| Hver er ég? | Bloggið | Myndir | Vísuhornið | Ýmislegt |
.:Lýðs:. !

föstudagurinn 22. desember 2006
Búúúúúúúú

Jamms ég get ekki annað en búað á þetta allt saman ! Við áttum að fara með Herjólfi í dag þ.e. með seinni ferð en NEI henni var frestað !? Þetta er sem sagt 3ja ferðin sem frestað er á jafn mörgum dögum :-/ En við eigum pantað með skipinu með fyrri ferð á morgun.....vonum bara að það gangi eftir.

Annars...þá eru nú jólin á næsta leiti og langar mig þá að senda hérna jólakveðju sem pabbi bjó til.


Það er gott að eiga góða vini
og geta sent þeim nokkur lítil stef.
Ég lærði það í lífsins skúr og skini
að ljósið er það besta sem ég hef.

Framundan er hátíð ljóss og friðar,
frelsarans er minnst um byggð og ból.
Amstri dagsins ýtum við til hliðar
og eigum saman dýrðarinnar jól.

Gleðileg jól annars og hafið það gott yfir hátíðirnar ;)

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 22. desember 2006 kl.: 13:37 Athugasemdir (8)

fimmtudagurinn 21. desember 2006
Heimaey.....hér kem ég

Wellz, nú er að styttast í júlen eins og óðfluga. Við erum að fara til Eyja annað kvöld með Jólfinum þ.e.a.s. ef ekki verður frestað för vegna veðurs. Það hefur nú í haust verið nokkuð um að frestað hafi verið.....meira en oftast áður. Og svo vilja menn fara sigla í bakkafjöru ! Þá væri eins auðvelt að fara til Eyja með flugi og með skipinu !? Well svona er þetta bara.....vona bara að fáist stærra skip og siglt verði áfram í Þorlákinn.

Ammali

Já mikið er um ammali þessa dagana.....í fyrra dag átti amma mín ammali en skvísan varð 85 ára. Við bræður og pabbi ákváðum að nú skyldum við ná okkur niður á ömmu ! Málið er að amma er mikið fyrir glingur og að stríla sig upp. Notar þá auðvitað líka ilmvötn og varaliti. Svo á mannamótum þá stimplar sú gamla mann alltaf og rauður varaliturinn leynir sér ekki á kinnum okkar =) Þannig að ég keypti varalit, við settum allir á okkur og einfaldlega stimpluðum ömmu bara til baka ! Sú gamla var eins og umferðaljós í framan =) hehe eldrauð af öllum varalitnum.....snilld.



Já svo í gær átti tengdamútta ammali....en við erum nú að fara til þeirra á morgun.....úfff hlakka ekki lítið til ! Já og tengdapabbi átti ammali þann 1. des, þannig að nóg er um ammali í fjölskyldunni okkar ;-)

En allavega, þá eru jólin framundan en ég á líklega eftir að blogga eitthvað aðeins meira áður en jólin eru mætt á staðinn ;-)
Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 21. desember 2006 kl.: 01:33 Athugasemdir (9)

sunnudagurinn 17. desember 2006
Eins og illagerðir hlutir

Vááá hvað er eiginlega stutt í jólin ! Það er eiginlega með ólíkindum hvað þetta líður allt hratt. En engu að síður þá hlakkar mig alveg til að komast heim til Eyja og slappa svoldið af. Ég held það sé varla hægt að komast á mikið friðsælli stað en á Heimaey. Reyndar má ekki gleyma eyju eyjanna (nei ekki Eyju Rós) eða Elliðaey en hún er einfaldlega paradís á jörðu ;-)

Nú stendur yfir undirbúningur fyrir jólin.....en við Þórey fórum í Smáralindina í gær að versla, sem er ekki frásögum færandi, nema hvað það er fyndið með karlmennina sem fara með konunum að versla. Við fórum í þó nokkrar búðir og venjulega stend ég fyrir utan og bíð bara en í gær ákvað ég að fara með inn. Það var svoldið gaman að fygljast með þjáningarbræðrum sínum inní svona búð. Þarna standa karlmenn, einfaldlega með skottið á milli lappana, með hálf hangandi haus og virka eins og uppvakningar af gleðinni. Og það klikkar yfirleitt aldrei að kinkað er kolli til manns, svona til að láta vita að maður er ekki einn í þessu =) Mér finnst þetta alltaf jafn fyndið. Já og mér leiðist ekkert meira en búða ráp !

Saga knattspyrnufélagsins Týss
Já nú var að koma út bók sem allir sannir Eyjamenn og Týrarar einna helst ættu að eiga. Þetta er að sjálfsögðu saga Týss ! Þarna er fjallað um sögu félagsins og hefur bókin að geyma fjöldann allan af myndum úr leik og starfi félagsins. Þetta ætti náttúrulega að vera jólagjöfin í ár. En það er ljóst að ég ætla kaupa mér eintak. Til að fræðast meira um þessa útgáfu þá er hér pistill af eyjar.net



Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 17. desember 2006 kl.: 11:18 Athugasemdir (4)

þriðjudagurinn 12. desember 2006
Dagur íslenskrar tónlistar

Jæja, það hefur margt drifið á mína daga undanfarið. Ég kláraði mitt síðasta próf sl. þriðjudag (akkúrat vika síðan) og hef síðan þá verið heldur rólegur í tíðinni. En ef ég næ þessu prófi þá er það bara útskrift í janúar.......vonandi =)

En í dag er víst dagur íslenskrar tónlistar. Ég vill hér með óska öllum, þeim sem það taka til sín, til hamingju með daginn ;-) En síðast en ekki síst eru það Pabbi og Steini bróðir sem fá frá mér heillaóskir því þeir hafa verið duglegir að semja lög og texta sem sóma sér vel við íslenska tungu. En pabbi er t.d. búinn að gefa út 4 plötur sem hafa selst í yfir 22.000 eintökum ! Það er nú ekki slakt =)

Að endingu vill ég minnast félaga sem lét lífið um helgina. Kæri vinur hvíl í friði ;-)

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 12. desember 2006 kl.: 01:39 Athugasemdir (26)

mánudagurinn 4. desember 2006
Ekki þverpólitísk samstaða !

Jæja, helgin rétt liðin og ný vika tekin við. Þessa helgina var verið að læra undir próf en ég er að fara, að öllum líkindum, í mitt síðasta próf =) En það er eins fallegt að maður standi sig.

En helgin var engu að síður ekki alveg áfallalaus hér á landinu. En það varð alveg skelfilegt umferðaslys á Suðurlandsvegi. Nú er umræðan sú að tvöfalda þurfi Suðurlandsveg. En þá heyrir maður að líklega verði það ekki á næstunni þar sem ekki er þverpólitísk samstaða um málið !?!? Hmmmm hvernig er hægt að vera þræta um svona mál þegar fólk er einfaldlega að tapa lífi þarna ? Kannski er auðvelt að segja þetta hér en ég einfaldlega get ekki alveg skilið að þetta verði gert. Ég held ég tali fyrir marga kjósendur þegar ég segi að þetta er það sem fólkið vill ! Eru það ekki við sem kjósum þetta fólk á þing ? Vonandi geta menn fundið einhverja leið til að fara í þessar framkvæmdir. Kannski má fresta byyggingu á tónlistarhúsi við Reykjavíkurhöfn !

Áskorun er kominn á vefinn þ.e. hægt er að skrá sig á lista yfir þá sem vilja að stjórnvöld fari strax í að tvöfalda Suðurlandsveg

En o well.....best að halda áfram að læra undir þetta blessaða próf.

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 4. desember 2006 kl.: 01:17 Athugasemdir (338)

mánudagurinn 27. nóvember 2006
Fullt í fréttum

Well....enn ein vikan komin af stað. Engu að síður fer maður saddur í þessa vikuna þar sem ég er enn vel mettur eftir magnað jólahlaðborð á föstudaginn ;-)

En já svo er það fréttamennskan....en fréttamenn hafa farið sér mikinn undanfarna daga svo sem í málum Árna Johnsen en honum urðu á tæknileg mistök að kalla alvarleg brot sín, í embætti, tæknileg mistök ! Einkar klaufalegt finnst mér.....ég meina hann er að fá annað tækifæri og það fá ekki allir.

En svo eru það íþróttafréttamennirnir sem eru mis hittnir. Það er ekki langt síðan að frétt kom á visir.is þess efnis að Lessa væri gengin til liðs við knattspyrnuliðs Fylkis ! En konan hét einfaldlega þessu nafni. Eins og sjá má hér að neðan að þessum sem skrifaði þessa frétt hafi ekki verið almennilega vaknaður þegar hann skrifaði hana......



Leysa af hólmi, af leysa af hólmi.....eitthvað =) Hehehe bara fyndið. En eins og ég segi þá getur þetta verið eins misjafnt og fólkið er flest.

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 27. nóvember 2006 kl.: 06:04 Athugasemdir (46)

föstudagurinn 24. nóvember 2006
Booooooooorða !

Nú er mar á leið í jólahlaðborð á Hótel Sögu........úfff þetta er alltaf með því skemmtilegra sem mar gerir á hverju ári =) Það er svakalegur matseðillinn en ég ætla nú ekkert að vera telja upp allt á honum en engu að síður eru svartfuglabringur m.a. í boði sem forréttur....mmmmmmmmmm.....get ekki beðið =)

Annars verður helgin frekar róleg.....það er nú að styttast í jólagleðina og svona....þannig að mar verður bara rólegur fram að því ;-)

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 24. nóvember 2006 kl.: 11:04 Athugasemdir (11)

mánudagurinn 20. nóvember 2006
Brrrrrrrrrrrrrrrrrrrr....

Það má með sanni segja að veturinn sé kominn ! Úfff það hefur aldeilis snjóa hérna síðustu daga og kom svo sem ekkert á óvart að maður þurfti að moka bílinn út í gær. Já ég var á leið upp í skóla til að undirbúa próf en NEIIIII þú ferð ekki svo auðveldlega vinurinn. Þannig að ég tók mér skóflu í hönd og hófst handa við að moka. En allt kom fyrir ekki og ég var dreginn af nágrannakonunni (en hún á sko jeppa ;-) af stað =) En þess má reyndar geta að Yarisinn okkar er einfaldlega frosinn fastur við malbikið þessa stundina og hann verður varla færður í bráð =)


Tók þessa mynd út um gluggan í morgun

En eins og má sjá á myndinni hér að ofan, sem ég tók í morgun, að þá hefur heldur betur bætt í snjóinn hér á stór Hafnarfjarðarsvæðinu undan farna daga. Myndin er smá spúkí þ.e. ef glöggt er að gáð þá er eins og Það sé stigi upp undir himinn þarna =) Stairway to heaven ! Úfff nú á ég eftir að fá einhverja strangtrúaða hingað sem vilja ólmir komast á svalirnar mínar og klífa upp til himnaríkis =)

En svo er það aðal pæjan, en hún Dagmar Ósk systir mín átti afmæli á laugardaginn síðasta (þann 18. nóvember skiluru :-). En þessi pæja varð þá 15 ára.....úúúú pæææææjan ;-) Til hamingju elsku systir mín ;-)

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 20. nóvember 2006 kl.: 01:54 Athugasemdir (13)

fimmtudagurinn 16. nóvember 2006
Dagur íslenskrar tungu

Já þannig er það nú....í dag er dagur íslenskrar tungu. Úff þá er eins gott að vanda sig. Mar er náttlega alveg á því að þetta er eikkað sem er nauðsynlegt til að viðhalda tungumálinu. Hehehe nei segi bara svona.....en engu að síður þá á víst að gera margt í tilefni dagsins og dagblöðin eru uppfull af allskyns umfjöllunum um málefnið. Sem dæmi þá er hér frétt af mbl.is þar sem fjallað er um opnun réttritunar vefsetursins.....! Ég var að lesa að íslensk málstofa (heitir víst eitthvað annað í dag) væri með einhverja dagskrá og eru menn þar á bæ að taka við allskyns spurningum er snýr á íslenski málfari. Hmmmm skemmtilegt starf það =)



Einnig á að vera eitthvað húllum hæ í skólanum mínum í dag......verða víst einhverjir fyrirlestrar og svona....einnig mun Magga Stína taka lagið og snillingurinn Steindór Andersen mun fara með rímur ! Ef fólk kannski veit ekki hver Steindór Andersen er þá hefur hann m.a. gefið út efni með Sigur Rós. Bara flottur kall.

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 16. nóvember 2006 kl.: 05:00 Athugasemdir (8)

mánudagurinn 13. nóvember 2006
Borat.....!

Well....helgin var alveg fine í þetta skiptið. Hún var svona heldur róleg en á laugardaginn fórum við út að borða með vinafólki okkar (Tanni, Lóa, Heimir og Ásdís....já og auðvitað frænkur mínar Kamilla og Emma Rakel ;-) og varð Ruby Tuesday fyrir valinu. Það er aldrei auðvelt að velja einhvern einn stað sem allir eru sáttir við en þarna varð lendingin tiltölulega þæginleg =) En eftir að hafa gætt sér að ágætis mat og mikið búið að spjalla og skrafa var ákveðið að fara í bíó. Það er svo sem ekki frásögum færandi nema hvað að myndin sem varð fyrir valinu var BORAT =) Sko málið er í raun mjög einfalt.....ef þú hefur húmor þá ferðu að sjá þessa mynd......en ef þú hefur ekki húmor þá færðu hann á þessari mynd !



Eins og sjá má á þessari mynd þá er ýmislegt mis fallegt sem kemur fram í þessari mynd en þetta er ekkert rugl.....þarna eru margir svokallaðir "sketsar" þar sem Borat (sem á að vera frá Kasakstan) í sakleysi sínu tekst á við nútímann og þá viðkvæmni sem honum getur fylgt =) Úfff það er ekkert svo auðvelt að lýsa þessu án þess að segja of mikið......endilega farið bara að sjá hana ;-) Ég mæli allavega með henni.

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 13. nóvember 2006 kl.: 03:01 Athugasemdir (14)

föstudagurinn 10. nóundaber 2006
Sjúddirarirei

Get nú ekki annað en sent ammaliskveðju hérna en Gylfi Ægis, föðurbróðir minn, er 2X þrítugur í dag ! Jamms kallinn á stórammali og get ég ekki annað en sent honum kveðju hér með.


Þessi mynd var tekin á þjóðhátíðinni 2005 en þetta var Gylfa Ægis klúbburinn að hitta greifann =)

En þess má geta að ég ætla fagna deginum með því að spila Minning um mann 60 sinnum =)

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 10. nóvember 2006 kl.: 02:36 Athugasemdir (3)

föstudagurinn 10. nóvember 2006
Tívolíið í Hafnarfirði ?

Það má nú með sanni segja að eftir að hafa tekið góðann rúnt um Hafnarfjörðinn þá líður manni eiginlega eins og að maður hafi verið í einskonar rússíbanaferð ! Ég get eiginlega ekki sagt til um hversu mörg hringtorg eru hérna......ég var orðinn svo ringlaður eftir ferðina að ég bara týndi tölunni =) Það má með sanni segja að þetta sé orðin ein HRINGAVITLEYSA hérna. En svo er það spurningin kannski.....eru þessi hringtorg að leysa þau vandamál sem væntanlega voru fyrir þ.e. eru færri slys að eiga sér stað ? Er umferða hraðinn almennt minni ? En mér virðist þetta allavega vera ágætis arftaki tívolísins í Hveragerði......vantar bara Eden hingað og þá er maður góður ;-)

Ferð frestað vegna veðurs !
Það var nú á dagskrá að fara til Eyja þessa helgina en nei.....það er auðvitað bilað veður og Herjólfur er víst ekki einu sinni farinn af stað ! Þannig að ekki fer maður til hinnar fallegu suðurhafseyju þá helgina. Þannig að í staðinn verður bara slappað af hérna heima.....látið fara vel um sig ;-) Það er eina vitið.

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 10. nóvember 2006 kl.: 01:41 Athugasemdir (7)

miðvikudagurinn 8. nóvember 2006
Ármann á alþingi ? mmm nei Ármann í ruslið !

Já maðurinn á lifanda lífsins göngutúr.....nú eru prófkjör í fullum gangi hjá öllum helstu stjórnmálaflokkum landsins. Póstkassinn minn hefur ekki farið varhluta sf frambjóðendum þessara flokka. Það líður ekki sá dagur að í póstkassanum leynist áróðursplagg frá einhverjum frambjóðandanum ! Klausur eins og Ármann á alþingi ? Kjósið Ármann í 2. sæti lista sjálfstæðismanna í suðvesturkjördæmis.....eða hvað þetta heitir allt saman!? En já svo má nú ekki gleyma að minnast á símhringarnar......hehehe vá maður ! Það er hringt á hverju kvöldi.....það er meira að segja búið að hringja tvisvar hingað og spyrja um nágranna okkar !!! Hmmm augljóst að maður er á einhverjum úthringilista einhversstaðar......veit ekki alveg hvernig mér hlotnaðist sá heiður.....hef nú aldrei verið flokksbundinn......allavega ekki ennþá =) En annars þá tekur þetta allt enda og maður getur fengið að vera í friði fyrir þessu.....nema Gallup kannski.....þeir þurfa auðvitað að hringja líka.....til að kanna hvort maður ætli að taka þátt í þessu prófkjöri eða eitthvað annað =) hehe svona er þetta bara ;-)

En já, kannski að öðru meira spennandi ! Ófeigur bróðir minn sendi mynd í veðurmyndasamkeppni NFS á dögunum og komst í 30 manna úrslit með eina myndina sína !! Það er nokkuð gott hjá kallinum en hann hefur aðeins verið að stunda þessar myndatökur síðan í mars á þessu ári ! Flott hjá honum ;-) En endilega kíkið þarna inn og kjósið myndina hans ;-) Hann á það alveg skilið....flott mynd af smáeyjunum í þoku ! Engu að síður eru margar fínar myndir þarna.




Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 8. nóvember 2006 kl.: 07:19 Athugasemdir (22)

fimmtudagurinn 2. nóvember 2006
Jafnrétti er umræðan þessa dagana

Já þa er víst allt þörf á að ræða þessu brýnu málefni sem jafnrétti kynjanna er. Í gær var heldur skemmtileg frétt á mbl.is en þar fer ein kvennsan í mannréttindanefnd mikinn í þessari umræðu. En hún kom með þá tillögu að í stað þess að vera með grænan kall í umferðaljósunum þá vill hún að sett verði græn kona ! Hmmm gott og vel en væri ekki svoldið þarfara að taka á aðeins stærri málefnum í þessum flokki s.s. launamál eða annað merkilegra ? Kannski þykir baráttan þar vera það erfið að ákveðið hafi verið að byrja alveg á botninum og vinna sig svo upp ?! Hver veit ? Hér má svo sjá fréttina í heild sinni ;-)

En nú er vikan senn á enda.....þetta líður svo hratt núorðið =) En mar á von á heimsókn um helgina.....tengdamútta er að koma sem og Lovísa og co ;-) Já svo á sunnudaginn kemur mútta mín og systir til mín...þannig að það er bara nóg um að vera næstu daga.....það er bara gott mál.
Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 2. nóvember 2006 kl.: 04:46 Athugasemdir (88)

mánudagurinn 30. október 2006
Uuuuuuuuuuuuuu

Hahaha.....mögnuð helgi er afstaðin. Ég fór á árshátíð Duffa á laugardaginn ;-) Þarna voru auðvitað mættir helstu snillingar Duffa frá upphafi s.s. Smári Stefáns, Boggi kúlusmiður og Diddi dvergur, en hann og Smári eru ekkert líkir ! En þarna var margt skemmtilegt í gangi og m.a. kynntur nýr þjálfari......enginn annar en Atli Eðvalds =) Hehehe og kallinn fór alveg á kostum þarna enn hann var á sínum tíma aðalþjálfari ÍBV 1995 eða svona. En já eins og ég segi svo vorum við Tanni frændi með tvífaragrín og svona.....það var alveg ágætt en meðal tvífara var Biggi frændi og Sigurdís Ösp =)

En já mar.....svo er nú verið að koma sér í gang aftur.....þetta er allt að koma !

Var að prófa þessa sneðugu vefsíðu.....en þarna póstaru inn mynd og leitar svo í myndasafni af frægu fólki sem þú eða sá sem þú setur myndina af líkist. Eins og sést þá kemur oftast eikkað skemmtilegt úr þessu þar sem ekki er farið eftir HÚÐLIT eða hárlit =) Snilldin Einar.

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 30. október 2006 kl.: 02:44 Athugasemdir (270)

mánudagurinn 23. október 2006
Grallarar í Sandgerði

Frænka mín hún Selma Hrönn var að gefa út barnabók nýverið sem vert er að kíkja á. Þessi bók er fyrir börn á aldrinum 2-6 ára og er hún í bundnu máli (á vísna formi). Það má segja að þessari bók svipi svoldið til bókanna um Snúð og Snældu sem mar las sem barn sjálfur (já og geri enn ;-) en nú eru það kisurnar Glingló og Dabbi sem búa í Sandgerði =)



Einnig er vert að minnast á vefsíðuna sem var opnuð á sama tíma og bókin kom út en þar má spila hina ýmsu leiki, lita í litabók og margt fleira spennandi ;-)
Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 23. október 2006 kl.: 15:37 Athugasemdir (6)

mánudagurinn 23. október 2006
Mamma þín er kona...

Eða svona í flestum tilfellum......en jamms...það hefur margt gerst síðan ég bloggaði síðast. Ammali hafa komið og farið en þar ber helst að nefna Jónatan frænda en hann varð 29 ára þann 19.okt. Til hamingju með það frændi ;-) Já svo hefði Sjonni afi orðið 83 ára þann 21. okt og já og svo átti Mikael Máni litli frændi minn ammali í gær eða þann 22. okt ;-) Fullt af ammalum þessa dagana.

En ég fékk póst frá Steina bróður mínum í dag, sem er ekki frásögum færandi nema hvað þarna kom fram. Málið er að það er mynd sem var gerð og er hún sú stærsta sinnar tegundar þ.e. hvað varðar í bætum sem og pixlum. En mynd þessi er 8.6 billion pixlar !! En hún er samsett úr 1145 myndum (sem hver er 12.2 mega pixlar) og endanleg stærð er 84 Gígabæt =) Magnað.....! En það tók víst 13 klst að taka þessar myndir en það tók svo aftur 3 mánuði að setja þetta saman. Myndina má finna hér !
Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 23. október 2006 kl.: 15:29 Athugasemdir (47)

þriðjudagurinn 17. október 2006
Höfuðkúpubrot, hótel bruni og tvö rauð spjöld....

Jamms mar er kominn aftur á klakann eftir vel heppnaða ferð til Englands =) Eins og fyrirsögnin segir til um þá var nóg um að vera í þessari ferð og á leiknum sem við sáum. Það kviknaði einnig eldur á hótelinu okkar á föstudags nóttinni, þó ekki stór bruni þar á ferð en tæma varð hótelið á meðan unnið var að niðurlögum eldsins ;-)

Leikurinn sjálfur var tær snilld frá upphafi til enda.....margir töldu að þetta yrði auðveldur sigur hjá Chelsea en þeir máttu hafa sig alla við til að ná þessum 3 stigum sem í boði voru. Það var reyndar sjálfsmark sem skildi liðin að á endanum ! Það var Ívar Ingimarsson sem gerði þetta sjálfsmark en hann gat ekki mikið gert til að afstýra því. Engu að síður svekkjandi þar sem við komum nú aðallega til að sjá hann spila :-/ En eins og ég segi þá var leikurinn þrælgóð skemmtun og umgjörðin hjá Reading er alveg til fyrirmyndar ! Mæli með þessum stað og hótelinu fyrir þá sem vilja sjá íslendinga spila í úrvalsdeildinni ;-)



En já eins og ég segi þá var þetta ein alsherjar veisla frá föstudegi til sunnudags og ferðin vel lukkuð í alla staði. Auðvitað hefði verið gaman að fá betri úrslit úr leiknum en svona er þetta bara stundum.

Ég stefni svo á að setja fleiri myndir frá ferðinni á næstunni ;-)

Innlegg eftir Sigurjón Lýðsson þann 17. október 2006 kl.: 08:22 Athugasemdir (22)

fimmtudagurinn 12. ágúst 2006
England hér kem ég =)



Jamms...á morgun er málið....ég er að fara til Englands, yeah baby yeah =) Úff ég er búinn að bíða lengi eftir þessu þ.e. að fara á leik í enska boltanum og nú er þetta að rætast ;-)

Það verður farið í kef city um 14 á morgun og flugið er svo kl 16:10.....mar fær sér líklega einn eða tvo (lítra) af öl á barnum áður en farið verður í vélina =) En þetta er víst c.a. 3 tíma flug. Það er náttlega flogið til London Þannig að við ættum svo að renna í kvöldmatinn þegar út er komið.....usss ekki verra =) En ég er spenntur, ekki bara fyrir leiknum en Tjallinn er þekktur fyrir massa breakie þ.e. Egg og Beikon og ég veit ekki hvað......mmmm.....spennandi að prófa eikkað nýtt. En já það verður án efa tekið á einum eða tveim annað kvöld og svo er það laugardagurinn sem skiptir öllu. En leikdagurinn fer meira og minna allur í þetta.....farið snemma á fætur....´tjékkað á stemmingunni á svæðinu fyrir leik og svona.....svo náttlega leikurinn sjálfur.....þá verður án efa tjékkað á stemmingunni eftir leik =) Já og enn og aftur fengið sér einn eða kannski tveir =)

En já eins og mar segir....þá er spennandi ferð framundan og mar er eiginlega bara spenntur.....! Góða helgi annars allir ;-)

ÁFRAM READING !
Púúúú á Chelski =)
Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 12. október 2006 kl.: 14:46 Athugasemdir (20)

laugardagurinn 7. október 2006
2006.....það er árið

Jamms, fólki finnst ég greinilega hafa elst umfram efni undanfarna daga =) hehe það er ágætt.....þá er tilgangnum náð....ef mar fær feedback frá einhverjum hérna þá þýðir það að mar er að gera eikkað rétt =)

En já við skulum samt enn og aftur staldra við árið í ár....2006....málið er, eins og áður hefur komið fram, að ég varð 30 ára þann 17. sept.....en í gær (þann 6. okt) varð félagi minn og góður vinur, Friðrik Erlendur Stefánsson, 30 ára einnig.....að hugsa sér....ég er eldri en hann.....samt kem ég líklega aldrei til með að verða stærri en hann.....ekki þá nema á verri veginn.....ég gæti safnað góðum bjórbelg og orðið "stærri" þannig =) En annars, Frikki.....til hamingju með áfrangann ;-) Við erum glang, glang, flottastir......ennþá ;-)



En já.....helgin er gengin í garð.....já og ég hef haft hugann við margt skrýtið um æfina....þannig að.....stay tuned....ég er að melta þetta allt saman !

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 6. október 2006 kl.: 17:00 Athugasemdir (125)

Page:  << Prev  1  2  3  4  5 6  7  8  9  10  11  12  13  14  15  16  17  18  19  20  21  22  23  Next >>


Powered by Web Wiz Journal version 1.0
Copyright ©2001-2002 Web Wiz Guide