| Hver er ég? | Bloggið | Myndir | Vísuhornið | Ýmislegt |
.:Lýðs:. !

föstudagurinn 23. mars 2007
Mót....tímamót ? Kannski !

Jæja, þá er helgin gengin í garð....nú er mar bara að farast úr spenningi útaf íslandsmótinu í Boccia sem fram fer í laugardalshöllinni á morgun. Ég frétti að sjóferðin hjá íþróttafélaginu Ægir hafi gengið að óskum og allir búnir að koma sér vel fyrir á gististaðnum. Svo hefst alvaran kl 10 í fyrramálið en þá leikur Ægir 2 (liðið hennar Dagmar systir) og ef ég man rétt þá aftur kl 10:35. Síðasti leikurinn þeirra er svo um hádegisbilið ;-) Við Ófeigur og Héðinn Konn mætum auðvitað galvaskir á staðinn og styðjum við bakið á okkar fólki en í ár er Ægir með 3 lið ! Þannig að nóg verður um að vera. Úrslitakeppnin er svo á sunnudaginn og mótinu svo slúttað á sunnudagskvöldinu með rusalegu lokahófi. En ég á ekki von á öðru að krakkarnir eigi eftir að standa sig eins og alltaf.

ÁFRAM ÆGIR !!!!

Nánari upplýsingar má svo finna á heimasíðu liðsins: www.ifaegir.com ;-)

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 23. mars 2007 kl.: 17:16 Athugasemdir (6)

þriðjudagurinn 20. mars 2007
300

Well well, stundum er mikið að gera og þannig er það þessa dagana. Fyrst og fremst má nefna það að við fórum í bíó á sunnudaginn en þar sáum við hina mögnuðu 300. Þetta er einfaldlega svakalega flott gerð mynd og magnað hvað þessir menn eru óheyrilega vaxnir líkt og ég. Held að mynd af mér hafi verið notuð til að græja magavöðvana á aðalleikarann t.d. Hehe. Ég get ekki annað en mælt með myndinni en hún fjallar um orrustu sem háð var við strendur Spörtu um 400 f.kr. en það voru Persar sem voru við það að leggja heiminn að fótum sér. Þetta er einkar vel gerð mynd og svakalega flott bardagaatriði í henni. Kíkið á nánari upplýsingar hér !



Já svo er nú stórt ammali á morgun, en Gvendur Sveins vinur minn verður 2*20 =) Til lukku með það vinur ;-)

En hei já svo eitt.....ég var með bræðrum mínum í veislusal Íshesta um helgina og þar á einni hurð voru svolítið skemmtileg skilaboð á ensku:

"Please take of your horse shues
before entering..."

Hmm eru það ekki skeifur ??

En svona að endingu, þá er systir mín að koma á föstudaginn til að keppa á íslandsmótinu í Boccia og ég er að springa af spenningi.....þetta verður bara gaman. Já og Ófeigur bróðir á ammali svo á fimmtudaginn =) Víííí.

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 20. mars 2007 kl.: 10:11 Athugasemdir (9)

fimmtudagurinn 15. mars 2007
Engin vorkun hér

Well, þá er enn ein vikan að klárast og helgi framundan. Það er varla að mar er búinn að blogga einu sinni þá er vikan búin =) En svona er þetta bara.

Ég verð að viðurkenna það að ég er nú ekki mikið pólitískt þenkjandi maður en er engu að síður með annað eyrað á lofti (kemst ekki hjá því þessa dagana þar sem allir fréttatímar snúast um alþingi t.d. :-). En nú er þingið að fara í sumarfrí (magnað að vera þingmaður alltaf í góðu fríi) en það er um að gera að hleypa þessum greyjum í hvíld. Það hefur farið mikið fyrir því í fjölmiðlum undanfarið að svo og svo mörg málefni liggi fyrir áður en fríið skellur á. Ég verð að viðurkenna að ég vorkenni þessu fólki ekkert. Finnst stundum eins og alltof langur tími fari í að ákveða ekki neitt ! Það má sem dæmi nefna að fyrir einhverju síðan var nefnd stofnuð til að leggja drög að bættri þjónustu við blind börn í skólakerfinu. Árið 2004 var ákveðið að taka þetta málefni fyrir. En hvað svo....nú var verið að segja, 3 árum seinna, að framkvæmdarnefnd hafi verið stofnuð og málið væri í "vinnslu" !?!? Hmmmm hljómar einkar vel svona rétt fyrir kosningar ! Magnað að foreldrar þurfi að leita til annarra landa með börnin sín því að hlunkarnir á alþingi eru enn að ákveða hvað skal gera ef gera á eitthvað yfir höfuð. Well svona er Íslandi í dag.



En annars er maður orðinn þræl spenntur fyrir því að komast í svartfuglsveiði. Það er óskandi að komast í 2-3 túra og ná sér í smá fugl.....úfff bara góður matur =) En já ég segi þá bara annars góða helgi ;-)

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 15. mars 2007 kl.: 16:12 Athugasemdir (151)

þriðjudagurinn 13. mars 2007
Hann á ammal í da !

Já hann Steini elsti bróðir minn á ammali í da og vill ég hér með senda honum kveðju frá okkur á Suðurvangi 25 a ;-) Til hamingju með daginn.


Ammalisbarnið

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 13. mars 2007 kl.: 08:47 Athugasemdir (20)

mánudagurinn 12. mars 2007
Palli Gúllu

Jamms, nú er enn ein helgin afstaðin og ný vinnuvika farin af stað. Helgin var engu að síður góð....vorum með tengdó hérna í heimsókn. Þannig að þetta var rólegt bara.

En við kíktum m.a. í Kolarann....alltaf jafn skemmtilegt að fara þangað....mikið af skrautlegu liði og svona. Við hittum t.d. á síðasta eftirlifandi Gúllu peyjann, Rabba Gúllu en hann var bróðir Palla Gúllu sem mar hefur heyrt svo oft af. Þessir bræður voru víst miklir villingar og til eru víst margar sögur af þeim. Svo var náttúrulega keyptur flatari, harðfiskur o.s.frv. þannig að það var veisla hérna í Firðinum meira og minna alla helgina.


Dojdse sprakken ?

En svo er margt framundan einnig, en þar á meðal eru tvær fermingar og svo Íslandsmótið í Boccia. Já og svo á Steini bróðir ammali á morgun ;-) Ég sendi honum bara kveðju þá ;-)

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 12. mars 2007 kl.: 09:30 Athugasemdir (42)

fimmtudagurinn 8. mars 2007
Mömmu morgnar....allavega estrógen !

Ég er ekki alveg búinn að jafna mig á því að ísland í bítið sé ekki lengur í sjónvarpinu ! Ok, þó að Sirrý hafi verið þarna með Heimi þá var bara svo notalegt að hlunkast fram úr rúminu, labba alveg heilalaus inn í eldhús, hella cheerios og mjólk saman á disk, hlamma svo botninum á sófann við sjónvarpið og sjá fréttir og íþróttir og fleira ! Ég verð bara að segja eins og er þá var þetta nokkuð fínt. En nú er öldin önnur. Sjónvarpið mitt er svo gott sem ónýtt á morgnanna núna ! Á RÚV er náttúrulega bara stillimyndin (sem er ágætt miðað við restina), á Stöð 2 er Oprah !!!! Já og Rachel Ray á Skjá einum !?!? Og ekki bætir úr skák að þegar ég set á Sirkus þá er alltaf sama helvítis lagið í gangi !! Þá fannst mér Sirrý og Heimir skárri, verð bara að sætta mig við það. En o well svona er þetta bara.....!



Hérna er svo síðasta auglýsingin sem ég sá á netinu. Þessi er reyndar ekkert grín þ.e. þessi belti eru til. Ég kíkti á þau um daginn og held að þetta sé alveg málið á Þjóðhátíðina ;-)

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 8. mars 2007 kl.: 02:06 Athugasemdir (280)

miðvikudagurinn 6. mars 2007
Kona er manns gaman !

Jamms það er alltaf nóg um að vera þessa dagana.....helgin var eiginlega með rólegasta móti. Kom eiginlega flensa í heimsókn og mar er enn að ná sér góðum. En þetta er allt á réttri leið ;-)

Ég er að fara á spennandi sýningu á morgun en þá opnar sýningin Tækni og vit en þar koma saman öll helstu tæknifyrirtæki landsins og sýna sig og sjá aðra. Það er víst ekki hægt að missa af þessu.

Það er ekki hægt annað en að koma með enn eina auglýsingu hérna.......þessi er reyndar af sömu vefsíðu og sú sem kom síðast og greinilega margt magnað sem er selt þar ;-)



Hehe....spurning hvort þetta sé sá sami og átti hina auglýsinguna !? Langar svoldið í þennan prentara samt !
Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 7. mars 2007 kl.: 09:02 Athugasemdir (10)

fimmtudagurinn 1. mars 2007
Alltaf gerist allt á 1. mars...

Jamms það er kominn enn nýr mánuður.....þetta rýkur alveg áfram. En það er svo sem ekkert verra en hvað annað.....nú fer að detta inn sumar og það er ekkert hægt að kvarta yfir því. En já 1. mars.....í dag var verið að lækka skatta á matarverði niður í 7% og gott mál með það. En það er engu að síður ekki til að toppa það sem gerðist einmitt á þessum sama degi árið 1989 en þá var BJÓR leyfður á landinu ! Jamms það má segja að þessi dagur sé og verði ávallt með þeim ánægjulegri á ári hverju !

Auglýsingar á netinu...
Ég rakst á alveg þrælskemmtilegar auglýsingar á netinu um daginn....reyndar var það Finnbogi bróðir sem bennti mér á þetta. Hér er ein góð......þarna er verið að óska eftir eyrnahlífum......!



Hehehe, flott......látum þetta vera restina af þessu innleggi ;-)

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 1. mars 2007 kl.: 12:44 Athugasemdir (15)

mánudagurinn 27. febrúar 2007
Til hamingju Ísland.....

Jamms, það er alltaf eitthvað um að vera. Núna var ég að klára eitt alveg þræl skemmtilegt verkefni. Ég var að gera vef fyrir Íþróttafélagið Ægir og þó ég segi sjálfur frá þá finnst mér þetta hafa tekist bara nokkuð vel =)



En eins og alltaf er, þá stóð ég nú ekki alveg einn að þessu. Þær stöllur Kristín Ósk og Margrét vinkona mín Bjarna útveguðu mér efnið og svona ;-) Þær stóðu sig alveg rosalega vel og létu það ekki pirra sig þótt ég væri endalaust að biðju um hitt eða þetta =) Já og svo ef fólk hefur áhuga á að skoða vef kvikyndið þá má finna hann hér ;-)

En nú svona fyrst mar er kominn á bragðið....þá er vefur fyrir Steina bróðir væntanlegur innan skamms......stay tuned =)
Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 27. febrúar 2007 kl.: 13:27 Athugasemdir (91)

sunnudagurinn 25. febrúar 2007
Hver er þessi Eyja ?

Úfff hvað er búið að vera mikið að gera þessa síðustu daga ! Ég hef verið að færa mig inn í Reykjavík til að vinna en ég er verktaki hjá Microsoft á Íslandi. Ég er kominn með aðstöðu þar og gengur bara þræl vel ;-) En svo er ég að smíða vefi þessa dagana utan við hina vinnuna en m.a. er það vefir fyrir mig og bræður mína sem og fyrir Íþróttafélagið Ægir sem vonandi fer í loftið í vikunni ;-)



En svo er nú margt spennandi framundan en t.d. er næstu helgi mikil kynning á Eyjum í Vetrargarðinum í Smáralindinni. Þarna verða fyrirtæki frá Eyjum að kynna sínar vörur og þjónustu. Einnig verður þarna eitthvað um tónlistaratriði svo sem þjóðhátíðartjald með öllu tilheyrandi =) Svo á víst að vera brekkusöngur með Árna Johnsen um kvöldið. Svo má ekki gleyma ballinu á Players en þar verða Logar og Dans á rósum ;-) Þannig að maður getur ekki misst af þessu. Hér má svo finna nánari upplýsingar um þessa sýningu.

Þannig að það er nóg um að vera þessa dagana.....nú þarf ég að fara kanna með vini mína varðandi þessa sýningu......er ekki málið að skella sér í Smáralindina næstu helgi ?!

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 25. febrúar 2007 kl.: 06:15 Athugasemdir (4)

mánudagurinn 19. febrúar 2007
MAGNAÐ
Well þá er enn ein helgin afstaðin. Það var nóg um að vera.....fór að hitta bræður mína og frændur (strákana hans Steina....Ásbjörn og Andrés) já og Sollu. Það var rúllað í kaffi í Sandgerði hjá Helga Karli og svo var víst eitthvað verið að snudda að nýja jeppanum hans Finnboga bróður. Á þessum degi kom það bera betur í ljós hvað ég á æðislega fjölskyldu =)

Um kvöldið vorum við Þórey að passa 3 litlar frænkur og var mikið borðað af nammi og auðvitað horft á Júróvisíón. Ég var bara nokkuð sáttur við lagið sem vann.....Eiki Hauks er bara töffari og verður gaman að sjá hvernig hann kemur út. EN það sem meira skiptir máli er aðal maðurinn á sviðinu í þessu sigur lagi ! En það var enginn annar en bróðir Stefán Þór Steindórsson. Hann var þarna á gítar og stóð sig afar vel. Það er ljóst að MV lifir enn góðu lífi og kemur sér allstaðar að ;-) Vel gert Stebbi !



Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 19. febrúar 2007 kl.: 02:30 Athugasemdir (130)

mánudagurinn 12. janúar 2007
Búúúúú........böööööö !

Úff hvað helgin var skemmtileg........maður lifandi. Við vinirnir vorum í bústað og það í Biskupstungum......já og það var svona líka frábært. Það er ljóst eftir þessa helgi að maður á eiginlega skemmtilegustu vini í heimi =) En þarna var saman komið lið sem hefur þekkst alveg frá barnæsku.

Föstudagurinn
Föstudagurinn var með rólegri móti, en við vorum lennt í bústaðnum um kl 20. Þá var auðvitað aðeins rennt á sig einum eða tveim, kíkt í pottinn og svo spilað og sungið frameftir.

Laugardagurinn
Laugardagurinn var töluvert skemmtilegri.....dagurinn var tekinn snemma (at the crack of noon ;-) og fljótlega fórum við kallarnir yfir á Selfoss. Þá þurfti nefnilega að bæta aðeins á birgðir (bæði í mat og drykkjarföngum) og já svo til að horfa á leik MAN-UTD og Charlton ;-) Við enduðum sem sagt á Pakkhúsinu að horfa á leikinn. Allt fór nú vel þar og við smelltum okkur aftur í sveitarsæluna í Tungunum. Um kvöldið var svo búið að ákveða búningaþema og var margt skemmtilegt sem kom þar við sögu......



Eins og sjá má á þessari mynd þá erum við Tanni frændi svoldið svipaðir í hugsun þegar að svona hlutum kemur......við vorum báðir með það á hreinu að vera draugur =) Haha þetta var svo fyndið að ég einfaldlega grét af hlátri þegar hann kom fram =)

En já til að gera langa sögu stutta þá var mikið hlegið og drukkið, spilað og sungið og allir voru sáttir þegar haldið var heim á sunnudeginum ;-) Nú er mar bara að jafna sig eftir þessa annars frábæru helgi.

Elsku vinir mínir, sem voruð með mér þarna......takk fyrir að vera til =)

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 12. febrúar 2007 kl.: 08:49 Athugasemdir (14)

miðvikudagurinn 7. febrúar 2007
Haha helgin....

Well, mar er alveg ekki að standa sig í þessum skrifum hérna ! En o well.....stundum er þetta svona =)

En síðastliðna helgi fór ég ásamt Steina bróður mínum í smá veiðiferð. Við fengum fregnir þess efnis að það væri mikið af Skarfi (Hvort tveggja Toppskarf og Dílaskarf) en þessi tegund er feig til 15. mars ;-) Hehe veit þetta bara af því að ég er að undirbúa enn eitt prófið.......nú er það veiðikortanámskeið ;-) En mar verður að vera með þetta á hreinu fyrir veiðarnar.


Skyldi mar fá sér einn svona um helgina ?

En þá er það komandi helgi......en nú verður tekið aðeins á því en það er verið að fara í bústað með vinunum ! Úffff þetta er svona árleg ferð þar sem börnin eru geymd bara hjá Ömmum og Öfum og foreldrarnir fá svoldið að sleppa sér........nauðsynlegt svona inn á milli =)

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 7. febrúar 2007 kl.: 01:13 Athugasemdir (11)

Föstudagurinn 26. janúar 2007
Helgin er mætt....

Well enn ein vikan að baki, tja og eiginlega heill mánuður líka......magnað þetta ríkur alveg áfram =) En það er svo sem ágætt....þá er stutt í sumarið ;-)

En eins og ég sagði í síðasta innleggi þá hef ég nokkrar gamlar myndir hérna hjá mér og ég hef verið að skanna. Það var nú ætlunin að vera með eina í hverri viku en ég ákvað vegna áskorunnar hennar Lóu minnar að koma með eina mynd sem geymir kallinn hennar =) En þessi mynd er tekin í einhverju barnaammalinu 198 og eitthvað.....er ekki alveg viss.....Mamma man það örugglega =)



Á þessari mynd eru eftirfarandi, talið upp frá vinstri til hægri: Ég sjálfur, Ómar frændi, þá Tanni frændi, Hjalti heitinn frændi og Guðbjörg frænka. Það hefur greinilega verið MJÖG gaman þarna þar sem allir eru með bros aftur á hnakka =) Hehehe Mér sýnist sem þetta er tekið á Kirkjuvegi 84 þar sem við áttum heima til hvað 1984 eða svo.

En já annars, þá er helgin mætt.......ég segi bara góða helgi ;-)

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 26. janúar 2007 kl.: 01:39 Athugasemdir (2006)

fimmtudagurinn 25. janúar 2007
Bróðir minn ljónshjarta !

Alltaf er nú jafn gaman að eignast ný tæki. Pabbi gaf mér alveg þræl magnaðann skanna í útskriftargjöf og er af gerðinni CanoScan LiDE 500F (þ.e.a.s. skanninn ekki pabbi ;-). En í þessari græju er hægt að, ásamt því auðvitað að skanna, ljósrita efni, búa til PDF skjal og fl. Það vildi svo skemmtilega til að ég á nokkrar gamlar myndir og fór ég að gramsa aðeins og fann nokkrar magnaðar en hér læt ég þá fyrstu fylgja =) Þessi er tekin í kringum áramót og er af mér og Finnboga (aka Bóbó) bróður.



En eins og sést á þessari mynd, þá vorum við bræður iðulega með einhverja forláta hatta á hausnum. Ég var nú reyndar meira með hatta á þessum árum =) Þessi mynd er tekin á Polaroid vél.....bara töff ;-) En já....ég kem líklegast með fleiri myndir fljótlega !

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 25. janúar 2007 kl.: 00:51 Athugasemdir (60)

þriðjudagurinn 23. janúar 2007
Get ekki hætt......

Hahahaha mar er svo glaður að vera búinn með þetta blessaða nám að ég get einfaldlega ekki hætt með þetta.....en ég lofa að þetta sé restin =) En ég fékk nú Þórey til að taka nokkrar myndir fyrir mig og vil endilega hafa þær hérna með.


Hér tekur hann ég í spaðann á gamla rektornum....rektor....hehehe

Þetta var svoldið fyndin athöfn og mar var orðinn smá þreyttur......eða aðallega svangur =)


Diddú ásamt kórnum Feminae Vox

Svo var auðvitað eitthvert skemmti atriði og var þar á ferð kvennakórinn Feminae Vox ásamt Diddú.....þetta var alveg magnað atriði.....hörku kór ;-) En já annars eins og ég segi þá fékk mar Ma & Pa með sér þangað og auvitað Þórey og var bara gaman. Það var svo farið út að borða í Perlunni og ég er enn að melta þetta......útskriftina og matinn =)

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 23. janúar 2007 kl.: 00:52 Athugasemdir (452)

laugardagurinn 20. janúar 2007
Piparsveinn vísindanna (e. Bachelors degree)

Ég er búinn með skólann víííííí

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 20. janúar 2007 kl.: 10:05 Athugasemdir (16)

þriðjudagurinn 16. janúar 2006
Allt að gerast.......!

Ég var einfaldlega beðinn um að koma með eitthvað annað en þennan annars ágæta Cheerios kassa sem var í mínu síðasta innleggi. En það hefur verið nóg um að vera undanfarna daga í fjölskyldunni. Síðastliðinn föstudag var Dagmar Ósk systir mín valin íþróttarmaður ársins hjá íþróttafélaginu Ægi en valið var kunngjört á uppgjöri aðiladarfélaganna ásamt ÍBV. Systir mín hóf að æfa undir merkjum Ægis í desember 2005 þá aðeins 14 ára gömul (á 15. ári) og tók þátt í Íslandsmeistaramótinu í Boccia í mars 2006. Henni og liðinu gekk alveg þokkalega á mótinu og stefnir liðið á enn betri árangur í ár. Hún fékk svo nafnbótina íþróttamaður ársins í Ægi sem og tvo forláta bikara. Engu að síður er ég þess viss að hún eigi enn meira inni enda aðeins á 16. Ári.


Myndin er frá verðlaunaafhendingunni s.l. föstudag

Já og ekki er allt búið enn.....ég sjálfur er svo að útskrifast n.k. laugardag sem Tölvunarfræðingur (Bsc. Í Tölvunarfræði) frá Háskólanum í Reykjavík. Ég er búinn að vera rifja það upp að ég útskrifaðist fyrir 10 árum (reyndar í maí) sem stúdent frá FÍV. Þannig að maður er að útskrifast samkvæmt þessu á c.a. 10 ára fresti =) En annars er þetta orðið ágætt í bili og nú er bara að koma sér fyrir vinnulega séð og halda áfram. Ég er reyndar kominn með vinnu en ég sé um vefmálin hjá Microsoft á Íslandi. En það skal svo sem aldrei segja aldrei......kannski á ég eftir að nema eitthvað meira......hver veit. En eins og ég segi þá hefur margt skemmtilegt verið að gerast í fjölskyldunni og það er alltaf gaman.
Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 16. janúar 2007 kl.: 14:26 Athugasemdir (75)

þriðjudagurinn 9. janúar 2007
Feitur er peningamagur maður !

Nú eins og alltaf í byrjun árs eru nokkurn veginn allir í átaki. Ég fór í ræktina í gær um kl 18 og það var allt stappað í stöðinni =) Maður heyrði talað um það að um miðjan febrúar verður þetta orðið gott aftur þ.e. það byrja allir af krafti og svo springur blaðran.

Mér finnst alltaf jafn gaman að heyra af hinum og þessum rannsóknum þar sem fjallað er um heilsu. Af einni rannsókn, sem framkvæmd var hér á landi, var verið að kanna með tengsl milli lífsgæða folks og heilsu. En þar kom fram að þeir sem hafa minna á milli handanna búa yfirleitt við verri heilsu en þeir sem meira hafa.

En alltaf heyrir maður eitthvað nýtt, en það var í fréttunum nú nýlega að banna ætti jafnvel Cheerios innan ESB vegna of mikils vítamíns í því ! Sko......nú er málið eiginlega eitthvað ekki að gera sig ! Ef það er eitthvað sem ekki er nóg af í dag þá eru það vítamín í fæðu barna og unglinga. Ég hef nú ekki heyrt aðra eins þvælu um ævina. Ekki nema McDonalds fari nú að bjóða uppá vítamín borgara svona til að mæta heilsuni hjá æsku landsins. Ég meina börn og unglingar fá að jafnaði of mikið af gosi, sælgæti og óhollustu.



Annað var ég að lesa nú í morgun, en nú hefur ný norræn rannsókn sýnt fram á að feit mjólk s.s. Nýmjólk gefur betri árangur í megrun en að sleppa henni. alveg Rannsóknin var þannig framkvæmd að skipt var í tvo hópa, annar drakk feita mjólk en hinn ekki. Báðir hópar æfðu svo en niðurstaðan var sú að hópurinn sem drakk mjólkina léttist 15% meira en hinn hópurinn ! Einnig var gerð könnun þar með feitum osti og var munurinn þar enn meiri eða 30% munur milli hópanna. Þannnig að það sýnir sig að “rétt” matarræði er það sem skiptir máli og með góðri hreyfingu.

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 9. janúar 2007 kl.: 00:51 Athugasemdir (18)

miðvikudagurinn 3. janúar 2006
Árið er 2007

Well þá er komið nýtt ár.....finnst eins og síðasta hafi einfaldlega verið á hlaupum........svakalega líður þetta hratt =) En vonandi verður næsta ár, jafn gæfuríkt eins og árið 2006.

En eins og vanalega vorum við Þórey í mestu makindum í Eyjum og höfðum það alveg svakalega gott......alltaf jafn þægilegt að koma til Eyja og setja tærnar bara upp í loftið og hafa það gott. En nú er mar mættur til leiks á ný og spennandi ár framundan. Ég fékk mér náttlega Týs bókina og Kjarri minn Vídó þú ert velkominn að fá að ljósrita valda kafla ef þú vilt.....ekkert mál.....mundi skilja það vel =)

Nú væri gaman að vita eitt.....hvernig fannst fólkinu skaupið ?? Mér fannst persónulega eitt og eitt atriði fyndið en svona eftir á að hyggja fannst mér eins og hálftíma (eða hvað þetta var langt) hafi einfaldlega verið stolið af mér ! Sko.....ok ádeila var ríkjandi þarna......en ég veit ekki......yfirleitt er þetta grín og aftur grín og kannski var þetta ekki minn húmor....ég er á því =)

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 3. janúar 2007 kl.: 01:44 Athugasemdir (207)

Page:  << Prev  1  2  3  4 5  6  7  8  9  10  11  12  13  14  15  16  17  18  19  20  21  22  23  Next >>


Powered by Web Wiz Journal version 1.0
Copyright ©2001-2002 Web Wiz Guide