|
.:Lýðs:. !
| þriðjudagurinn 11. nóvember 2003 |
Tuð tuð tuð....hvernig er það með íslendinga og jólin ? Það er varla kominn nóvember og strax byrjað að skreyta ! Fór í Kringluna um helgina og þar eru skreytingar komnar á koppinn :-/ En svona er þetta bara. Ætti ég ekki bara að skreyta síðuna mína með einhverju jóla jóla ? Endilega skrifið comment hér að neðan hvort ykkur finnst ég eiga að skreyta síðuna eða ekki með jóladóti 
En svona af öðru, hér eru náttúrulega snillingar á ferð....þetta er grein um þá félaga Jack Black og Kyle Glass úr hljómsveitinni TenaciousD en þeir ákváðu að gera eins og David Blaine galdra gaur að hanga í glerbúri í 44 daga.....en lesið hér hvernig það gengur 
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðsson þann 11. nóvember 2003 kl.: 12:27
|
|
|
| mánudagurinn 10. nóvember 2003 |
Fyrst ég er nú alltaf að minnast á knattspyrnu hérna á mínu blessaða bloggi að þá get ég ekki annað en minnst á mark vikunnar (helgarinnar) sem Eiður Smári Guðjohnsen skoraði fyrir Chelsea á móti Newcastle í gær. Kallinn alveg að gera góða hluti þarna.....vonandi heldur hann því áfram !
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðsson þann 10. nóvember 2003 kl.: 12:58
|
|
|
| mánudagurinn 10. nóvember 2003 |
Jæja þá er þessi líka magnaða fótboltahelgi að baki Aðal leikur helgarinnar var viðureign Liverpool og Man Utd á Anfield....og að sjálfsögðu unnu meistarar United leikinn 2-1 með mörkum frá snillingnum Ryan Giggs Ussss mar ég get víst ekki annað en sent Gústa tengdó og öðrum Liverpool aðdáendum kveðju  
En helgin annars bara nokkuð róleg.....eiginlega bara bolta helgi en kallinn engu að síður þreyttur...hehehe alveg slakur á því. En mar hvílist víst nóg þegar mar fer yfir móðuna miklu 
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðsson þann 10. nóvember 2003 kl.: 09:35
|
|
|
| sunnudagurinn 9. nóvember 2003 |
Vúúúúú húúúúú....ég gat nú varla fengið betri fréttir en þessar á sunnudegi ! Það á víst að vera skjalfest að hljómsveitin MUSE eigi að spila í Laugardalshöll 10. des nk !!! Mikið held ég að ég verði að gera mitt besta til þess að mæta á þá tónleika Það er allavega frétt þess efnis, að þessir tónleikar verði, á vef RÚV ! Það hlýtur að vera þá eitthvað til í þessu En allavega....langaði bara að henda þessu í loftið 
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 9. nóvember 2003 kl.: 22:06
|
|
|
| föstudagurinn 6. nóvember 2003 |
Magnaður andskoti að það sé kominn föstudagur.....en o well Hei já mar, hér er ein enn snilldin....hér er download downloadanna....hér geturu downloadað netinu hehe magnað !
Ohhh mar svo er ég að fá frændur mína tvo í heimsókn í kvöld. Þeir eru að koma til Steina bróðir míns og attla ég að gera eitthvað skemmtilegt með þeim bræðrum Ásbirni og Andrési Þannig að þetta verður svoldil fjölskyldu helgi held ég bara.
Svo auðvitað er það leikur helgarinn þ.e. Liverpool vs. Man Utd á sunnudaginn.....það verður hörku leikur eins og alltaf er á milli þessara liða. Ég er sannfærður um að mínir menn í United vinni þennan leik 3-0 með mörkum frá Nistelrooy (2) og Ferdinand (skalli eftir hornspyrnu) ! En við bara sjáum til 
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðsson þann 7. nóvember 2003 kl.: 11:29
|
|
|
| fimmtudagurinn 5. nóvember 2003 |
Vúhú loksins loksins komnir 1000 gesti Það er svo sem ágætt á aðeins 2 mánuðum En allavega þá verður mar að halda áfram að bera einhvern óhróð í liðið (eða kannski bara þá 2 sem koma hingað inn og refresha síðuna ) En allavega.
Þá er hérna eitt mar.....fékk slóðina á þessa síðu um daginn hjá Ómari frænda Þetta er nú ljóta ruglið....þessir menn vilja víst kaupa sál þeirra sem eru tilbúinir að missa hana !!! Mikið til af nötturum í heiminum í dag 
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 6. nóvember 2003 kl.: 11:26
|
|
|
| þriðjudagurinn 4. október 2003 |
Þá er það meistaradeildin í kvöld. Ég verð að viðurkenna það að ég er veikur fyrir þeim bolta sem spilaður er þar. Enda varla skrítið þar sem að flest öll bestu lið evrópu spila þarna. Mínir menn í United eiga heimaleik við Rangers og er ég viss um að þeir vinni þennan leik 2-0....engin spurning En þetta kemur allt í ljós.
Svo er ekki annað hægt en að minnast á það að Frikki vinur minn og félagar hans í Njarðvík eru að gera góða hluti í körfuni hérna heima og unnu síðast í gær KR á útivelli 82-81. Frikki skoraði víst sigur körfuna í þessum leik (setti alls 17 stig í leiknum ) Glæsilegt hjá þeim og ég er viss um að þeir verði íslandsmeistarar í ár !
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðsson þann 4. nóvember 2003 kl.: 15:11
|
|
|
| sunnudagurinn 02. nóvember 2003 |
Sunnudagur, það er sunnudagur....nei klukkan er að verða 1 að nóttu og þá er kominn mánudagur......lala lala lala lala !?!?!?!? 
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 3. nóvember 2003 kl.: 00:47
|
|
|
| flöskudagurinn 31.október 2003 |
Núúúúú er að renna í hlað ný helgi (nei nei ekki Helgi Karl !) En án efa gerir mar einhver góðan skandal En annars fór ég að sjá rosalega magnaða mynd í bíó í gær...það var engin önnur en Kill Bill í leikstjórn Quentin Tarantino. Maðurinn er náttlega bara snillingur þegar kemur að því að gera myndir og þessi ræma er engin undantekning af því ! Þarna er verið að blanda saman hlutum eins og splatter (mikið blóð sem spreyjast út í loftið !), stíll gömlu samúræjamyndanna skín í gegn og svo kom það mér skemmtilega á óvart hvað það kom vel út að detta inní stutta Manga teiknimynd líka. En eins og ég segi þá er þessi hluti (sem sagt vol 1) hreinasta snilld Ég mæli með henni allavega 
En annars bara góða helgi....ég reyni að henda einhverju hérna inn um helgina 
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 31. október 2003 kl.: 10:39
|
|
|
| fimmtudagurinn 30. október 2003 |
Sko nú er kominn fimmtudagur og helgin nálgast eins og óð fluga ! Það er alveg með ólíkindum hvað vikan er alltaf fljót að líða Það er nú ekki hægt að kvarta yfir því Held bara að mar verði bara í rólegheitum að búa til vefsíðu þessa helgi....þarf að djamma svo mikið í nóv og des hehe
En hér er ein þræl góð vídeó klippa sem vinnufélagi minn sendi mér hehe alveg þokkalega flott dýfa. Kíkið á þetta 
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 30. október 2003 kl.: 11:22
|
|
|
| miðvikudagurinn 29. október 2003 |
Æðislega er leiðinlegt að eiga heima í svona köldu landi. En mar getur víst ekki ráðið miklu um það......hehe En engu að síður er lífið skemmtilegt og svona til sönnunar um það þá fann ég eina skondna vöru sem ég veit að bræður mínir hefðu góð not fyrir Þetta er nokkuð góð græja fyrir gæsaveiðimenn (reyndar er tímabilið að verða búið en....), svona til að dyljast Hérna er hún 
En annars þýðir ekkert að vera tuða eitthvað meira hér Kem bara aftur 
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 29. október 2003 kl.: 15:03
|
|
|
| þriðjudagurinn 28. október 2003 |
Magnað lag sem gengur um á netinu í dag Þetta er lag með engri annarri en indeversku prinsessuni Leoncie...! Ég attla að gefa sem fæst comment á þetta sjálfur Hún svíkur víst engan þessi 
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 28. október 2003 kl.: 15:33
|
|
|
| mánudagurinn 27. október 2003 |
Ussss þá er helgin búin og get ég ekki annað sagt en að mar sé sáttur eftir hana ! Það var auðvitað árshátíð hjá VÍS og var hún alveg mögnuð Mætingin var góð, maturinn var fínn og skemmtiatriðin voru mögnuð Þannig að í heild sinni var þetta frábær árshátíð. Ég vona að ég geti hent inn einhverjum myndum frá þessu sem fyrst 
En ég var víst búinn að lofa sjálfum mér að setja inn myndir frá leiknum sem ég tók þátt í þar síðustu helgi með ÍV og hér eru þær nú komnar 
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 27. október 2003 kl.: 13:34
|
|
|
| föstudagurinn 24. október 2003 |
Jæja nú er að detta inn enn ein helgin Ekki slæmt....mér þykir það ekkert sérstaklega leiðinlegt. En nóg um það ! Ég neyðist til að minnast á að mitt uppáhalds lið í NBA er hið fornfræga og magnaða lið LA Lakers.....hef sko haldið með þeim síðan "87 Mínir menn hafa verið að bæta við sig mannskap fyrir komandi tímabil og hafa ekki minni menn en Karl Malone og Horace Grant bæst í hópinn ! Þannig að mínir menn verða með óhugnalega sterkt lið í vetur (enda misstu þeir af titlinum á síðasta tímabili eftir 3 ár á toppnum). En þó að nýir leikmenn séu að bætast í hópinn að þá á ein stjarnan í liðinu ekki 7 dagana sæla þ.e. Kobe Bryant hefur verið ákærður fyrir nauðgun og er hann víst í réttarhöldum þessa dagana ! En hann á þó góða aðdáendur sem hafa stutt hann í baráttunni, þeirra á meðal er enginn annar en nautið Mike Tyson En við vonum Kobe og Lakers vegna að kallinn verði sýknaður ! Hann fær allavega baráttukveðju hér með frá mér
Ps. Góða helgi 
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 24. október 2003 kl.: 15:23
|
|
|
| fimmtudagurinn 23. október 2003 |
Magnað.....og ég get víst ekki annað en sett þetta hérna inn. Haldiði að Bush bandaríkja forseti attli ekki að gera innrá á Ísland og það með fullum stuðningi Breta, undir forystu Tony Blair hehehe skoðið þetta hér 
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 23. október 2003 kl.: 11:13
|
|
|
| fimmtudagurinn 23. október 2003 |
Jahérna hér....það styttist óðfluga (hvurslags fluga er það ?!?! ) í helgina Og það er hvorki meira né minna en árshátíð hjá okkur í VÍS á laugardaginn Usss það verður svakalegt...!
He he ég sá þessa mynd á netinu af mesta partýljóni ever....vona að ég verði svona sjálfur þegar ég verð kominn á þennan aldur Gamli er alveg snillingur 
Heyrru já svo var ég víst búinn að lofa sjálfum mér því að setja myndir inn á myndasvæðið af okkur félögunum í Í.V. mmmm það kemur s1a í dag....líklega í kvöld bara.
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 23. október 2003 kl.: 11:07
|
|
|
| þriðjudagurinn 21. október 2003 |
Ég verð að minnast á það að mesti gæji sem ég hef á ævinni kynnst hefði orðið 80 ára í dag ef hann hefði lifað enn. Það var höfðinginn sjálfur sem ég er skírður í höfuðið á eða Sigurjón Jónsson, afi minn í móðurætt Hann hefði líklega ekki trúað mér að það yrði á hann minnst á netinu ef ég hefði nefnt það við hann fyrir ca. 13 árum En ég get víst ekki annað En hann var fæddur 21. október 1923.
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðsson þann 21. október 2003 kl.: 21:15
|
|
|
| mánudagurinn 20. október 2003 |
Þá er helgin búin og við tekur vinnuvika....en nóg er af að taka. Fyrst ber að sjálfsögðu að nefna að Jónatan frændi átti ammali í gær. Hann varð hvorki meira né minna en 26. ára....og það virðist ekki skipta neinu máli að þó hann eldist þá er ég alltaf eldri en hann 
En svo vorum við félagarnir í Í.V. að keppa um helgina. Fyrst var spilað á Hvolsvelli við heimamenn í Dímon og unnum við þann leik víst með 15-20 stigum...ég er því miður ekki ennþá með tölurnar á hreinu. Svo kíktum við Tanni frændi með í leik í gær á Flúðum. Þar var auðvitað spilað við heimamenn....Flúðasveppi eða eitthvað þannig og unnum við sannfærandi sigur 86-61 Ekki slæmt þar sem við vorum bara 7 Og það þótti víst til tíðinda að við Tanni höfum spilað með þar sem á það var minnst á heimasíðu frétta í eyjum En ég stefni á að setja inn einhverjar myndir fljótlega frá leiknum í gær 
Já þetta var fín helgi og ekki annað hægt að segja en að næsta helgi verði ekki síðri þar sem það er árshátíð hjá VÍS á laugardaginn.....ussss það verður svakalegt....en meira um það síðar 
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 20. október 2003 kl.: 13:43
|
|
|
| föstudagurinn 17. október 2003 |
Þá er kominn enn einn föstudagurinn....get svo sem ekki kvartað yfir því Hugxa að þetta verði svoldið róleg helgi, attla að keppa í körfu með 2. deildar liðinu Í.V. sem ég og nokkrir félagar mínir stofnuðum í eyjum fyrir þó nokkrum árum Við eigum víst að spila á Hvolsvelli á morgun (kemst líklega ekki í þann leik) og svo á Flúðum á sunnudaginn. Þannig að þetta verður n.k. sport helgi bara núna.....er held ég farinn að eldast bara sveim mér þá
Já svo var ég að fá sendan link á magnaða síðu....þarna er búið að útbúa einhverskonar emulator á líkamshreyfingar þ.e. sýnir göngulag karla og kvenna...mér finnst þetta svoldið töff 
En svo er það spurning um að reyna taka einhverjar myndir ef ég fer í leikinn á sunnudaginn og henda inn eftir helgi 
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 17. október 2003 kl.: 11:42
|
|
|
| fimmtudagurinn 16. október 2003 |
Ég var að finna flotta mynd á netinu af mér og tveimur félögum mínum Það eru Tóti og Reynir.....! Þetta er tekið á Gauknum sl. helgi.
Hmmm svo kemur mar líklega aftur inn s1a í dag 
|
| Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 16. október 2003 kl.: 10:28
|
|
|
|
|