| Hver er ég? | Bloggið | Myndir | Vísuhornið | Ýmislegt |
.:Lýðs:. !

fimmtudagurinn 5. október 2006
Hmmm.....spurning

Hvernig mundi manni líða ef mar færi einn daginn í krikjugarðinn t.d. til að vitja ættingja og maður mundi ganga fram á eigin gröf !? Ég meina maður veit auðvitað ekkert um það hvernig manni verður við þegar kallið kemur. Ef t.d. ef daua manns bæri skjótt að og kannski mundi ekkert taka eftir neinu.......svo mundi maður eftir langan tíma sjá eigin gröf í kirkjugarðinum ! Hugsa að það yrði svoldið skrýtið. Kannski er maður bara löngu dauður !
Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 5. október 2006 kl.: 07:34 Athugasemdir (23)

þriðjudagurinn 3. október 2006
Mamma mía.....

Well nóg er um að vera þessa dagan.....nú er að styttast í að mar fari í fyrsta sinn til Englands =) 'ufff hlakka ekki lítið til....það er verið að fara á Reading vs. Chelsea ! Við erum búinir að græja allt í ferðina......flugið er klárt....við verðum svo á klúbbhótelinu sem er staðsett á vellinum.....eða leikvanginum ;-) það er ekki nema rúm vika í þetta.....en við eigum flug frá klakanum föstudaginn 13. okt ;-) Úúúíí.....! Fann svo þessar myndir af klúbbhótelinu....þetta er 4 stjörnu kvikyndi....það ætti að duga =)

Já svo er mar nú allur að koma til í veiðigræjunum en ég var í dag að versla mér vöðlur.....jamms ég keypti þessar fínu vöðlur í Hlað......mæli með þeirri verslun...þetta eru höfðingjar frá Húsavík að ég held sem eiga þessa verslun....þeir eru flottir á því ;-) En þetta gefur mér allavega sénsinn á að fara í gæsaveiði næstu árin =) Ekki verra !



En annars styttist alltaf í helgina......kannski mar fari í gæsaveiði með bræðrum sínum í nýju vöðlunum !? Hehehe mar sér bara til =)
Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 3. október 2006 kl.: 13:35 Athugasemdir (18)

laugardagurinn 23. september 2006
Vá....ég er hérna !

Úff....þetta er búið að vera góða vika......fyrsta vikan á fertugsaldri =) hehe kúl !

En ammalisdagurinn var alveg fine þ.e. sl. sunnudag.....well laugardagurinn var ekkert slor heldur.....ég var sóttur í hádeginu af Sverri fyrrv. vinnufélaga mínum hjá VÍS.....hann fór með mig á RVK flugvöllinn......jamms.....ég var sendur í listflug !!!! Sko....þetta er það síðasta sem ég mundi fara í.....en þetta var einfaldlega æðislegt mar !! Úff....ég er enn að jafna mig =) En ásamt Sverri þá voru það Óli Dan, Binni og Stjáni Lundi sem buðu mér uppá þetta....takk fyrir það enn og aftur strákar ;-) Hér eru svo myndir frá þessu ;-)


Tom Cruise hvað ??

En já svo fór mar út að borða með unnustunni á A. Hansen.....mmm það var sko alveg fine ! Mæli með nautalundinni ;-) En á sunnudeginum fékk ég svo fullt af fólkinu mínu´í heimsókn en við vorum með kaffi og með því......mmmm og ég er enn að ná mér niður af sykrinum.....eða er það fluginu.....nei....eða bara bæði =) Bara gaman ! Ég vill þakka öllum fyrir mig ;-)


Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 23. september 2006 kl.: 05:02 Athugasemdir (36)

sunnudagurinn 17. september 2006
Ég á ammal í daaaaa.......!

Jamm haldiði að kallinn sé ekki orðinn 30 ára.....! Amms mar er kominn í virðulegramannatölu ;-) En ég er víst fæddur 5 mínútum fyrir kvöldfréttirnar (19:00) og skilst mér að mamma hafi misst af fréttunum þetta kvöld.....já og Kastljósi líka =) En annars þá líður mér mjög vel......en ég held ég hafi samt fengið enn eitt bringuhár í sarpinn......jamm þau eru þá orðin 7 ;-) En eins og Amma mín sagði við mig um daginn "Veistu að maður er jafn gamall og manni líður !" Já hún Amma mín hitti þarna naglann á höfuðið.....hún er að verða 85 ára núna í desember en er eins og 20 ára ;-)


Ég og Finnbogi bróðir

Fann þessa fínu mynd af mér og Finnboga bróður......kannski aðeins óskýr......en heiii....þetta er tekið á Polaroid vél fyrir þó nokkrum árum ;-)

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 17. september 2006 kl.: 06:47 Athugasemdir (6)

föstudagurinn 15. september 2006
Stoltur að heita Sigurjón =)

Já það er ekki hægt að segja annað en að mar sé stoltur að hafa verið skírður í hausinn á Afa sínum. Það er ekki annað hægt en að minnast aðeins á þennan einstaka mann sem hafði svo gífurleg áhrif á okkur sem hann þekktu því hann var gull af manni. Þegar maður hugsar til baka þá læðist bros á vör um þær stundir sem við sátum oft frændsystkinin við eldhúsborðið hjá Afa og dýfðum kringlum í kaffi =) Já það var sko allt látið eftir okkur ungunum á þessum tíma og það leiddist okkur ekki !
Ekki má gleyma að minnast á hundinn Týru sem fylgdi Afa hvert sem hann fór, hvort sem var í göngu um bryggjurnar eða á sjóinn, hún var alltaf við hlið hans. Hún var ekkert síðri gullmoli og við krakkarnir áttum margar góðar stundir með þessum tveim =)


Þessa mynd tók Sigurgeir ljósmyndari í apríl árið 1983

Ástæðan fyrir því að ég er kannski að skrifa þetta núna er sú að fyrst þá sendi Ófeigur bróðir mér þessa fínu mynd af Afa og Týru og þá fór mar að rifja upp =) Það einfaldlega glaðnaði yfir manni við það ! En já og svo auðvitað nafnið en ég var skírður í höfuðið á honum. Hann hélt líka á mér við skírnina og ég er svakalega stoltur að eiga þetta nafn......Afi þú ert og varst glang glang flottastur =)
Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 15. september 2006 kl.: 06:11 Athugasemdir (15)

þriðjudagurinn 12. september 2006
Myndir úr veiðiferðinni

Well ég var loksins að fá myndirnar úr veiðiferðinni en Steini bróðir tók flestar þessar myndir ;-)










Ágætir myndir !

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 12. september 2006 kl.: 15:02 Athugasemdir (24)

mánudagurinn 11. september 2006
Ellefti september....

Hmmm 5 ár síðan flogið var á tvíburaturnana......hver man ekki hvar hann var staddur þennan dag !? Ég var að vinna hjá fyrirtæki sem hét Arcis og man að vinnufélagi minn sagðist hafa lesið á mbl.is að flugvél hefði verið flogið á World trade center. Úfff hvað mar var eitthvað skrýtinn við þessar fréttir.....ekki það að mar hafi ekki verið skrýtinn fyrir =) En þetta sat lengi í mér og gerir í raun enn ! En mar sendir samúðarkveðjur til þeirra sem eiga það inni ;-)

En annars er mar bara glaður í hjartanu.....fór í gæsaveiði um helgina uppá hálendið.....úfff hvað það var gaman......við náðum 5 kvikyndum í þessari ferð og haldiði að ég hafi ekki skotið mína fyrstu gæs......og það í jómfrúarferðinni ! Já þetta var góð tilfinning og nú er mar kominn með bakteríuna.....það er alveg ljóst =) En ég fæ vonandi myndir fljótlega og þá set ég hérna inn ;-)

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 11. september 2006 kl.: 08:05 Athugasemdir (214)

föstudagurinn 8. september 2006
Veiði, veiði, veiði....

Jamms mar er bara að fara skella sér í veiði um helgina.....það á að fara uppá hálendið og leita uppi gæs og endur ;-) Víííí það er alltaf jafn gaman þegar eikkað svona er í gangi......ég hef nú ekki farið nema einu sinni áður.....en það var fyrir c.a. tveimur árum síðan......það fór nú víst þannig að við fengum akkúrat ekki neitt =) Ekki einu sinni fjöður ! En ég geri nú engar ægilegar væntingar heldur núna.....málið er að það verður bara til að svekkja menn =) Þannig að þetta er aðallega uppá félagsskapinn....það er það sem gildir ;-)


Þessi mynd var tekin í síðustu veiðiferð

Nú er mar bara að taka til það sem þarf í veiðina....mar verður að vera með réttu græjurnar og svona í þetta......passa sig að gleyma ekki neinu ;-) Það á að leggja í'ann snemma í fyrramál og gæti verið að mar verði eikkað frameftir....fer allt eftir hvort eitthvað verður af fugli ;-)

En svo gæti farið að mar endi í smá teiti annað kvöld......en Ómar frændi ætlar að vera með smá kveðjupartý......kallinn er víst að flytja til Skotlands.....sko annað hvort er þetta til að fara vinna tja eða til að ná sér í tjellingu =) Ég hélt bara ða menn færu til Rússlands til þessu =) En það verður bara gítar og söngur og svona.....gaman gaman....já og kannski smá bjór ;-) Well.......góða helgi !
Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 8. september 2006 kl.: 16:54 Athugasemdir (24)

miðvikudagurinn 6. september 2006
Áfram Íssssssland.....

Jamms.....nú er það þjóðarstoltið sem er alveg sullandi bullandi. Fyrst er það Magni.....hann er málið í dag þ.e. að koma honum í úrslitaþáttinn.....eigum við ekki að segja að mar hafi vaknað í nótt kl 4 til að greiða honum atkvæði =) Já ég viðurkenni það alveg að ég horfði ekki á þáttinn sjálfan ! Ég var alveg klár á því að hann mundi standa sig vel....þannig að nú er það bara spurning hvort hann fari ekki í gegn.....það væri alveg fine. Mér finnst það reyndar vera skref niður á við fyrir hann að fara í þetta band þ.e. ef honum byðist það......mér finnst þeir frekar súrir.....ég meina þeir kunna ekki einu sinni að semja lög mar......hei hei hó....!?!? Ömurleg lög.....en hann kannski gæti fengið að túra með húsbandinu,,,,hann væri flottur þar ;-)

Já svo eru það landsliðin okkar, en í dag spilar karlalandsliðið okkar í fótboltanum við Dani hér á Laugardalsvelli......við vonum bara að við verðum ekki rassskelltir.....það er nóg fyrir mig =) Já svo er það karlalandsliðið í körfunni ! Friðrik Erlendur vinur minn og co eru að fara etja kappi við Finna....það væri gaman að fá einnig góð úrslit þar.....þeir eru nú með hörku lið....Jón Arnór Stefánsson, Logi Geirs og Brenton Birmingham.....þannig að það er aldrei að vita hvernig þetta fer !

En já nú er það Íslenska stoltið sem kraumar undir og vonandi er miðvikudagurinn 6. september happadagur fyrir okkur Íslendingana !?
Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 6. september 2006 kl.: 04:55 Athugasemdir (616)

Föstudagurinn 1. september 2006
Looking back !

Eigum við ekki að segja að það sé komin helgi mar.....úff og ég alltaf jafn dullegur að blogga ! En well fyrst það er að koma helgi og svona þá allavega kemur mar með eikkað ;-) Nú er mar að fara á smá skrall í kvöld og svona.....kíkja aðeins á lífið......er að fara í óvissuferð með góðu fólki.......það á að fara fyrst........hahaha rosa fyndið =)



Já stundum er gott að horfa til baka og upplifa það góða sem mar hefur áorkað í þessu lífi.....þetta sagði pabbi þegar þessi mynd var tekin......hehehe......eða hvað ?


Well best að halda áfram.......verð vonandi með eikkað meira spennandi næst....!
Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 1. september 2006 kl.: 05:08 Athugasemdir (7)

laugardagurinn 26. ágúst 2006
Haustið komið.....

Já það má með sanni segja að nú sé sumarið búið ! Það er eiginlega varla hægt að þræta fyrir það....nú er byrjað að kólna og rigna og svona.....þá meina ég rigna meira =)

En haustinu fylgja margir góðir hlutir.....þetta árið verður það enn meira en oft áður þ.e. fyrst og fremst verð ég þrítugur =) Yeeeesss´.......en ég verð reyndar í Berlín á ammalis daginn ;-) Úffff hlakka ekki lítið til maður lifandi !!!! Svo er það í október en þá fer ég á leik í enska boltanum.....jamms það var kominn tími til, hef langað lengi að fara á leik. Leikurinn sem á að fara á er Reading vs. Chelsea en leikurinn er 14. okt. Þóóóóó svo að þetta sé ekki leikur með MAN UTD þá er þetta ágætis byrjun =) En málið var einfalt, ég hef verið í góðu sambandi við Ívar Ingimars (leikmaður Reading) og sagðist koma til Englands á leik með þeim ef þeir kæmust í úrvalsdeildina........nú er Reading í úrvalsdeild og því varð mar að efna loforðið =) England here i come =)

Jamms þannig að þrátt fyrir margt miður sem mörgum finnst haustið bera með sér þá er einnig margt ákaflega spennandi og skemmtilegt líka ;-)

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 26. ágúst 2006 kl.: 04:50 Athugasemdir (21)

Mánudagurinn 22. ágúst 2006
gFerðasaga, 2. bindi

Já það er búið að vera mikið í gangi síðustu daga.....fyrst var það þjóðarinn, svo fór mar í lundaveiði í Elliðaey og ég veit ekki hvað ! Nú er komið að lundaveiðiferðinni.



Málið er þannig að ég hef ekki farið svo ýkja mikið í lundaveiði um ævina......nokkrum sinnum hef ég farið með Finnboga bróðir, Tanna frænda og Ófeigi bróðir......þá fórum við í Kervíkurfjall og Sæfell. Þá hef ég farið með Gústa tengdó útí eyju eyjanna eða Elliðaey. Það er alveg ljóst að Elliðaey ber af öðrum eyjum í eyjaklasa Vestmannaeyja !

Við fórum út í Elliðaey mánudaginn 7. ágúst þ.e. daginn eftir verslunarmannahelgina.....jamms....það var ekki laust við að smá þynnka væri í gangi =) En mar er ýmsu vanur og ég gat einfaldlega ekki misst af þessu. Það var Guðni Hjöll sem skutlaði okkur á tuðru og vorum við lenntir um kl 16:30. Þegar komið var í kofann var byrjað að búa um rúmin og koma sér fyrir. Þá var farið að undirbúa matinn en Gústi tengdó var kokkur þetta kvöld og gerði ég hvað ég gat að aðstoða greifann =) Humar og fiskibollur voru í boði og þótti veislan einkar vegleg hjá okkur félögunum ;-) Við sluppum svo við uppvaskið =) hehe

Kvöldvakan var ekki ýkja beisin, menn frekar framlágir, og því var farið tiltölulega snemma í koju. Það var eiginlega of gott veður þennan dag en útlit var fyrir vestanátt á þriðjudeginum og því var haldið í von um að einhver veiði yðri. Lundinn situr sem fastast á sjónum ef heitt er í veðri og ef það er logn þá kemur fuglinn úr öllum áttum.



Þriðjudagurinn var tekinn snemma, vorum komnir á ról rúmlega 7, en þar sem enn var logn var ekki farið út fyrr en um kl 10. Fyrst um sinn var lítið um fugl þar sem enn var blessuð blíðan en uppúr hádeginu var aðeins byrjað að blása að vestan. Þá fóru hjólin loksins að snúast og við Gústi fórum í sæti sem kallast Steinn. Þar háfuðum eins og vitlausir værum og fór þetta svo þannig að á endanum lágu 100 kvikyndi í valnum og fórum við sáttir og svangir í kofann til móts við hina veiðimennina. Það má segja að það hafi gengið álíka vel hjá hinum þennan dag því við enduðum með tæplega 500 fugla ! Þannig að þetta var að ég held með mestu veiði á einum og sama deginum þetta árið ;-) Reyndar skyldist mér að veiðin í ár hafi almennt ekki verið nógu góð í úteyjunum og á Heimaey líka. En vonandi verður veiðin þá bara enn betri á næsta ári =)



Við Gústi fórum svo heim um kvöldið, því hann var alveg viss um að engin yrði veiðin á miðvikudeginum (spáði blíðu eina ferðina enn) sem auðvitað stóðst. Það voru einungis veiddir rúmlega 60 fuglar á miðvikudeginum. Þannig að þetta var bara alveg þræl fín ferð og er ég afar glaður að hafa fengið að fara með í þessa ferð. Vonandi fær mar að fara aftur einhverntímann seinna ! Ég setti svo fleiri myndir hérna ;-)


Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 21. ágúst 2006 kl.: 15:04 Athugasemdir (20)

laugardagurinn 19. ágúst 2006
Hann er kominn......ferðasaga, 1. bindi

Ussi bussi já það er kominn tími á smá ferðasögu......mar veit varla hvar mar á að byrja......en o well.....við fórum sem sagt til Eyja miðvikudaginn 2. ágúst. Eins og vanalega á þessum tíma var byrjað að henda farangri í gáma ! Bara pirrandi....við áttum ekki pantað fyrir bílinn, en áttum þó koju en NEI það var ekki í boði að mar tæki farangur sinn með sér í klefann !?!? Magnað......en svona er þetta bara. Ferðin gekk bara vel og allir alveg svaka happy. Já þess má geta að Salóme frænka var með okkur Þórey en hún hafði ekki farið á Þjóðhátíð síðan 1985 =) Þannig að það var kominn tími á hana. En eins og ég segi þá gekk ferðalagið vel og við komum okkur vel fyrir þegar á Eyjuna fögru var komið.

Fimmtudagurinn var svo notaður til að undirbúa tjöldun í dalnum. Við keyptum þetta líka magnaða tjald fyrir þjóðarann í fyrra af honum Hirti (mágur hennar Lóu vinkonu :-). Það er alltaf aðal atriðið að reyna eins og mar getur að ná góðu stæði í dalnum.....það skiptir málið að hafa einhvern sitthvoru megin við sig, fyrir aftan sig o.s.frv. en það er til þess að ekki sé verið að spræna utan í tjaldið......sem er bæ ðe vei pirrandi. En við fengum þetta líka fína stæðið á Sjómannasundi og nágrannarnir voru ekki af verri endanum en þarna voru Tanni og Lóa og svo Palli Gúllu.....nei nei þetta var bara snilld. Eins og venjulega var barist um stæðin í dalnum og þetta var allt afar hallærislegt þegar byrjað var........menn hlupu af stað og litum um öxl til að sjá hvað aðrir ætluðu að gera =) haha þetta var svo fyndið. En já eitt.....Hjörtur var svo sá fyrsti til að setja upp tjaldsúlurnar þetta árið =) hehe hann var búinn að blóta þeim sem væru alltaf svona stressaðir í að setja súlurnar upp en var svo bara verstur af þeim í ár =) Bara fyndið.

Svo var það helgin sjálf......úfff þetta var allt bara svo skemmtilegt mar......við fengum góða gesti í tjaldið......bræðurnir Tóti og Hemmi komu og spiluðu....eða allavega Hemmi þetta árið.........sko þetta var annað árið í röð sem Tóti klikkar á að spila í tjaldinu mínu og á næsta ári verður engin afsökun.......hann skal spila.......mér finnst hann alltaf öflugastur á þessum stundum og því skal hann spila næst =) Tóti þetta er áskorun !!!! Ekki má þó gleyma því að Tanni frændi kom og spilaði svoldið líka.......reyndar með gatslitinn putta eftir mikið spilerí en hann lét það ekki á sig fá og spilaðu eins og vindurinn. Mér finnst Tanni minn vera alveg magnaður í nspileríinu.....hann er glang glang flottastur ;-)

M’er finnst alltaf aðalatriðið á þjóðaranum að fá fólk í tjaldið, spila og syngja og hafa gaman........mar getur ekki annað en minnst á þá félaga Hlyn Tryggva og Bogganero en þeir félagar mættu í tjaldið alla dagana og voru alveg magnaðir.......Borgar var að koma á sína fyrstu hátíð og virtist samt sem áður hafa gert þetta í 100 ár.....hann var alveg að fíla sig þarna........ég verð að koma með textann hans við þjóðhátíðarlagið Í brekkunni frá árinu 1989 en Borgar söng þetta svona:

Með rómantík og brenndan lunda,
Með rómantík og brenndan lunda,
Með rómantík og brenndan lunda, lunda já

Í brekkunni er sungið hátt,
Um hetjudáð og höf,
gullkornin sem Geiri og Grani
færðu oss að gjöf.......

Hahaha þeir sem þekkja textann vita að þetta er ekki alveg svona......en þetta var engu að síður bara fyndið.

En já eins og ég segi.....það var svo audda verið að þvælast um allan dalinn m.a. var farið í humarsúpu hjá Gauja Hjöll, heitt súkkulaði hjá Dellí og Gauja........svo var það audda eins og alltaf brennan, flugeldarnir og varðeldurinn. Ekki má heldur gleyma dagskránni sem var alveg mögnuð, Jet Black Joe, Í svörtum fötum, brúðubíllinn, Stuðmenn og ég veit ekki hvað.....þetta var bara gaman. Á mánudeginum var svo tjaldið tekið niður og smá þreyta gerði vart við sig........en þó var mar alveg massa sáttur við helgina og nú er aðeins ár í þá næstu =)

Já svo er það eitt mar......Ófeigur bróðir var svo að syngja með hljómsveit sinni á sunnudeginum mar.......Hugarástand heitir hún. Þetta var svona nett popp/rokk lög sem þeir voru að taka og fannst mér þeir alveg skila þessu vel.......ég var ýkt stoltur af litla bróður mínum þarna =) Flottur !

Heyrru ég þarf að finna svo myndir til að henda inn og svo er önnur ferðasaga á leiðinni......en ég fór á mánudeginum eftir þjóðarann útí Elliðaey með Gústa tengdó og fleiri góðum......þar tók ég slatta af myndum og svona........kem með það síðar....!


Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 19. ágúst 2006 kl.: 06:29 Athugasemdir (3)

fimmtudagurinn 18. ágúst 2006
Með rómantík og brenndan lunda....

Well well, mar er nú enn á lífi sko.....mar er bara búinn að vera í einhverju flensu drullu eftir að mar kom frá Eyjum......já og nei það kallast ekki þynnka. Málið er að við Ófeigur fengum streptakokka sýkingu sem er alveg æðislegt =) En engu að síður....þá er mar enn að koma sér í gírinn en ég ætla að taka smá ferðasögu saman um helgina og svo er ég með slatta af myndum líka til að henda hérna inn.......en þó eru þetta mest myndir af lundaveiðinni sem ég fór í strax eftir verslunarmannahelgina......þannig að stay tuned ;-)

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 17. ágúst 2006 kl.: 14:36 Athugasemdir (2)

miðvikudagurinn 2. ágúst 2006
Eyjan mín bjarta

Jæja, þá er þetta að skella á ! Nú er mar að fara til Eyja með seinni ferðinni með Jólfinum sem kenndur er við Her.....! Skipið fer af stað kl 19:30 þannig að það eru aðeins örfáir klukkutímar í þetta =) Úfff......nú er mar að hlusta á þjóðhátíðarlögin allstaðar...í vinnunni, í bílnum og heima fyrir ;-) Það er sko verið að koma sér í gírinn =)



Undirbúningur hefur gengið vel.......það á að taka frá stæði fyrir tjöldin í dalnum í kvöld.....mér skylst að það sé miðað við kl 18. Svo er bara spurning hvenær menn ætla að setja niður súlurnar !? En þar sem ég verð ekki kominn á Eyjuna fögru þá verð ég að fá staðgengil í það verkefni.......en Ófeigur bróðir græja þetta fyrir stóra bróðir ;-) Það er eins gott að mar verði vakandi svo mar fái viðunandi stæði í þetta ! Það verður allt crasy þegar þetta fer af stað.......var einmitt rétt í þessu að tala við ræðismann minn í dalnum, Bigga frænda Stefáns, en hann sagði allt vera að fara af stað =) Nú er lag !

Well þá er best að fara koma sér af stað......það er kominn heimferðartími.....! Ég kem svo með innlegg á morgun eða eikkað ;-) þ.e. ef ég nenni =)

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 2. ágúst 2006 kl.: 08:51 Athugasemdir (27)

laugardagurinn 29. júlí 2006
Riða....þó ekki til falls =)
Já magnaður dagur er að kveldi kominn.....það var sko aldeilis gaman í dag.....við fórum fjölskyldan, ásamt góðum vinum, í sjóstangveiði á mótorbátnum Andreu. Haldið var frá landi kl 13 að staðartíma og stefnan sett Norð-vestur fyrir Engey (skrýtið því þarna voru Engeyjarprinsar á hverju strái).

Veðrið lék við hvern fingur og rjómablíða og rennisléttur sjór. Var það talið að hátt í 20 stiga hiti hafi verið og varla var hægt að greina að hár bærðist í vindi. Ferðin var í það heila 4 klst og veiðin stóð ekki á sér.....aflinn var hífður í kílóa tugum um borð (c.a. 0,4000 kg :-) En aflinn var engu að síður af hinum ýmsu tegundum s.s. ýsa, þorskur, steinbítur og lísa.



En eins og ég segi þá var þetta alveg þræl skemmtileg upplifun og heldur erfiðara en mar átti von á þ.e. stöngin er aðeins erfiðari viðureignar en þessar hefðbundnu ólíustöðva stangir.

>

Þegar landstímið var svo tekið, var hafist handa við að grilla hluta aflans ofaní mannskapinn og var þá aðallega grillaður steinbítur og þorskur. Hvoru tveggja er alveg hreint góður matur og þá einkum fannst mér steinbíturinn það. En eins og áður segir þá heppnaðist þetta alveg hreint með afbrigðum vel og allir voru vel sáttir þegar stigið var á land aftur. Get ekki annað en mælt með að fólk prófið þetta. Til að skoða fleiri myndir þá endilega kíkið hér

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 29. júlí 2006 kl.: 15:53 Athugasemdir (25)

miðvikudagurinn 26. júlí 2006
Undirbúningur í fullu fjöri
Fékk þessa mynd lánaða af síðuni hans Bogga (Vinir ketils bónda). Úfff það er ljóst að brennan verður án efa mögnuð í ár.....sem aldrei fyrr......hmmm bara spennandi.....



En mar reynir að koma með fleiri myndir þegar þær berast ;-)

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 26. júlí 2006 kl.: 06:40 Athugasemdir (18)

þriðjudagurinn 25. júlí 2006
10 dagar í hátíð hátíðanna !
Maður lifandi sem og það einfaldlega ekki þetta er að skella á það er bara svo einfalt. Reyndar má alveg minnast á síðastliðna helgi (þó ekki karl) að við fórum þá í útilegu upp að Kolstðum (nærri Húsafelli, þó ekki Páli á Húsafelli) en þar var Lúmex fjölskyldan að halda upp á 50 ára ammali og svona......þetta var alveg fine þarna, Írafár að spila, Páll Rósinkranz tók nokkur lög og ég veit ekki hvað og hvað.....bara magnað.

En svona svo mar einfaldlega missi sig ekki yfir því að þjóðhátíðin er á næsta leiti þá má líka nefna sjóstöngina sem fyrirhuguð er um helgina.....jamms við erum að fara fjölskyldan meira og minna eins og hún leggur sig í veiði......úff það verður án efa gaman =)

Annars er það bara mál málanna en eins og þáður koma fram þá eru aðeins 10 dagar í hátíðina og þá vill ég endilega benda fólki á eitt þræl fínt Þjóðhátíðarlag sem pabbi gerði fyrir nokkrum árum og gaf út árið 1991. Þetta lag heitir Eyjaskeggjar og er alveg magnað í stemminguna sem framundan er......þetta lýsir svo vel hvernig við Eyjamenn erum í hugsun þ.e. svo létt og hress........kíkið á þetta hérna ;-)

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 25. júlí 2006 kl.: 01:23 Athugasemdir (20)

laugardagurinn 22. júlí 2006
Þjóðhátíðarlögin....
Það er óumflýjanlega einn mikilvægasti þátturinn í undirbúningi fyrir þjóðhátíðina eru þjóðhátíðarlögin. Í morgun var verið að frumflytja þjóðhátíðarlagið 2006 en það var Magnús Eiríksson sem samdi lag og texta. Ég var náttúrulega kominn á ról til að heyra frumflutninginn og verð að segja að allavega við fyrstu hlustun varð ég ekkert sérstaklega hrifinn ! En ég gef ekki upp alla von....hver man ekki eftir að hafa útskúfað Lífið er yndislegt (árið 2001) en svo kemur á daginn að það er glang, glang besta lagið frá upphafi =) Lag og texta fyrir þjóðhátíðarlagið í ár má finna hér


Nýleg mynd af undirbúningnum í dalnum....fengin að láni af dalurinn.is

En á meðan getum við yljað okkur við gömlu góðu lögin og er ég búinn að henda nokkrum á vefinn.....þið getið séð textann og sótt lagið hér ;-)

Ég bæti svo við listann svona í rólegheitum en byrjum á þremur kvikyndum ;-)

Endilega tjékkið á þessu og njótið og gerum okkur klár fyrir Þjóðhátíð 2006 =)
Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 22. júlí 2006 kl.: 05:17 Athugasemdir (18)

föstudagurinn 21. júlí 2006
Þjóðhátíðin á næsta leiti
Já það er alltaf að styttast i hátíðina sem kennd er við þjóð......nú er bara verið að undirbúa sig.....mar er búinn að græja frí og svona.......við ætlum að fara til Eyja miðvikudaginn 2. ágúst en verðum svo alla vikuna á eftir á Eyjunni fögru ;-) Má segja að mar þurfi orðið aðeins lengri tíma til að jafna sig =) Þetta verður bara fine !

Svo er það þjóðhátíðarlagið.....það verður frumflutt í fyrramálið á Bylgjuni nánar tiltekið kl 11:00 en þetta er skv. frétt á dalurinn.is.......hér má sjá þessa frétt ;-)

En allavega.....góða helgi ;-)
Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 21. júlí 2006 kl.: 12:04 Athugasemdir (720)

Page:  << Prev  1  2  3  4  5  6 7  8  9  10  11  12  13  14  15  16  17  18  19  20  21  22  23  Next >>


Powered by Web Wiz Journal version 1.0
Copyright ©2001-2002 Web Wiz Guide