Minnumst Munchen slyssins Það er vert að minnast þess að í dag eru 50 ár síðan hið margumtalaða Munchen slys varð. Þannig var að leikmenn Manchester United voru á heimleið frá Júgóslavíu og áttu að millilenda í Muunchen. Lendingin varð hins vegar aldrei sem skyldi og létust 22 í þessu slysi þar af 8 leikmenn Manchester liðsins. Í dag hefur þessa atburðar verið minnst í íslenskum fjölmiðlum, og verður gert víðar, en meðal þess sem fram hefur komið er að m.a. hafi verið minnst tveir leikmenn sem áttu ófrískar konur heima fyrir en aldrei sá þeir þessi börn sín. Einnig slösuðust menn illa og hefur HalldórHenson hannað viðhafnartreyju til minninar um atburðinn. Ágóðinn af þeirri sölu á að renna til stuðnings eftirlifandi leikmönnum liðsins.
Það þarf varla að taka það fram að maður er náttlega´búinn að versla sér þessa treyju og sit ég hérna í vinnunni í henni einum fata......nei kannski ekki alveg en í henni verð ég í dag !
Bóbó á ferð og flugi Annars er lítið að frétta svo sem....var að aðstoða Bóbó bróðir í gær við að flytja, en kallinn er farinn að vinna í Álverinu. Hann er því kominn á stórhafnarfjarðarsvæðið =) Ekki verra.
En o well....best að fara gera eitthvað af viti ;-)
Tvist og bast! Sussi.....sit hérna heima að hlusta á Bylgjuna sem er ekki frásögum færandi nema hvað að Gylfi frændi er gestur hjá Hemma Gunn. Megnað ! Kallinn allstaðar þessa dagana.
Geman að þessu, bara tjill helgi í gangi en annars er verið að mála og svona, þannig að það er ekki kannski alveg slökun í gangi =)
Það er ekki frá því að það er margt spennandi framundan, en í ár eru 35 ár liðin frá gosinu á Heimaey og því er ekki úr vegi að maður smelli sér á goslokahátíð í ár. Ég er auðvitað búinn að panta mér far ;-) Það verður án efa mikið um að vera og mikið af fólki sem ætla að mæta. Vonast bara til að sjá sem flesta......=)
Þorlákur er þreyttur Úfff hvað þetta var undarleg helgi. Við fórum til Köben en ferðin gekk ekki alveg eins auðveldlega fyrir sig. Fyrst var það ferðin í Keflavík en blindhríð gerði það að verkum að við keyrðum útaf og einhverjir 8-9 bílar keyrðu framhjá :-/ En mér tókst að ýta bílnum með Þórey ofurökumann undir stýri :) En þegar komið var á völlinn þá var hvort eð er engin færð =) En við þurftum sem sagt að bíða þarna í c.a. 8 klst og vorum komin á hótelið kl 22 =) Meeeegnað !
Árshátíðin Jamms árshátíðin var svo haldin hátíðleg á laugardeginum og var einkar vel heppnuð. Flottur salur, æðislegur matur og mögnuð hljómsveit ;-)
Heimferðin Á sunnudeginum var svo áætlað að eiga flug kl 20 um kvöldið en við fórum þá í heimsókn bara til Villa og Iðunnar sem var einkar skemmtilegt =) Þar fengum við að slappa aðeins af fyrir flugið heim, sem auðvitað var að frestast líka =) Þannig að við vorum komin heim í kotið kl 3:30 og alveg örmagna eftir samt ágæta ferð =) En okkur reiknast til að ferðalagið, með töfum, hafi tekið c.a. 23 klst =) Svipað og að fara í helgarreiðsu til Ástralíu eða eitthvað =)
Fóstbræður....! Svona fyrst maður hitti á fóstbróður sinn Villa Gumm þá er ekki annað hægt en að henda með einu góðu atriði úr fóstbræðrum hingað inn.....en þetta er um ástina =)
Eins og gær sé eitthvað morgundagurinn !? Hei og hó.....ég er enn með fulle femm en það er náttlega búið að vera vitlaust að gera =) Við vorum, ásamt Gústa tengdó að leggja parket á íbúðina um helgina síðustu og nú er þetta allt að verða klárt. Eigum bara eftir að leggja á herbergin og þá er málið dautt.
Bíógaurinn - Fóstbræður Ég var nú eitthvað að dásama Fóstbræður hérna um daginn og ætla sko að halda því áfram. Hér er með skemmtilegri týpum sem þeir komu með en það er Bíógaurinn. Bara leiðinlega fyndin gaur.
Hahaha mér finnst hann bara flottur =)
Köben hér komum við Jamms við frúin erum að fara í 3. skiptið til Köben um helgina en það er árshátíð hjá vinnunni hennar Skýrr. Mér finnst alltaf jafn gaman að koma þangað og á ekki von á öðru en að þessi ferð verði öðruvísi. Víííííííí ;-)
Kominn aftur..... Það er nokkuð ljóst að mar verður að fara drífa smíðí á nýjum vef, svo mar sleppi við þetta vesen þ.e. þegar menn breyta síðunni minni og eyða út færslum og annað =) Ég er náttlega bara að nota einfalt kerfi sem ég fékk á netinu um árið og það eru engar sérstakar öryggispælingar í gangi á þessu.....enda er þetta bara ómerkilegt íslenskt blogg =) En sumum gaurum þykir mikið til koma að geta eyðilagt en það er þeirra misþroski ekki minn =)
Nýtt efni á morgun Nenni ekki alveg að blogga neitt í dag en ég minni fólk á að horfa á Sjálfstætt fólk í kvöld en frændi minn hann Gylfi Ægis er gestur Jóns Ársæls ;-)
Úffff……við frúin tókum mynd á leigu í gær, sem er ekki frásögum færandi, en þar sem ég fór einn á leiguna án þess að vita hvað í skrambanum ég ætti að taka þá fann ég eina alveg magnaða grínmynd. Alveg óvart. Myndin sem um ræðir heitir Delta Farce og fjallar um 3 mislukkaða vini sem “óvart” eða allavega óvænt eru kallaðir í herinn og sendir strax til Íraks. Sko málið er nú þannig að maður hafði engar væntingar þegar myndin fór af stað en þegar uppi var staðið er ég enn að hlæja að sumum atriðum þarna. Bara góð ræma það ! En hér má finna nánari upplýsingar um myndina, leikara og annað. Einn af leikurunum er mjói gaurinn með stóra nefið…..uuuuu DJ Qualls =)
Þar sem Guiness kemur uppúr hverunum !? Já það er víst þannig að ég er að fara, í fyrsta skiptið, til Dublin á Írlandi. Hlakka ekki lítið til að kíkja þangað og vonandi ná að skoða örlítið af landi og þjóð. Ég er engu að síður að fara á námskeið en vonandi verða lausir tímar í eitthvað annað =)
Sweet sixteen =) Hún Dagmar Ósk systir mín átti ammali sl. sunnudag, þann 18. nóvember, en pæjann varð þá 16 ára =) Elsku systir mín til hamingju með ammalið.....þú ert PÆJA ;-)
Well ég er kominn á klakann aftur eftir magnaða ferð til Barcelona. Ég var þarna heilar 6 nætur og er ég enn að ná mér eftir þessa snilldar ráðstefnu sem Tech Ed er ! Ég var mest megnis að skoða vef fyrirlestra en tók svo einn og einn sem var utan þess ramma. Það var einmitt á einum svoleiðis sem ég kynntist Iron Python sem er einfaldlega snilld. Ég sá þar ýmsa góða möguleika á að útvíkka Ægis vefinn minn en ég skoða það þegar fram líða stundir. En já fyrirlestrarnir voru næstum allir eins góðir eða jafnvel betri en ég átti von á.
Ég er svo búinn að liggja með einhverja skítaflensu eftir að ég kom til baka en mar er allur að koma til =)
Ósátta portkonan Við Eric, vinnufélagi minn, vorum oft á þvælingi með kollegum okkar frá Maritech og fórum nokkur skipti í miðbæinn þá sér í lagi á Römbluna. Það er kannski ekki frá sögum færandi nema hvað að í eitt skiptið varð Eric viðskila við hópinn og ég ákvað að bjalla á hann. Meðan ég er að ræða við hann í símann kemur lítil og létt portkona sem bauð blíðu sína með orðunum "Shaggy, shaggy ?" ! Þetta var víst spurning en þar sem ég var upptekinn í símanum þá mátti ég ekkert vera að því að virða hana að vettugi. Þá vatt hún sér að einum Maritech piltanna og bauð sama tilboð en hann afþakkaði. Þegar ég kláraði svo símtalið kom hún aðvífandi, smellti sér fyrir framan mig og kom með boðið aftur "Shaggy, shaggy ?". Hehe ég afþakkaði pent með "No thanks" en þá vildi ekki betur en svo til að vinkonan gólaði "Why not ????" og sló mig í öxlina =) Hahahaha jamms ég var sleginn af portkonu…..allt er nú til.
Harpa á ammali Já hún Harpa frænka mín, Finnboga og Nínu dóttir á ammali í dag og er svo mikið sem 11 ára =) Mér finnst eins og hún hafi fæðst í gær en svona líður þetta hratt. En til hamingju með daginn frænka ;-)
Hvaða rugl ???? Margt er nú undarlegt í þessu landi sem við búum í. Fyrr á árinu varð allt vitláust í fjölmiðlum þegar klámráðstefna var fyrirhuguð hér á landi. Allar húsmæður, og kúgaðir eiginmenn mótmæltu og engin varð ráðstefnan......meira að segja hótelið sem átti að hýsa liðið vísaði þeim frá ! En hvað svo......nú funda hér vopnaframleiðendur á Hilton Nordica og enginn mótmælir ???!?!?! Ég er ekki alveg að skilja þetta dæmi. Ég meina klámráðstefna.....liðið ætlaði að skoða sig um landið og kannski mynda smá lullur og lalla en NEI það er of mikið !
Jim Breuer Get ekki annað en sett þetta videó hérna inn.....þetta er magnaður uppistandari sem lýsir hér hvernig alkahól fer með magann =)
Margt í henni mörgu ! Jamm það hefur margt merkilegt gerst síðan ég bloggaði síðast. Fyrst ber að nefna að ég eignaði mér nýjann bíl en fyrir valinu varð Toyota Corolla ;-) En bíllinn var aðeins keyrður 100km þegar við fengum hann. Þannig að nú er maður á almennilegri sjálfrennireið……allavega í bili. Eins og áður hefur komið fram þá átti Tanni frændi minn ammali sl. föstudag (jamms þann 19. okt) og var mikið um húllum hæ þá. Frændi var með léttan pinnamat frá Eika á Salatbarnum og maturinn sá arna er alveg einstaklega vel heppnaður. Get bara mælt með þessu.
Þessi er eins og minn nema minn er dökkgrár =)
Skandall Ætla nú ekki að hafa mörg orð um þetta en það er alveg ljóst að Margrét Lára Viðarsdóttir átti að vera valin best á lokahófi KSÍ á dögunum en allt kom fyrir ekki. Sú sem var valin var Holmfríður Magnúsdóttir og vill ég ekki taka neitt frá henni en Margrét Lára bar af þetta tímabil !!!!
Myspace Já maður getur ekki annað en verið maður með mönnum og útbúið sér myspace síðu ! Smellti saman einni einfaldri hér á http://myspace.com/sigurjonlyds. Endilega kíkja ;-)
Helgin framundan Nú er kominn tími til a smella sér á suðurhafseyju og slappa aðeins af. Við ætlum að eyða smá tíma með fjölskyldu og vinum og hafa það bara náðugt.
Styttist í þetta ! Jamms það má með sanni segja að það er margt spennandi framundan. Fyrst er það Tanni frændi sem verður 30 ára á föstudaginn nk. Þannig að eitthvað verður skálað líklega þá.
Barcelona Jamms svo fer ég bráðum til Barcelona.....úfff það verður án efa skemmtileg ferð. Sem minnir mig á það að fara skrá mig á fyrirlestrana. En þá er einnig leikur í Meistaradeild Evrópu á meðan ég er í borginni.....þetta verður eitthvað fjör =)
Þorlákur þreytti hvað Hér er góð furðufrétt af eldriborgara sem sofnaði á meðan hann beið á rauðu ljósi.
Svissneska lögreglan var ræst út til að vekja ellilífeyrisþega sem hafði sofnað á meðan hann beið á rauðu ljósi.
Urs Maurer, 78 ára, hafði stoppað bíl sinn á umferðaljósum en varð skyndilega ofur þreyttur á meðan hann beið eftir grænu jlósi.
Ökumenn bifreiðanna á eftir Urs reyndu hvað þeir gátu að vekja kallinn með flautum eða að berja á glugga bifreiðar hans en allt kom fyrir ekki. Að endingu kom lögreglan á staðinn og tókst þeim að opna hurðina.
Aðspurður sagðist hann hafa fengið sér stórann hádegismat og orðið svona svakalega syfjaður þegar að ljósunum var komið.
Þess má geta að ökuskírteini hans var gert upptækt á meðan rannsókn stendur yfir.
Friður sé með yður Jamms það hefur kannski ekki farið framhjá neinum að friðarsúla Yoko Ono var tendruð í gær. Mér finnst persónulega þetta fínt framtak og bara gott fyrir þá sem illa þola þetta mikla myrkur sem er í gangi á Íslandi á þessum árstíma.
En setningin var svoldið fyndin....allt í beinni útsendingu og svona. Virkaði voðalega illa æft. Svo þegar kom að þessu loksins þá var borgarstjórinn okkar mættur til að flytja smá ræðu. ROSALEGA er hann slakur í enskunni ! Það var bara eins og maðurinn væri að læra hana núna ! Hahaha hann var alveg svakalega svipaður Jóni Páli Sigmarssyni á sínum tíma =)
Svo var það liðið sem var með þeim......Ringo Starr....flottur.....ekkja George Harrison og svo var þarna sonur Lennons og Yoko en gaurinn var eins og fuglahræða =) Ég var bara ekki að fatta hver maðurinn var ! Magnað !
Furðufréttin Shit hvað menn geta verið heimskir !!!!
Viltu skipta milljón ? Karlmaður var handtekinn í USA á dögunum þegar hann reyndi að skipta milljón dollara seðil í matvöruverslun.
Lögreglan segir manninn hafa orðið brjálaðann þegar eigandi verslunarinnar gerði seðilinn upptækann.
Maðurinn braut og bramlaði hluti á afgreiðsluborðinu í bræði, sögðu heimildarmenn við fjölmiðla.
Það er ekki til milljón dollara seðill. Frá árinu 1969 hefur 100$ seðill verið sá stærsti sem er í umferð.
Maðurinn neitaði að segja nafn sitt og hljóp á brott en lögreglan rannsakar málið sem peningaþvott.
Hún á ammal í da..... Ég veit að það er kannski kjánalegt að tala um jól svona snemma á hausti en ég meina sumir eru jafnvel búnir að versla allar jólagjafirnar á þessum tíma. En svona fyrst við erum að tala um jólagjafir þá er ég með jólagjöfina í ár ! Málið er einfalt....flest alla ökumenn vantar þetta í bílana sína og ekki eru fáir bílar á landinu ! Jólagjöfin í ár er STEFNULJÓS !!!! En það virðist vera sem svo að þetta sé ekki staðalbúnaður í bílum almennt og því er þetta tilvalið fyrir fólk í jólagjöf. Og ef þetta er einhver nákominn þá kannski má gefa bæði stefnuljósin.
Ammali Hún Bylgja frænka mín á ammali í da. Hún er 25 ára og hefur aldrei verið í betra formi =)
Furðufréttin Samtals hafa tæplega 250.000 manns horft á myndbandið af Evu Nazemson á youtube.com.
Nazemson, sem stýrir kvöldþætti, var með spurningaleik og mann nokkurn á símalínuni þegar hún varð skyndilega veik.
Á meðan maðurinn var að hugsa svar við spurningu einni, vatt Nazemson höfði sínu til hliðar og ældi.
Hún hvarf svo örskamma stund af skjánum en hentist svo aftur í sæti sitt eins og ekkert hafði ískorist.
Eva var ekki lengi að útskýra hvað hafði olli þessum skyndilegu veikindum: "Ég er með svo mikla túrverki að þeir geta hreinlega valdið ógleði".
Í sandölum og ermalausum booooool Úff nú er enn ein vinnuvikan að enda komin og helgin tekur við. Ég á von á að Finnbogi bróðir minn kíki á mig í dag og við ætlum að leika eitthvað =) Reyndar er Ófeigur hérna líka en það er víst vinnulota í Stæyrimannaskólanum ;-) Þannig að ég á kannski eftir að hitta á þá alla um helgina....þ.e. bræður mína =)
Tech Ed 2007 Eigum við ekki að segja að ég sé að fara á Tech Ed ráðstefnuna í ár. Ráðstefnan, sem er stærsta Microsoft hugbúnaðarráðstefnan í Evrópu, verður haldin í Barcelona í nóvember. Já það verður ágætt að komast aðeins í hita þegar veturinn er í algleymingi hér heima.
Furðufréttin Mikið hefur verið talað um "að kasta af sér vatni" í fjölmiðlum undanfarið en lögreglan hefur handtekið nokkra vegna þeirra mála....þá sko eftir að menn eru búnir að hysja upp um sig =) En við vonum að menn séu ekki eins óheppinn og þessi hér !
Eldingu laust niður í lim Króatísks mótorhjólakappa þegar hann var að spræna útí vegakannti. Ante Djindjic, 29, frá Zagreb, sagði: "Ég man ekki hvað gerðist. Eina stundina var ég að spræna og þá næstu er ég að ranka við mér á spítalanum."
"Læknarnir segja að eldingin hafi lennt á lim mínum og farið í gegnum mig en ég var í gúmmistígvélum sem jarðtengdu mig."
Djindjic, sem hlaut aðeins minniháttar brunasár á bringu og höndum sagði einnig: "Læknarnir segja að ég eigi að na mér að fullu og litli vinurinn á að virka fullkomlega…..að endingu."
Eigi skal ég api verða! Jamm það má með sanni segja að margt er nú skrýtið í kýrhausnum. Kem aðeins betur að þvi á eftir =)
Boltinn rúllar enn Okkar menn í ÍBV eiga enn möguleika á að komast uppí Landsbankadeildina aftur en liðið hefur leikið í 1. deildinni í sumar. Aðeins eru eftir tveir leikir en til að eiga möguleika verðum við að vinna þá báða. næsti leikur er gegn Þrótti hér í RVK og spurning hvort það þurfi ekki að fjölmenna á leikinn !? Hlýtur að vera hægt að skoða það eitthvað.
Svo er það alltaf meistaradeildin en hún byrjar í kvöld líka. Mínir menn eiga reyndar ekki að spila fyrr en á morgun.....maður ´kíkir þá á pabba til að sjá þetta.
Furðufréttin Ég hef ekki verið með furðufrétt núna í nokkrar vikur.....held það sé kominn tími til að bæta sig þar. En eins og ég kem að hér í innganginum þá verða víst margir af aurum apar.....en greinilega ekki þessi maður.
Þjóðverji á eftirlaunum, sem vann 2 milljónir punda í ríkislottóinu, hefur neitað að taka við peningnum á þeim forsendum að hann viti ekki hvað hann eigi við aurinn að gera.
Þessi 70 ára gamli maður frá Hameln í Þýskalandi, fór í höfuðstöðvar ríkislottósins í Hannover, eftir að hann komst að því að hafa unnið og neitaði að taka við peningunum.
"Hvað ætti ég svo sem að gera við allan þennan pening? Konan mín er látin, foreldrarnir líka, ég á engin börn eða önnur skyldmenni. Ég vill ekki þessa peninga!". Var haft eftir honum.
Aðspurður sagðist hann aðeins hafa keypt miðann af einskærum vana þar sem konan hans hafi alltaf spilað með.
Forráðamenn ríkislottósins eru enn að reyna sannfæra mannin um að taka við peningunum.
Ómar Garðars, Eygló hans Hlyns Stefáns og Kristian Óliver…..til hamingju með daginn
Jamms, nú hefur mar verið latur við blogg kvikyndið…..svona er þetta stundum. En eftir þessa tónleika með Noruh þá fórum við Þórey á tónleika með meistara Chris Cornell! Sko málið er einfalt gaurinn er svakalegur söngvari, ég meina hann var uppi á háa C-inu alla tónleikana !!!! Bandið sem hann var með var þræl fínt líka og þannig voru þetta bara hinir fínustu tónleikar.
Ammali Það hefur verið mikið um ammali undanfarnar vikurnar en september er náttlega flottasti 9. Mánuðurinn á árinu ;-) En sem dæmi þá átti Emma Rakel frænka mín ammali 8. Sept já og Andrés frændi sama dag. Þá var það Viðar Hugins sem átti ammali 15. Sept, svo er það aðal dagurinn….sem er í dag en það erum við Ómar Garðars á fréttum, Eygló hans Hlyns Stefáns og Kristian Óliver Leiknisson. Já ég er sko hluti af þessum flotta hópi sko =) Finnst það ekkert leiðinlegt. En ég ætla mér að kíkja á Hereford með frúnni í kvöld og fá mér nautasteik…..mmmmmmmmmm.
Eins og sést á þessari mynd, þá breytist maður víst ósköp lítið á milli ára !
Ekki sama hvort það er Jóns eða Norah Jones Well maður er einhvern veginn að skríða saman eftir annasama síðustu daga en nóg hefur verið að snúast. Við bræður fórum í veiðitúr um helgina en þrátt fyrir góðar aðstæður þá var einfaldlega á tali hjá fuglastofninum og við fengum aðeins eina litla önd með hor ! En engu að síður var þetta skemmtileg ferð og vonandi að veiðin skili okkur eitthvað næst ;-)
Tónleikar Við hjónakorn fórum svo á tónleika á sunnudaginn, með hinni mögnuðu Noruh Jones. Eins og við var að búast var yfirbragðið heldur rólegt en fallegt engu að síður. Hún er alveg magnaður tónlistarmaður og tónleikarnir voru hin mesta skemmtun. Ég hef eiginlega bara séð jákvæðar umfjallanir um þessa tónleika og til að mynda fá þeir 4 stjörnur +a mbl.is.
Svo eru það næstu tónleikar en við Þórey erum að fara á tónleika með Chris Cornell á laugardaginn. Þetta verða án efa ögn rokkaðri tónleikar.....vona það allavega =) En annars er ég þræl spenntur fyrir þessum enda verið aðdáandi Soundgarden og svo Audioslave lengi.
Að grípa gæsina Well ég er kominn á ról aftur en maður tók nú nokkuð vel á í hlaupinu sl. helgi. Aðal atriðið var nú að klára hlaupið og ná að safna fyrir góðu málefni. En eins og ég segi þá tókst það, ég kláraði hlaupið á 57 mín og 24 sek betur ;-) Ég er alveg sáttur við þennan tíma, geri bara betur næst.
Menningarnótt Við fórum nú, aldrei þessu vant, í bæinn á menningarnótt þetta árið. Við byrjuðum á því að fara á sýningu á nýrri fatalínu hjá Selmu Ragnars frænku minnar en hún ásamt Hörpu Einarsdóttur eru að hanna föt. Það var bara gaman að skoða þarna hjá þeim og lýst mér bara nokkuð vel á það sem þær stöllur eru að gera ;-) Eftir heimsóknina hittum við á Jónatan frænda og Lóu og fengum við okkur gott að borða saman og svona. Við kíktum svo aðeins að Arnarhóli þar sem tónlistar dagskrá var í boði. En svo var það bara flugeldasýningin sem toppaði gott kvöld og við fórum í koju á eftir.
Framundan Nú er margt framundan en sem dæmi þá er gæsaveiðin farin af stað og við bræður erum í óðaönn að skipuleggja veiðiferðir. Fyrirhugað er að fara fyrstu helgina í september en þá fáum við víst aðgang að túni sem mikill gæsagangur er á. Úfff bara spennandi, enda fátt skemmtilegra en að komast í þess háttar aðstæður.
Hlauptu hlunkur hlauptu Jæja þá er maður að verða búinn að jafna sig eftir Þjóðhátíðina Get svo svarið fyrir það að með árunum verður þetta allaf aðeins erfiðara. En ég held að þetta sé komið.
KHÍ Ég var að lesa grein í Fréttablaðinu um daginn sem gladdi mitt litla hjarta ómetanlega mikið en fréttin var á þá leið að Kennaraháskóli Íslands (KHÍ) ætli að fara bjóða uppá háskólanám fyrir fólk með þroskahömlun. Hingað til hefur nám fyrir þennan hóp einskorðast við stutt framhaldsskólanám og svo bara vinnumarkaðurinn á eftir. En nú er KHÍ sem sagt að fara bjóða 2 ára dimplóma nám í þroskaþjálfa og tómstunda og félagsmálafræðinga. Skólinn er víst sá fyrsti á norðurlöndunum til að bjóða þetta nám. Ég get ekki sagt annað en að ég taki hattinn að ofan fyrir KHÍ ! Skólinn fær hrós vikunnar frá mér ;-) Greinina um námið má finna hér.
Reykjavíkur maraþonið Nú hef ég ákveðið að taka þátt í Reykjavíkur maraþoninu í ár sem fram fer n.k. laugardag. Já ég held það sé kominn tími til að maður spretti úr spori. Reyndar ætla ég að fara 10km en kannski tekur maður hálfmaraþon (21km) næst ;-) En það skemmir svo sem ekki fyrir að hægt er að hlaupa fyrir gott málefni þ.e. eins og í mínu tilfelli ætlar Microsoft að borga 1.000 kr. fyrir hvern km sem ég hleyp ! Einnig ef viðkomandi er í viðskiptum við Glitni þá greiða þeir 500 kr. á hvernig km ! Þannig að ég safna allavega 10.000 kr. sem er ekki alslæmt fyrir góðan málstað. Ég er búinn að skrá mig og það verða vinir mínir í Íþróttafélaginu Ægir í Vestmannaeyjum sem fær upphæðina frá mér. Já en ég vil engu að síður benda vinum mínum á, sem lesa þetta blogg, að hægt er að heita á hlaupara líka þ.e. ef þú vilt þá getur þú heitið á mig t.d. og þá fær Íþróttafélagið Ægir þá upphæð líka ! Ekki væri það verra.
En annars þá er maður bara þræl spenntur, nóg um að vera og margt framundan……l8er ;-)
Jamm það er kominn tími á mig að blogga núna en maður er búinn að vera agalega upptekinn síðustu daga og vikur. Það má eiginlega segja að maður sé rétt að skríða saman eftir verslunarmannahelgina…..hlýtur að koma að því þar sem það er komin enn ein helgin
Þjóðhátíðin Úff, það má segja að Þjóðhátíðin 2007 hafi verið með þeim betri þ.e. hvað varðar veður, dagskrá, stemmingu, mætingu og skemmtilegheit. Veðrið var í tvísýnu framan af vikunni og gæti ég best trúað að margir hverjir hafi beðið fram á síðustu stundu að ákveða hvert skyldi halda þessa verslunarmannahelgi. Í mínum huga var það aldrei spurning þar sem maður hefur í raun ekki farið annað sl. 25 ár eða svo. Í ár var mætt á miðvikudegi til Eyja og nokkurn veginn farið beint í framkvæmdir þar sem verið var að skipta um þak á húskofanum hjá mútter. En það var löngu kominn tími á að það yrði gert þar sem farið var að leka niður á kerluna inni !? En það var engu að síður búið að tala við iðnaðarmenn í Eyjum nokkrum sinnum sl. 3 ár en enginn af þeim sá sér þann sóma í að mæta ! Ojjjjj sé þessum mönnum en þeir vita það best sjálfir hverjir þeir eru og vonandi fá þeir í það minnsta hiksta þegar ég dissa þá hérna En já svo var þetta líka fína skrall alla helgina og það í fínu veðri. Við vorum reyndar ekki með neitt tjald sjálf þetta árið en það hefur sitt að segja. Reyndar fengum við inni hjá Jónatani frænda og Lóu minni sem var æði en það er samt leiðinlegt að vera inni á öðrum, fólk hefur yfirleitt nóg með sitt. En við erum þeim engu að síður afar þakklát fyrir að hafa okkur ;-) Já helgin kom sem sagt vel út og eftir hana var farið í að mála húskofann hjá múttu og er hann alveg prýðisfallegur í dag……held bara krúttlegasta húsið á Faxastígnum.
Nýr sími Ég er loksins búinn að fá mér nýjan síma enda kominn tími á þann gamla. Ég fékk mér HTC S710 sem ég held að sé vel þess verður til að leysa gamla flugfreyju símann af hólmi =) En þetta er svokallaður snjallsími en hann keyrir á Windows Mobile 6 stýrikerfinu. Þarna er hægt að taka við tölvupósti, fara á MSN, skoða vefsíður o.s.frv. Þetta er heilmikil græja og maður verður án efa smá tíma að læra á þetta. En nánari upplýsingar um símann má finna hér.
Framundan Já það er sko margt framundan, komin helgi núna þar sem mikið er um að vera s.s. fyrsta umferð í enska boltanum og svona. Þá eru nokkur afmæli framundan eins og Guðrún Dís (frænka Þóreyjar), Selma Ragnars frænka, Ómar frændi og Selma Hrönn. Svo er ég nú sjálfur í næsta mánuði ;-) Já og Tanni mánuði seinna…..en Tanni og Ómar verða loksins komnir í heldrimanna tölu þar sem þeir ná þeim merka áfanga að verða 30 ára !!!! Bara komnir á fertugsaldurinn =)
En annars þá ætlar maður að taka djamminu með ró og reyna æfa vel og borða rétt, en maður er jú búinn að drekka áfengi held ég fyrir næstu 3 mánuði =)