| Hver er ég? | Bloggið | Myndir | Vísuhornið | Ýmislegt |
.:Lýðs:. !

miðvikudagurinn 15. október 2003
Jæja eftir góða helgi og svo flensu í kjölfarið Þá er ég loksins kominn aftur á ról Víhí. Ég fór á lokahóf um helgina hjá DUFFA og var stemmningin svakaleg Það vorum við Engeyjarfrændur, Ég og Jónatan, sem sáum um skemmtiaðtriði og virtust þau mælast vel fyrir Svo var aðuvitað sötrað á öl ásamt öðrum góðum veigum Vill ég þakka þeima félögum sem sáum um þetta enn og aftur....þetta var magnað.

Auðvitað (að eyjamannasið) var spilað á gítar og sungið fram undir morgun Hér eru svo myndir af herlegheitunum

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 15. október 2003 kl.: 16:25

Ennþá flöskudagurinn 10.okt 2003
Fyrst mar er orðinn svo dullegur að blogga að þá get ég ekki annað en bent á eina snilldar síðu sem ég rakst á á Tilverunni Þarna áttu að segja til um hversu marga bjóra þú telur að þú þurfir að teiga til þess að sænga hjá viðkomandi á myndinni hehe endilega kíkja á það

Svo er reyndar ein sem ég attlaði alltaf að vera búinn að benda á þ.e. síða sem tekur á því hvaða konu menn mundu helst vilja gera hitt með hehe, giftast eða einfaldlega drepa !!! Hún er hér ! Þess má geta að í flokknum sem flestir karlmenn vilja drepa er Björk Guðmunds :-/

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 10. október 2003 kl.: 14:24

flöskudagurinn 10. október 2003
Takið eftir gott fólk (ekki að það hafi farið frá hjá neinum....að ég held ) að á morgun 11. október spilar okkar litla landslið í knattspyrnu við þýska stálið ytra (ytra = Þýskaland ). Auðvitað attlar mar að horfa á leikinn og svona til að koma manni í stuð fyrir þetta þá er hér tengill á nýja stemmningarlagið sem hægt að fá á snilldar heimasíðu baggalúts

En svo er auðvitað stærsti litli klúbbur í sögu íslenskrar knattspyrnu (úfff varð bara hálf ringlaður við að skrifa þetta )DUFFI að slútta sumrinu og verður lokahófið haldið með pompi og prakt laugardagskvöldið 11. okt. Er ekki við öðru að búast að mikið knall verði ásamt töluverðri drykkju (aðallega stjórinn )En ég kem örugglega með fleiri punkta og kannski smá sýnishorn af því sem verður í boði þarna annað kvöld (þá er ég sko að meina af gríninu ) eins og t.d. eina mynd.....svona til að gefa smá hint....þar sem ég veit að félagar mínir í boltanum er ekkert að skoða síðuna mína

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 10. október 2003 kl.: 10:44

fimmtudagurinn 9. október 2003
Jæja þá....ég var skammaður rétt í þessu fyrir að blogga ekki nóg Svo er farið að linka á mann annars staðar þannig að nú er lag

Verð auðvitað að minnast á það að Smári kokkur (damn ég verð að fara bjóða honum heim til mín að elda ) var að byrja að blogga. Endilega kíkið á það.....kallinn er að luma á uppskriftum meira að segja stundum

Heyrru og svo er ég með einn nokkuð nettann tengil á síðu sem allir eiga að skoða Hér er verið að skeyta saman myndum af hinum og þessum dýrum....já og reyndar af mannfólki líka og verður niðurstaðan oftast mögnuð

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 9. október 2003 kl.: 15:51

þriðjudagurinn 7. október 2003
Þar sem mar hefur ekki bloggað síðan á föstudaginn þá verður mar að setja nokkra góða tengla og fleira sneðugt. Ég er að spá í að hafa þetta svoldið fyrir okkur strákana!!! Hmmm hvernig væri þá að byrja á því að benda á öfluga síðu með fögrum fljóðum ! Þessi síða fær alveg 8.5 af 10 mögulegum Svo er það þessi.....þetta er ein flottasta síðan sem ég hef séð....og ekki er módelið af verri endanum heldur

Svo er það að hafa allavega tengil á einn nöttara svona í bland við skvísurnar Ég veit ekki alveg hvaðan þetta kemur !?!?

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 7. október 2003 kl.: 15:24 Athugasemdir (7)

föstudagurinn 3. október 2003
Þar sem ég var búinn að lofa því að setja nokkrar myndir á vefinn úr síðustu veiðiferð þá er varla til betri dagur en flöskudagur

Annars er helgin að ganga í garð og vonandi gerist eitthvað gáfulegt þá svo mar geti bloggað eitthvað almennilega hérna

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 3. október 2003 kl.: 14:20 Athugasemdir (1)

þriðjudagurinn 30. sept 2003
Loksins loksins getur mar aftur bloggað einhverja vitleysu hérna en vefurinn er búinn að vera úti í nokkra daga vegna eldveggja vandræða hjá skólanum En þetta er allt að koma hjá körlunum og við þökkum nú bara fyrir það

En allavega er ég búinn að setja inn nýjar myndir á vefinn þ.e. úr skírn litla frænda míns Gabríel Arons og svo frá karaokekeppni VÍS 2003.

Svo stefni ég á það að setja inn enn fleiri myndir á næstu dögum úr ferðinni sem ég fór í um helgina þ.e. skotveiðiferð með bræðrum mínum Steina og Finnboga og auðvitað Gústa bróðir líka En þrátt fyrir engan fugl þá var þetta þræl skemmtileg ferð

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 30. september 2003 kl.: 12:37 Athugasemdir (1)

mánudagurinn 22. sept 2003
Jæja þá er góð helgi að baki og má segja að slatti hafi gerst þessa helgi. Þetta byrjaði með djammi með vinnufélögunum þ.e. karaokekvöld og mikið fjör og þó nokkur drykkja
Svo var nú bara rólegur laugardagur sem fylgdi í kjölfarið en sunnudagurinn rann upp með miklum látum. Það var stórleikur Man Utd og Arsenic á Old trafford. Eins og venjulega var þetta hörku leikur sem endaði með dramatískum hætti. Leikurinn fór 0-0 en Ruud van Nistelrooy fékk vítaspyrnu sem hann klúðraði En skömmu áður hafði Vieira fengið reisupassann og allt ætlaði um koll að keyra. En þetta var engu að síður skemmtilegur leikur og góður endir á góðri helgi

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 22. september 2003 kl.: 10:51 Athugasemdir (7)

fimmdagurinn 18. sept 2003
Var að lesa magnaða frétt í fréttablaðinu áðan.....hún er svona

Bankaræningi dæmdur í lífstíðarfangelsi með
fyrsta möguleika á náðun eftir 33
ár. Maðurinn var handtekinn í
sama banka þegar hann reyndi að
leggja peningana sem hann hafði
rænt úr bankanum fyrr um daginn
inn á reikninginn sinn.
Jesse Leonard Youngblood, 36
ára, rændi um 80 þúsund krónum
úr Bank of America. Öryggisvörður
sá hann reyna að leggja peningana
sem var fyrir utan bankann. Verðinum
fannst þetta grunnsamlegt
þar sem Youngblood hafði það að
vana að fara frekar inn. Vörðurinn
vissi að Youngblood væri á skilorði
vegna fyrra bankaráns og grunaði
hann því um verknaðinn. Einnig
var vitað til þess að hann ætti svipaðan
bíl og bankaræninginn sást
flýja á.



Hehehe hvað er á seyði ? Jahérna hér, hvernig datt manninum þetta í hug ? En o well svona er þetta víst bara


Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 18. september 2003 kl.: 14:56 Athugasemdir (14)

miðvikudagurinn 17. sept 2003
Haldiði að kallinn eigi ekki bara ammali í dag Já 27 ára og samt ekki kominn með liðagigt Dagurinn hefur farið vel af stað.....búinn að gefa liðinu hérna í tölvudeildinni þrusu hnallþóru og ektagervirjóma, þannig að það er tryggt að liðið verður á útopnu fram undir hádegið af sykuráti En svo attlar mar að bjóða familíunni heim í kvöld í smá kaffi og spjall....þannig þá úðar mar sykri í þau líka.....usssss, en o well.

Já og svo voru auðvitað mínir mennMeistaradeildinni í gær ! Þeir völtuðu yfir grikkina í Panathinaikos 5-0 á Old Trafford...! Það þarf víst ekki að minnast á það að þetta er einfaldlega besta liðið í heiminum í dag.

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 17. september 2003 kl.: 09:40 Athugasemdir (24)

þriðjudagurinn 16. sept 2003
Loksins komnar myndirnar sem ég er búinn að vera á leiðinni með síðan fyrir helgi Þarna eru myndir af nýju frænku minni Emmu Rakel og svo nokkrar myndir frá þjóðhátíð 2003.

Innlegg eftir Sigurjón Lýðsson þann 15. september 2003 kl.: 23:32 Athugasemdir (0)

mánudagurinn 15. sept 2003
Nú styttist í ammalið mitt En þess má geta að Viðar Hugins á ammali í dag og sendi ég honum hér með kveðju

Ekki get ég sleppt því að minnast á úrslit helgarinnar þar sem mínir menn í Í.B.V. rúlluðu uppa smáliðinu K.R. og það í Frostaskjólinu Já, þeir mega eiga það KR-ingarnir að þeir tryggðu okkur tilverurétt í úrvalsdeild að ári

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 15. september 2003 kl.: 12:49 Athugasemdir (7)

fimmtudagurinn 11.september
Jæja 2 ár síðan að ráðist var á tvíburaturnana í New York......það er eins og þetta hafi gerst í gær ! En mar er að eldast...það er bara þannig

En allavega er ekki hægt að vera eitthvað að velta sér uppúr orðnum hlut og skoða betur léttu hliðarnar á lífinu eins og á þessari síðu, þar sem hægt er að finna upplýsingar um hárlos hunda !?!? Það sem fólki dettur í hug að setja á vefinn
Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 11. september 2003 kl.: 10:54 Athugasemdir (0)

þriðjudagurinn 9. september 2003
Enn fréttir af nýja ættingjanum....þ.e. stúlkan hjá Jónatanni og Lóu hefur verið nefnd Emma Rakel. Lýst vel á þetta nafn Enn og aftur til lukku með þetta.

Damn vill endilega minna á það að frændi minn hann Andrés Þorsteinsson átti ammali í gær Til lukku með það !
Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 9. september 2003 kl.: 10:42 Athugasemdir (0)

mánudagurinn 8. september 2003
Ný frænka ! Jónatan (frændi) og Lóa (ekki frænka ) voru að eignast stelpu rétt í þessu eða kl 12:52. Stúlkan var 16. merkur og 51 cm ! Allt virðist hafa gengið vel og óska ég þeim að sjálfsögðu til hamingju með þetta

Allt vitlaust að gera í fjölskyldunni þessa stundina þar sem að Selma Hrönn frænka var að skíra á laugardaginn og fékk peyjinn nafnið Gabríel Aron Til hamingju með það auðvitað, Selma og Smári.
Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 8. september 2003 kl.: 15:02 Athugasemdir (6)

föstudagurinn 29. ágúst 2003
Jæja þá er helgin að detta inn um hurðina og stefnan er að hanga bara á snúrunni og slappa af Er reyndar að fara í ammali á morgun hjá Ómari þannig að mar veit aldrei

En ég fór að sjá Tomb raider í gær....og mikið helv**i er Angelina Jolie flott !!!
Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 29. ágúst 2003 kl.: 15:52 Athugasemdir (7)

fimmtudagurinn 28. ágúst 2003
Sko þar sem ég skrifaði ekkert í gær (komst ekki inn á vefserverinn hér :-/ ) Þá verð ég að skrifa slatta núna !

Fyrst er það audda ammalisbarn dagsins sem er Ómar frændi.....til hamingju gamli grindhvalapungur (svona ca. 250 kg að mér skilst !!!) með 26. árin

Svo það sem ég attlaði að minnast á í gær þ.e. tónleikarnir með Foo fighters....usss þetta var hrein snilld og ég finn til með þeim sem ekki komust. Já ég er glaður í hjarta mínu eftir þessa upplifun (og smá þunnur og með smá harðsperrur o.s.frv. ;-). ÓTRÚLEGIR tónleikar !
Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 28. ágúst 2003 kl.: 08:24 Athugasemdir (288)

þriðjudagurinn 26. ágúst 2003
Magnaður dagur genginn í garð ! Mar er á leiðinni á tónleika í kvöld með Foo fighters og það frítt !!! Mar er bara á gestalista Get varla beðið eftir þessu...!

Usss svo má ekki gleyma að Bylgja á ammali ! Hún er 23. ára í dag....til hamingju með það
Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 26. ágúst 2003 kl.: 13:06 Athugasemdir (1)

mánudagurinn 25. ágúst 2003
Þá er helgin liðin og var heldur betur hrunið í það á laugardaginn....! Þetta var snilldar djamm en mar er eiginlega ennþá að jafna sig eftir svona átök =) En ég verð búinn að jafna mig áður enn ég gifti mig ;-)Uss svo er ég að fá bróðir minn hann Bóbó í heimsókn til RVK frá Eyjum júhú En helvítis rottan er að fara til Barcelona í fimmtudaginn :-/ Væri mar ekki til í að fara með !
Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 25. ágúst 2003 kl.: 15:44 Athugasemdir (44)

fimmtudagurinn 21. ágúst 2003
Þá styttist í helgina og lítur allt út fyrir að það verði eitthvað sukkað ! En svo er vert að minnast á enska boltann þ.e. ég var að skrá mig í þennan skemmtilega leik ! Mæli með þessum.....hann er að virka fínt


Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 21. ágúst 2003 kl.: 13:12 Athugasemdir (11)

Page:  << Prev  1  2  3  4  5  6  7  8  9  10  11  12  13  14  15  16  17  18  19  20  21  22 23  Next >>


Powered by Web Wiz Journal version 1.0
Copyright ©2001-2002 Web Wiz Guide