| Hver er ég? | Bloggið | Myndir | Vísuhornið | Ýmislegt |
.:Lýðs:. !

miðvikudagurinn 20. ágúst 2003
Ussss það var allt internetsambandslaust í vinnuni í dag :-/ Það er nú aðallega útaf vírus sem það var. Vírus sem nefnist Sobig.F og er hann víst ekki skað mikill heldur meira pirrandi þ.e. tekur alla bandvídd á neti sem hann kemst yfir og því stoppar öll önnur umferð á meðan :-( Þú getur séð eitthvað nánar um þennan vírus hér !
En ef þú heldur að þú sért með hann, geturu sótt forrit sem losar þig við hann hér !
Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 20. ágúst 2003 kl.: 15:37 Athugasemdir (6)

þriðjudagurinn 19. ágúst
Fann alveg magnaða síðu í dag þar sem búið er að blanda saman dýrum á mynd þ.e. eins og Lunda og hund !??! Þið getið skoðað þetta hér. Það er alveg með ólíkindum hvað fólki dettur í hug að gera.....meira að segja ég er með BLOGG !? Jæja fyrst að Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 20. ágúst 2003 kl.: 15:26 Athugasemdir (12)

Afleggjarinn
Þessar vísur sendi Lýður vini sínum Ómari Ragnarssyni, fyrir nokkrum árum, ásamt þremur grunsamlegum hrokknum hárum....orginal ! Þeir eru báðir meðlimir í dularfullu félagi sem nefnist Hrekkjalómafélag Vestmannaeyja.

Finnst þér ekki í heimi hart
hárleysi að flíka ?
Yfir þér er ansi bjart
og undir sjálfsagt líka.

Til að nautna njótir þú
um nætur - þér ég færi
af púlla mínum punghár þrjú
í punt á þig - minn kæri.

Konan verður aftur ung
í ástarinnar smiðju
ef skreytirðu bæði skalla og pung
og skiptir svo í miðju !



Lýður Ægisson

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 19. ágúst 2003 kl.: 08:15 Athugasemdir (7)

mánudagurinn 18. ágúst
Þá er kominn mánudagur og ég hef ákveðið að reyna taka upp á því að blogga svoldið meira en ég hef gert hingað til.

En ég verð að byrja á því að minnast á það að þessi mánudagur er ekki eins leiðinlegur og þeir vilja oftast vera þ.e. að frænka mín, Selma Hrönn, á ammali í dag Til lukku með það !
En það er engu að síður mánudagur og er þá tilvalið að geta sent vinum og vandamönnum góð insult Þetta er uppáhaldið mitt ;-) "You are such a smart-ass, I bet you could sit on a carton of ice cream and tell what flavor it is." Magnað
Usssss má víst ekki gleyma því að minnast úrslita helgarinnar í Enska boltanum þ.e. að Júnætedvann Bolton 4-0 ! Mér skilst að hinn ungi Ronaldo hafi farið á kostum síðasta hálftímann í þessum leik......byrjar vel!!!
Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 18. ágúst 2003 kl.: 10:03 Athugasemdir (12)

Magnað dæmi !
Ég rakst á þessa skemmtilegu frétt í fréttablaðinu fyrir skömmu og þótti mikið til hennar koma

Útfararstofa í Rio, Brasilíu, hefur vakið upp usla með auglýsingaherferð sem mörgum þykir nokkuð ósmekkleg. Í sjónvarpsauglýsingunni segir þulurinn nefnilega í endann; „Enginn viðskiptavinur hefur nokkurn tímann kvartað“. Stofan selur einnig líftryggingar og hefur slagorð þeirra þar einnig pirrað siðprúðari borgara Rio. Í auglýsingu þeirra fyrir þær segir nefnilega; „Með okkar líftryggingum verður þú svo ánægður að þú munt þakka Guði fyrir persónulega.“

He he þetta er sko húmor í lagi !
Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 12. ágúst 2003 kl.: 10:16 Athugasemdir (2)

Olíusamráð hvað ?
Solla Péturs syngur hátt:
,,Senn er tankur hálfur"
Þegar daman fær sinn drátt
dælir Kristinn sjálfur...

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 28. júlí 2003 kl.: 16:07 Athugasemdir (186)

Page:  << Prev  1  2  3  4  5  6  7  8  9  10  11  12  13  14  15  16  17  18  19  20  21  22  23


Powered by Web Wiz Journal version 1.0
Copyright ©2001-2002 Web Wiz Guide