að vera bara nokkuð ágætt þetta blessaða líf sem mar lifir......helgin var alveg massa fín en tengdó var hérna hjá okkur. Það var grillað og ég veit ekki hvað á laugardaginn....mmmmm.....svo var nú verið að flakka í búðir eikkað.....við Þórey fórum aðeins í Smáralindina og mar kíkti á bátasýninguna þar =) Hehe ussi bussi....væri alveg til í einn bát !!!! En það kemur að því.....þetta voru annars bátar sem að vatnasport.is er að selja......alveg flottir bátar sko en kannski full fancy fyrir minn smekk þ.e. að þetta var teppalagt og ég veit ekki hvað =) Kannski full mikið.....ég meina mar færi varla á skóm um borð !
En núna eru mútta og Dagmar systir hérna hjá okkur og verða fram á sunnudag.....þannig að það er nóg um að vera hérna í Firðinum þessa dagana ;-) En well....best að fara koma sér í smá lærdóm ;-)
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 2. maí 2006 kl.: 21:25
Athugasemdir
(13)
|
|
|
|
|