|
.:Lýðs:. !
| föstudagurinn 20. júlí 2007 |
Komin úr fríi Jamms nú er maður mættur aftur, endurnærður eftir nokkra öl og góðan svefn í Köben. Ferðin gekk með eindæmum vel og við erum afar sátt með þetta. Við vorum á fínu hóteli (Hotel Imperial) og það er í göngufæri við Radhusplads, Tívolí og Ströget =) Hehe þannig að stutt var að fara í það sem áhugi var á að skoða. Við fórum í bátsferð, kíktum í Tívolíið, skoðuðum Ísbar (sko sem er sko vínbar….og allt úr ís ;-) en það var bara fyndið. Þarna vorum við mætt og áttum von á stórum ísbar en nei þetta var smá kompa kannski 10 fermetrar og “aðeins” 5 stiga frost !!!! Get ekki sagt að maður hafi ekki verið á djamminu í meira frosti……jafnvel 7-8 stiga frost já og kannski 6-8 vindstig og því svona +40 stiga gaddur =) Já og gellur í pilsum og einhverju í leigubílaröðinni þegar maður er að fara heim. Þetta var bara fyndið en eins og ég segi þá var þetta bara skemmtileg ferð og kærkomin hvíld sem var fengin þarna……já og bjórinn =)
Þjóðhátíð er í nánd En það má ekki gleyma því að stutt er í þjóðhátíð ! Þáááááá erum við að tala saman……nú er maður bara að undirbúa sig, búið að panta með Herjólfi (fyrir tvo, bíl og klefa ;-), taka fram þjóðhátíðarlögin og ég veit ekki hvað. Já það eru sem sagt 14 dagar í þetta og spenningurinn er í algleymingi. Þeir sem vilja kynna sér dagskrána þá má benda á vefsíðuna dalurinn.is en þar er allt að finna um þjóðhátíð fyrr og seinna s.s. lögin, textar þeirra, myndir og ég veit ekki hvað og hvað…..bara snilld. En fyrir þá sem vilja fylgjast hvað best með þá er Boggi úr VKB einkar natinn við það að setja myndir af undirbúningi á netið og hér má finna nýjustu myndirnar úr dalnum en þær eru síðan í gær !
Furðufréttin Þessi er af þýskri löggu sem var eitthvað aðeins “utan við sig” eftir að hafa komið af local pöbb. Hann smellti sér í bílinn og ók af stað og beint útí næstu á. Hélt hann að áin væri blaut gata og því hafi hann endað þarna.
Jozef Cene, 38 ára, keyrði útaf bílastæðinu um miðnætti, stoppaði við ána, gaf stefnuljós og smellti sér af stað….beint útí ána.
Samkvæmt fjölmiðlum fóru nærstödd vitni að atburðinum og hjálpuðu manninum uppúr þar sem hann sat fastur í Fiat Punto bifreið sinni.
Fætur mannsins voru fastar við bílhurðina en bjargvættum hans tókst að losa hann og koma á þurrt en áin er vel á annan metra á dýpt.
Lögreglumaðurinn var svo látinn blása í áfengismælitæki af kollegum sínum en í ljós kom að ekkert magn af áfengi var í blói hans !
Að eigin sögn sagðist lögreglumaðurinn skammast sín fyrir klúðrið en hann sagðist hafa haldið einfaldlega að um væri götuslóða að ræða.
Einn af bjargvættunum sagði: “Ég var bara í mestu makindum að fá mér bjór þegar ég sé mann keyra ofan í ána…..mér fannst þetta einkar undarlegt”.
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 20. júlí 2007 kl.: 02:37
Athugasemdir
(139)
|
|
|
| Föstudagurinn 13. júli 2007 |
Ný gift.....!
Jamms við skötuhjú létum pússa okkur saman sl. helgi og gekk allt framar vonum. Viljum við þakka öllum þeim sem lögðu okkur lið við undirbúning sem og framkvæmd og við erum afar sátt við lífið og tilveruna =)
 Á leið út úr kirkjunni með Lífið er Yndislegt á fóninum
En við erum á leið til Köben og komum aftur á þriðjudagskvöld......þar til þá =)
Þórey & Sigurjón
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 12. júlí 2007 kl.: 17:35
Athugasemdir
(21)
|
|
|
| Þriðjudagurinn 3. júlí 2007 |
Hann á ammali í da....
Úfff nú má eiginlega segja að allt sé á hvolfi í undirbúningi =) En þetta er þó allt að smella saman og nú er bara að krossleggja fingur og vona að veðrið verði eins gott og það hefur verið undanfarið.
Gamli verður eldri Já hann karl faðir minn á afmæli í dag og kallinn er nú orðinn 59 ára =) Til hamingju með daginn Pabbi ;-)
Tónleikar sl. helgi Maður er eiginlega rétt að ná sér eftir sl. helgi en þá smellti ég mér á tónleika á Nasa. Það voru hljómsveitirnar Mínus (með nýja liðskipan), Changer og svo auðvitað aðal bandið Cannibal Corpse =) Já það var nú ekki leiðinlegt að rifja upp gamla takta. En böndin voru hvert öðru þéttara og var æðislega gaman að sjá breiða flóru fólks sem mætti á svæðið =)
En o well.....held að það sé best að halda áffam !
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 3. júlí 2007 kl.: 03:11
Athugasemdir
(76)
|
|
|
| mánudagurinn 25. júní 2007 |
1/4 af sjúkrahúsi ?!
Úff ég gat ekki á mér setið núna....ÍBV var að spila sinn fyrsta leik í VISA bikarnum í kvöld og unnu þeir Reyni frá Sandgerði 10-0 !! Haha það er greinilegt að þeir eru að komast í gang en ef ég man rétt þá er þetta 5. eða 6. sigurleikur þeirra í röð (í deild og bikar :-). Þess má nú alveg geta að þessi lið leika bæði í 1. deild og hafa þegar mæst í deildinni en þá fóru leikar 1-1...! Well það er allavega greinilegt að þeir eru komnir á skrið og spurningin er hvort maður ætti að reyna skella sér á útileikinn gegn toppliði Grindavíkur sem er 2. júli ?! Sjáum til ! En ég læt þessa vísu fylgja með í tilefni sigursins en þessi er þannig til komin að fóstursystir mín Selma Hrönn var að tala við pabba í gærkvöldi eftir að úrslit leiksins lágu fyrir og skaut hún fyrri hlutanum yfir línuna og fékk hún botninn þá umsvifalaust til baka =)
Höfðu betur heimamenn á Hásteinsvelli í Eyjum, en reynslulitlir Reynismenn í rifnum boltatreyjum.
Furðufréttin Þýskur leigubílstjóri var valdur að bílslysi á hraðbrautinni (autobahn) í heimalandinu eftir að hafa bitið í epli og gleypt fölskutennurnar.
Peter Seiler, 57, var að keyra á A3 hraðbrautinni nærri Wuerzburg þegar hann ákvað að smella tönnunum í eplið.
Ekki fór það betur en svo að eplið stóð í honum og þegar hann náði loks að hósta því upp gleypti hann tennurnar.
Er hann var að berjast við það að ná andanum missti hann stjórn á leigubílnum og klessti á annan bíl. Þess má þó geta að sem betur urðu engin slys á fólki í árekstrinum =)
 Ætli þetta séu tennurnar ?
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 25. júní 2007 kl.: 16:07
Athugasemdir
(93)
|
|
|
| Fimmtudagurinn 21. júní 2007 |
Áfram stelpur, áfram Ísland
Jæja nú er ekki annað hægt en að vekja fólk til umhugsunar og fá fólk til að gera sitt til að hvetja stelpurnar í Íslenska kvennalandsliðinu í fótbolta. Stelpurnar hafa staðið sig alveg svakalega vel og eiga góðan möguleika að komast á stórmót. Þetta yrði þá í fyrsta skipti sem Íslenskt lið kæmist á stórmót ! Í kvöld spila þær við Serbíu og eiga þær Íslensku að vinna þennan leik. Ég ætla að horfa á leikinn en þó líklega hérna heima bara.....væri samt eina vitið að fara á völlinn =)

Furðufréttin Hér segir frá einni miður lukkulegri Rússneskri konu sem þurfti að draga uppúr þornandi steypu eftir að hafa dottið í steypuhrærivél og svo sturtað á götuna.
Elena Pavlovna, sem er 43 ára, var á heimleið eftir hádegis “fund” með vinum sínum í bænum Kemerovo.
Hún sá að í vegi hennar voru einhverjar yfirgefnar vélar en vinnumennirnir höfðu skroppið í hádegismat frá því að leggja nýjan gangveg. Hún reyndi að klofa þarna yfir vélarnar.
En það fór ekki betur en svo að hún rann til og datt ofan í steypuhrærivélina sem var í gangi og eftir fáeinar mínútur og fáeina snúninga í vélini var henni hellt úr og í steypupoll á götuni.
Þegar hún svo slóst við að komast uppúr steypuni fór það ekki betur en svo að aðeins höfuð hennar stóð uppúr. Það var svo ekki fyrr en þegar vinnumennirnir snéru aftur að henni var bjargað uppúr prísundinni.
Einn af þeim sem stóðu að því að bjarga konuni hafði það að orði að jafnvel þó að aðeins munnur konunnar stæði uppúr þegar þeir hófu björgunaraðgerðir þá skipaði hún köllunum fram og aftur og sagði hvað þeir ættu að gera ! Það fannst þeim hrikalega pirrandi.
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 21. júní 2007 kl.: 03:04
Athugasemdir
(263)
|
|
|
| Miðvikudagurinn 20. júní 2007 |
Hvaða hvaða !?!?
Maður sem lifandi dauður….það er búið að vera svo mikið að gera að ég hef bara ekkert skrifað hér inn síðan 7. Júní. En svona er þetta stundum….við skötuhjú erum nefnilega að undirbúa brúðkaupið okkar og það þarf að ýmsu að huga :-) En þetta er allt á réttri leið, búið að gæsa og steggja og svona þannig að nú er hitt eftir. Já og svo er maður að vinna eins og vitleysingur svona til að geta borgað brúsann en þetta er víst ekki ókeypis :-)
En já það er margt og mikið framundan…..fyrst er það sem sagt brúðkaup 7. Júli. Þá er það Þjóðhátíð 2007 en ég var að panta í Herjólf og svona í morgun, þannig að það er allavega klárt ;-) Sem er bara mikilvægt. Ég var reyndar heppinn að fá fyrir bílinn og svona þar sem allt er upppantað á Miðvikudeginum til Eyja…….ég hélt að það væri ekki orðið svo stutt í þetta……skylst að það séu einhverjir 45 dagar í þetta. En já það er sem sagt klárt !
Svo eru það tónleikarnir, en þetta sumarið ætlar að verða betra en síðustu 3 ár en ég hef ekki farið á neina tónleika síðan þá. Núna eru það Cannibal Corpse (svona til að rifja upp dauðarokkið aðeins :-), þá næst er það Norah Jones en hún verður með tónleika þann 2. September í Laugardalshöll. Síðast en ekki síst er það Chris Cornell sem verður svo hérna 8. September ! Fyrir þá sem kannski ekki þekkja kauða þá var hann m.a. söngvari í hljómsveitum á borð við Soundgarden, Temple of dog og Audioslave. En meðal laga frá þessum sveitum eru Black hole sun, Like a stone og svo átti hann einnig James Bond lagið í síðustu myndinni Casino Royale.
En já allavega þá er maður að komast aftur af stað og þarf ég að fara grafa upp fleiri furðufréttir ;-)
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 20. júní 2007 kl.: 11:19
Athugasemdir
(1475)
|
|
|
| Fimmtudagurinn 7. júní 2007 |
Þó ekki Paris Hilton !?
Þá er kominn blessaður fimmtudagur ! Við erum að fara í leikhús í kvöld en hann Ófeigur bróðir er í einhverri uppfærslu þarna og við Þórey og pabbi ætlum að kíkja á gæjann á sviðinu. Ef ég á að segja alveg eins og er þá man ég ekkert hvað þetta heitir :-/ En ég veit að þetta er allavega á vegum Hafnarfjarðarleikhússins =) En þetta verður án efa skemmtilegt.....ekki það oft sem maður fer eins og fínn maður í leikhús.
Furðufréttin Fangi sem hafði flúið úr fangelsi sneri aftur og bað vinsamlegast um að vera settur aftur í klefann því hann saknaði samfanga sinna.
Búlgarski þjófurinn Vassil Ivanov, 37 ára, hafði verið á flótta eftir að hafa stungið af, að heiman, þegar hann var í páskaleyfi árið 2005.
Að eigin sögn, sagðist hann ekki þola lengur við að vera utan fangelsismúranna. Hann hafði setið inni í heil 9 ár og gat einfaldlega ekki vanist “frelsinu” aftur. Að auki sagðist hann sakna mikið þeirra vina sem hann hafði eignast á meðan dvölinni stóð.
Fangaverðirnir í Stara Zagora fangelsinu í Búlgaríu fóru rakleitt með Ivanov aftur í klefann þar sem hann mun klára þau tvö ár sem hann á eftir af þeim 11 árum sem hann var upprunalega dæmdur í. Einnig er búist við að við bætist einhver ár fyrir flóttann.
Hahaha miðað við þetta þá efast ég um að þessum Ivanov eigi eftir að mislíka framlenginguna á fangavistinni =) En það er alveg ljóst að þetta sama á engan vegin við Paris Hilton, sem þessa dagana sleikir veggi fangeslis í Kaliforníju :-) Hún hefur svo sem bara gott af því.
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 6. júní 2007 kl.: 18:10
Athugasemdir
(327)
|
|
|
| Þriðjudagurinn 5. júní 2007 |
Maggi Kristins eða Gunnar á Árntý ? Jæja þá er helgin afstaðin og ný vika tekin við. Þessi helgi var svo sem fín, reyndar var þetta með rólegra móti en engu að síður sitthvað í gangi. Á laugardag var nú verið að gæsa unnustuna þannig að ég sjálfur var á ferð og flugi, kíkti aðeins á pabba til að horfa á okkar ástkæra landslið í knattspyrnu. Svona til að gera langa sögu stutta þá var þessi leikur hreinlega leiðinlegur og hálf sorglegt að hafa ekki náð nema jafntefli við þetta annars ágæta Lichtenstein lið.
Nóg framundan Jamms það er svo sem nóg framundan næstu daga og vikur…..fyrirhugað er að efna til útilegu fyrir brottflutta Eyjamenn helgina 22. – 24. Júní þar sem nóg verður um skemmtilegheitin. Allir hvattir, sem hljóðfæri geta valdið ,að taka með. Það eru víst forráðamenn Ferðafélagsins Heimkletts sem ætla safna liði og má finna nánari upplýsingar um útileguna hér.
Reyndar má nefna að helgina á undan útilegunni verður notuð í útskriftarfögnuð sem og fertugs afmæli hjá mágkonu minni. Já hún Sigrún er að útskrifast úr Kennaraháskólanum.
Furðufréttin Þessi frétt er á þá leið að það er mismunandi styrktaraðilar sem standa að íþróttum landa þessa annars ágæta heims. Þannig var það í Króatíu að þegar hinn 29 ára gamli varnarmaður, 3. deildar liðsins Zagora FC, Ivica Supe mætti til vinnu mætti honum hópur af kindum.
Þessi ágæti varnarmaður hafði á tímabilinu skorað ein 16 mörk fyrir lið sitt en vissi þá ekki að aðal styrktaraðili liðsins væri fjárhirðir og hann hafði lofað einni kind fyrir hvert skorað mark af varnarmanni.
Supe hafði orð á því að hann væri ekki enn búinn að ákveða hvar hann muni geyma “fenginn” og hann ætti von á að skora einnig fleiri mörk á yfirstandandi tímabili.
Talsmaður klúbbsins sagði við fjölmiðla að ástæða þess að fjárhirðirinn væri aðal styrktaraðili liðsins var sú að engin iðnaður væri í bænum eða annað viðlíka. Bærinn væri einfaldlega sveitabær og tók því boði fjárhirðisins fagnandi.
 Þessi kind er saklaus að öllu leiti hér !
Þannig að spurning er hvernig staðan væri hjá ÍBV ef t.d. landbúnaðurinn væri sterkari en sjávarútvegurinn í Eyjum ?! Kannski væri þá Gunnar á Árntý aðalstyrktaraðilinn !
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 5. júní 2007 kl.: 02:17
Athugasemdir
(10)
|
|
|
| Fimmtudagurinn 31. maí 2007 |
Lítið má nú smáum bera ?! Úff...það er varla byrjuð vikan að hún er einfaldlega búin ! Reyndar var frí á mánudaginn....það svona aðeins breytir þessu. En já helgin er engu að síður framundan og það er nóg um að vera. Það er til að mynda landsleikur í knattspyrnu á laugardaginn og eru þar að etja kappi Ísland og Lichtenstein. Ég er nú mikill áhugamaður um knattspyrnuiðkun og hef ákveðna skoðun á ákveðnum hlutum.....eins og til dæmis landsliði okkar. Eins og kannski flestir vita þá byrjaði þetta einkar vel hjá okkar mönnum (en nú er í gangi undankeppnin fyrir EM 2008) og við unnum okkar fyrsta leik. En þá hrundi þetta einfaldlega hjá liðinu og ekkert gengið síðan þá. Svona er þetta bara....við eigum bara ekki betri knattspyrnumenn en þetta, þí auðvitað við eigum nokkra góða en þá einhvernveginn virðumst við ekki getað staðið okkur þegar kemur að landsliðinu ! En nú er engu að síður þannig leikur í farvatninu og viljum við aðeins eitt......SIGUR !!!! En þetta lið sem við erum að fara spila við getur ekki NEITT. En o well.....þetta kemur allt í ljós =)
En úff jamm og jæja....ég er enn eina ferðina farinn að tala um akkúrat ekki neitt. Þannig að ég læt eina furðufrétt fylgja hérna með. En þessa heyrði ég reyndar á Bylgjunni í morgun.....hún er bara svo góð að ég gat ekki annað en græjað hana hér !
Furðufréttin Lögreglan í Þýskalandi setti í gang víðtæka leit til að finna bíl barnaþjófs eftir ábendingu frá konu sem sá ungan dreng lokaðann í skotti bílsins.
Lögreglan setti upp vegatálma og var með ómerkta bíla til aðstoðar í leitinni sem bar loks árangur. Þegar bíllinn var loks stöðvaður kom í ljós að “barnið” í skottinu var dvergvaxinn bifvélavirki að nafni Klaus “Shorty” Mueller.
Ástæðan fyrir því að hann var í skotti bílsins var sú að eigandinn hafði heyrt stöðugt óhljóð við eða í skotti bílsins og vildi dvergurinn því fá rúnt um bæinn til að’ greina betur vandann.
Það fylgdi einnig greininni að dvergurinn hafi áður beytt viðlíka aðferð þar sem hann segir árangurinn ávalt gefa góða raun í að finna hvað ami að bílunum.
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 31. maí 2007 kl.: 11:51
Athugasemdir
(31)
|
|
|
| þriðjudagurinn 29. maí 2007 |
Hún á ammal í da !!< Jamms hún Þórey mín á sko ammali í da ! Eins og vaninn er þá fær hún ammalis sönginn í rituðu máli !
Hún á ammal í da, Hún á ammal í da. Hún á ammal hún Þóreeeeeeeeeeeeey, Hún á ammal í da !
Veiiiiiiiiiiii, hún lengi lifi =)
En stelpan er 28 vetra og er ennþá sama pæjan og þegar ég kynntist henni hérna um árið =)
Gæsagangur....! Well það er kannski ráð að halda svona furðufréttum í gangi en þessa heyrði ég um daginn og fannst eilítið áhugaverð. En á skemmtistað einum voru samankomnar á annað hundrað konur í gæsapartýi (kannski ekki allar í partýinu en...) og í gangi var afklæðnaður á karlmanni einum. Þessi fatafella var víst svo að standa sig að kerlingarnar voru margar hverjar komnar uppá styrktarbita hússins. Ágangurinn var svo mikill að bitarnir einfaldlega gáfu sig og þakið hrundi niður =) Hahaha en þrátt fyrir þetta slasaðist enginn og konurnar heimtuðu að stripparinn kláraði sjóvið !!!! Þannig að þó þakið hrynji af kofanum þá er það ekkert á milli vinkvenna !? Hehe snilld.
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 29. maí 2007 kl.: 05:50
Athugasemdir
(63)
|
|
|
| laugardagurinn 26. maí 2007 |
Nytjaréttur
Úff hvítasunnuhelgi í gangi og maður er bara í rólegheitum hérna í Firðinum. En það er engu að síður nóg um að vera þessa dagana...tónleikar á morgun með Uriah Heep (eða júríja híp :-) og Deep Purple í lauagardalshöll......Jet Black Joe á Gauknum og ég veit ekki hvað ! En engu að síður er mar bara á tjillinu.
Ég las svoldið skemmtilega grein í fréttablaðinu nú í vikunni en greinin var um bótagreiðslur í Rúmeníu (ef ég man rétt). TIl að gera langa sögu stutta þá eru þeir að borga fólki geitur í stað peninga =) Hehehe magnað að þetta sé ennþá svona árið 2007 ! Fólk þarf svo að greiða skatt af þessu eða 3 yrðlinga á ári =) Svona var þetta hér á landi ekki alls fyrir löngu þ.e. einhverjar jarðir í Eyjum höfðu t.d. nytjarétt í úteyjunum en þetta breyttist líklega um 1970 eða álíka. En þessi aðferð yfirvalda í Rúmeníu þykja draga ímynd landsins niður og hafa Rúmenar búsettir í USA t.d. heyrt landið sitt kallað Rúmenistan =)
Já það er margt skrýtið í kýrhausnum !
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 26. maí 2007 kl.: 12:48
Athugasemdir
(14)
|
|
|
| sunnudagurinn 20. maí 2007 |
Jallú.....
Well.....úfff nú er búið að vera margt í gangi. Ég lá í flensu meira og minna alla síðustu viku en ég var svo heppinn að fá Streptakokka =) En sem bestur fer fékk ég pensilín hjá doksa og þá fór þetta nú loksins að lagast ;-)
Ferming
Við vorum nú í fermingu í dag, hjá frænku Þóreyjar sem býr í Hveragerði.....æi það er alltaf velkomið að fá boð í fermingar.....yfirleitt bara góður matur og svo hittir maður á einhverja skemmtilega sem maður sér ekkert svo oft. Þannig að nú liggur maður nokkurnveginn á meltunni ennþá =)
Hvítasunnan
Æi þarf maður nokkuð að minnast á þessar kosningar sem voru fyrir rúmri viku.....það vita allir hvernig þetta var og eða fór.....ég meina Geir & Jón eru ei lengur og nú stefnir í að það verði Geir & Ingibjörg......spurning hvernig þetta fer allt saman.....en ég hef svo sem ekkert mikið álit á þessu.....svo lengi sem Ingibjörg verður ekki forsætisráðherra....ég veit að það er ekkert gott =)
En já það er víst Hvítasunnuhelgi framundan....spurning hvort við kíkjum til Eyja....það er verið að melta það. Svo sem alltaf gott að kíkja heim en það er kannski ráð að hringja á afgreiðslu Herjólfs á morgun til að kanna hvort það sé laus koja með skipinu !? Æi já ég kanna það þá á morgun.
Well best að halda áfram að bördast....það er alltaf gott =)
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 20. maí 2007 kl.: 15:28
Athugasemdir
(208)
|
|
|
| þriðjudagurinn 8. maí 2007 |
Veiði smeiði....!
Jamms, það má segja að það sé endalaus veiði í gangi þessa dagana. Það eru víst alþingiskosningar um næstu helgi og mér finnst ég sjá þessa fíra, sem í framboði eru, í öllum skúmaskotum. Maður opnar ekki blað, vafrar ekki á þann vef eða rýnir í imbann án þess að auglýst sé hvað hinn og þessi flokkurinn er æðislegur. Ég held að flokkarnir ættu að taka tæknifyrirtækin sér til fyrirmyndar þ.e. eins og á tæknisýningum þá eru það fallegar dömur sem eru að auglýsa vörur og þjónustu þessara fyrirtækja. Ég meina, fyrirtæki sem ekki hefur eina spennandi vöru fær þarna mína athygli, já og hinna kallanna líka, og getur þar með komið þeim skilaboðum til mín sem kannski til þarf !? Ég meina, ekki vildi ég fá Ingibjörgu Sólrúnu heim til mín með rós......en ef t.d. Unnur Birna kæmi með rós mundi ég líklega hlusta.....allavega sína áhuga =)
En annars þá fórum við bræður í veiðiferð á sunnudaginn. Reyndar var einn "útlendingur" með í för en það var Eiki vinur minn. Veðrið var ekkert sérstakt í byrjun en svo lægði þegar nær dróg hádeginu. Engu að síður voru það ekki nema 55 kvikyndi sem við náðum. En það dugar vel í veislu sumarsins ;-)
Já svo er það víst júróvisíón á laugardaginn......well sko fyrst Stefán Steindórsson, mafíubróðir minn, er með þá fer Eiki allavega áfram úr undankeppninni.....ég trúi því....við allavega sjáum til ;-)
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 8. maí 2007 kl.: 02:46
Athugasemdir
(16)
|
|
|
| fimmtudagurinn 3. maí 2007 |
Hér er ég góðann daginn, daginn daginn =)
Úffff nú er maður ekki að standa sig ! Ekkert malað síðan 20. apríl ?!?! Usss…..En ég hef það mér reyndar til varnar að ég var með einhvern kverkaskít í nokkra daga og svo fórum við skötuhjú til Eyja um Helgina ;-)
Ohhh það er alltaf ljúft að koma HEIM til Eyja. Málið er nokkuð einfalt, það er allt svo afslappað og nátturan, náttúran maður lifandi. Bara fallegt umhverfi =) En já við fórum til Eyja á föstudaginn sl. og vorum alveg í 4 daga þ.e. komum á þriðjudaginn aftur. Það var náttúrulega 1. maí þarna á þriðjudaginn og við ákváðum að nýta það frí og vera lengur. Eins og venjulega var ég á flandri úti um alla eyju að hitta fólk, get ekki verið kyrr þar sem ég þekki alveg slatta af fólki þarna =) En engu að síður var þetta afslöppunarferð og því kemur maður endurnærður til vinnu þessa vikuna……allavega.
En það er engu að síður margt og mikið framundan. Við Steini bróðir, ásamt Helga Karli og einhverjum einum enn, erum að fara á svartfuglsveiðar á laugardaginn. Það er verið að reyna ná í fugl áður en tímabilið klárast ( sem er 10. maí ). Það verður sem sagt, ef veður leyfir, farið út frá Reykjavíkurhöfn kl 08:00 og við verðum í einhverja 4 tíma eða svo. En heyrst hefur að fuglinn sé frekar utarlega þessa dagana og því erfiðara um vik að ná þeim. En hvað veit maður, þegar bræður eru með hólk á lofti ?? Aldrei að segja aldrei…..aldrei……aldrei =)
En já mig langaði bara svona aðeins að láta vita að maður er nú hérna enn…..þetta var bara svona týpískt stutt stopp hérna hjá mér…..er ekki hættur enn ;-)
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 3. maí 2007 kl.: 01:32
Athugasemdir
(15)
|
|
|
| föstudagurinn 20. apríl 2007 |
Ann á hammæli í da !?!?
Jamms, það er enn og aftur komin helgi og þá fer ég af stað í að blogga =) En það er víst þannig að Bóbó bróðir á afmæli í dag ! Til hamingju með það kallinn minn. Hann tekur á móti gestum á salerninu á BSÍ milli kl. 13 og 22.
 Finnbogi með Jökul frænda
En eins og venjulega þá ætla ég að hafa þetta stutt.....nenn ekki meir.....!
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 20. apríl 2007 kl.: 09:25
Athugasemdir
(24)
|
|
|
| Miðvikudagurinn 18. apríl 2007 |
SSSól í kvöld !
Jamms, líkt og venjulega þegar ég hef ekki nennt að blogga þá afsaka ég það í byrjun næsta innleggs =) En já það er búið að vera mikið að gera, fólk í heimsókn og svona. Þannig að ég hef svo sem ekki haft mig í það að blogga.
En á morgun er sumardagurinn fyrsti og því engin fyrirstaða að henda inn einu innleggi. Í kvöld erum við vinirnir að fara á tónleika í Borgarleikhúsinu en það eru heiðursmennirnir í SSSól sem þar spila. Þeir eiga víst 20 ára starfsafmæli og því við hæfi að vera með tónleika. Þetta eru víst órafmagnaðir tónleikar en þar sem hljómsveitin á fullt af góðum lögum þá verður það ekkert verra. Eigum við ekki að segja að það er gott að eiga frí á morgun því það verður án efa skálað fyrir afmæli SSSól =)
En annars segi ég bara gleðilegt sumar ;-)
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 18. apríl 2007 kl.: 09:05
Athugasemdir
(13)
|
|
|
| þriðjudagurinn 10. apríl 2007 |
Ný vefur í loftið !
Well o well, þá eru páskarnir afstaðnir og má segja að þetta hafi verið ein góð afslöppun =) Þessa daga rak hver veislan aðra og ég held að Bjössi bolla sé nettari en ég =) Ég á þó reyndar páskaeggið ennþá eftir. Ég fékk egg #7 frá vinnunni minni og ég eiginlega hef mig ekki í að byrja á því. Reyndar er ég búinn að gefa Þórey það en hún er ekkert að standa sig betur =) En þetta skemmist ekkert svo glatt ;-)

En já þrátt fyrir rólegheit þá setti ég engu að síður nýjann vef í loftið í gær. Þetta er vefur fyrir Steina bróðir og aðeins sá fyrsti í röð 4 vefa =) Þannig að þetta er rétt að byrja hjá mér. En þessi umræddi vefur er aðalega fyrir veiðimenn og konur þar sem Steini ætlar að skrifa um veiði s.s. hvernig má bera sig að í veiði og ýmislegt af hans reynslu af veiði. Eitthvað skylst mér að hann ætli fljótlega að bæta við uppskriftum þarna líka, þannig að það má finna ýmislegt spennandi þarna ;-) En endilega kíkið á vefinn og skrifið í gestabókina.
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 10. apríl 2007 kl.: 08:47
Athugasemdir
(325)
|
|
|
| þriðjudagurinn 3. apríl 2007 |
Páskarnir eru handan við hornið
Jamms það er ekkert öðruvísi, það eru að detta inn páskar á dagatalið. Mar er rétt búinn að tyggja jólasteikina og þá þarf mar að fara ná sér í páskaegg =) En það að páskar séu að koma þýðir aðeins eitt: FRÍ ! Þetta blessaða frí er alveg kærkomið og verður fínt að slappa aðeins af =)
Annars fórum við í bíó í gær með Tanna frænda og Lóu. Kíktum á grínmyndina Wild Hogs með köppum eins og John Travolta, Martin Lawrence og fleirum. Mar var nokk ánægður með hana þessa, þrátt fyrir svona 5 mínútna Amerískann kafla. Grínið var alveg fínt þarna. Kannski ekki besta grínmyndin sem ég hef séð en fín samt.
Svo eru tengdó að koma á morgun....verða hjá okkur eina nótt en þau hjónin eru að fara til Írlands ! Ohh væri ég ekki til í að fara erlendis þessa páska....en o well það verður bara seinna ;-) En já o well ég er eiginlega bara að tuða hérna um akkúrat ekki neitt =) Farinn að gera eitthvað nytsamlegt annað ;-) Gleðilega páska allavega.
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 3. apríl 2007 kl.: 06:30
Athugasemdir
(26)
|
|
|
| miðvikudagurinn 28. mars 2007 |
Helgin fer í sögubækurnar !
Jamm maður er í raun enn að ná sér eftir helgina.....en eins og áður hefur komið fram, þá unnu stelpurnar í Ægir 2 alla sína leiki á laugardeginum og þannig sinn riðil. Þær spiluðu svo í úrslitakeppninni á sunnudeginum en þá gekk ekki alveg eins vel. Þær unnu 1 af 4 leikjum en þetta dugði þeim þó til þess að komast í 2. deild og spila þar að ári ;-) Þannig að árangur liðsins var alveg frábær þetta árið !

Úff svo má ekki gleyma lokaballinu sem var alveg magnað ! Í boði var 3gja rétta máltíð og þessi líka ágætu skemmtiatriði. Það var svo hljómsveit sem lék fyrir dansi framyfir miðnætti og var ekki lítið sungið og dansað =) Ég er enn að jafna mig held ég bara =) En eins og ég segi þá var þetta vel heppnuð helgi og bíð ég spenntur eftir næstu keppni ;-)
Ég hvet svo alla að kíkja á heimasíðu Ægis og lesa ferðasöguna, skoða nýjar myndir frá mótinu og skrifa svo í gestabókina ;-)
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 28. mars 2007 kl.: 06:20
Athugasemdir
(262)
|
|
|
| laugardagurinn 24. mars 2007 |
Ægir 2 í úrslitakeppnina
Jamms, það gekk vel hjá liðum Ægis í dag. Ægir 3 spilaði einkar vel en þau töpuðu samt sínum leikjum. En sigurvegarar dagsins var Ægir 2 sem vann alla sína leiki og er komið í úrslitakeppnina sem er á morgun ;-) Þær stöllur, Dagmar Ósk, Dæja og Júlíana voru að spila eins og hetjur og þær rúlluðu upp sínum leikjum. Vonandi gengur þetta jafn vel á morgun. Ægir 1 sem spilar svo í 1. deildinni var búið að spila 2 leiki þegar ég fór heim þar sem annar hafði unnist en hinn tapaðist. Engu að síður var dagurinn þræl skemmtilegur og bíður mar spenntur eftir morgundeginum.
Úrslitakeppnin hefst svo kl 11 í fyrramálið og ætlum við Ófeigur að mæta og styðja liðið ;-) Svo er það ferming hjá Bjarnveigu frænku minni og hlakkar mig ekki lítið til að hitta fjölskylduna =) Annað kvöld er svo lokahófið og verður án efa eitthvað húllum hæ í gangi þar. Úff best að fara teygja úr sér og slappa af bara ;-) l8er !
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 24. mars 2007 kl.: 15:10
Athugasemdir
(24)
|
|
|
|
|