| Hver er ég? | Bloggið | Myndir | Vísuhornið | Ýmislegt |
.:Lýðs:. !

miðvikudagurinn 18. febrúar 2004
Já maður og annar lifandi.....nú fer að styttast í að þessi miðannarprófs vika taki enda ! En þetta hefur engu að síður verið nokkuð skemmtilegt. Verst að mar hefur varla tíma til að gera mikið annað og á það til að gleyma sér að blogga meira að segja :S En nóg um allt svona væl, það er miðvikudagur og það hefur ýmislegt gerst í dag Það streyma inn einkunnir úr hinum ýmsu verkefnum sem við höfum verið að skila inn og ennþá er þetta í fínu lagi þ.e. þetta er að koma bara nokk vel út

En magnaður andskoti sem ég fékk sendann í gær ef ég man rétt....sko þetta blessaða Idol dæmi er greinilega að draga fram hina ágætustu söngvara í hinum ýmsu löndum en einnig virðist vera mikið um að ekki nærri því eins góðir söngvarar komi líka upp á yfirborðið. Sem dæmi þá eru hér ákaflega slakir söngvarar á ferð en engu að síður eru þeir skelfilega fyndnir

Uuuuu þetta er reyndar Quicktime vidjó og ef þið eruð ekki með þann spilara þá getiði fengið hann hér





Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 18. febrúar 2004 kl.: 19:32

mánudagurinn 16. febrúar 2004
Maður lifandi er mar ekki að nenna að vera fara í próf á morgun :S en það eru víst til verri hlutir en það En Gagnasafnsfræðin getur verið frekar þurr á köflum t.d. þegar mar fer að skoða Normal formin....3NF, BCNF og fl. En vonandi að mar sé búinn að ná þessu.


Hins vegar var ég að fá þetta sent Snilld....þessi gaur ætlaði víst að reyna að fara heljarstökk af sviði á e-h tónleikum.......en Þvílíkur fáviti hehehe

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 16. febrúar 2004 kl.: 23:29 Athugasemdir (2)

sunnudagurinn 15. febrúar 2004
Heyrru heyrru heyrru.....sunnudagur og mar situr enn að læra java En o well það er svo sem ágætt....en eins og Jóhannes Egils á Bylgjunni FM 98,9 segir oft að þá lét ég nokkra kalda detta í gær.....Jóntan og Lóa komu í heimsókn og við frændurnir sátum að sumbli og spiluðum og sungum (væntanlega við mikinn fögnuð íbúanna í blokkinni :-). En það er nauðsynlegt að fá sér einn eða fimm svona annars lagið

En annars....þá er til svo illaruglað lið sem setur næstum hvað sem er á netið.....en það er þó nokkuð fyndið yfirleitt.....hér er eitt ruglið

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 15. febrúar 2004 kl.: 14:10

laugardagurinn 14. febrúar 2004
Laugardagur, laugardagur, laugardagur....get ekki sagt annað en að mér þyki alltaf vænt um laugardaga En annars er mar bara að læra fyrir próf í gagnaskipan sem er á mán. Eitthvað hefur mar ekki verið alveg nógu duglegur að lesa en þetta kemur allt með kalda

En eitt er það sem kemur mér í hugann þegar ég er að rita þetta er lag með Hemma Gunn, þeim mikla snillingi, sem kemur manni alltaf í gott skap. Ég er ekki alveg með það á hreinu hvenær þetta lag kom út en það er hrein snilld.....kíkið á það Og hérna er textinn líka.


Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 14. febrúar 2004 kl.: 15:33 Athugasemdir (6)

föstudagurinn 13. febrúar 2004
Sko það er nú ekki annað hægt en að vera með tvöfalt blogginnskot í dag þar sem það er föstudagur En ég var að rifja smá upp hérna áðan og varð hugsað til myndar frá árinu 1989 sem hét I'm gonna git u sucka.....en þetta var og er snilldar ræma. En eitt sem stendur uppúr í þessari mynd er þegar að pimpinn Fly Guy kemur úr jailinu og fer að rifja upp gamla og góða tíma þ.e. þegar hann var valinn pimp of the year. Þá tryggði hann sigur sinn með vísunni "My bitch better have my money".

Hehehe snilld
Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 13. febrúar 2004 kl.: 11:21

föstudagurinn 13. febrúar 2004
Sko fyrir utan það að það sé föstudagurinn 13. þá var ég í fyrirlestri þar sem sagt var að samkvæmt könnunum á vefum er það alveg 50% af notendum sem koma aftur á vef ef efnið er uppfært reglulega. Hmmmm það segir mér það að ég verð að halda mig á mottunni og reyna að skrifa oftar hérna inn En djöfull er mar búinn að vera slappur í því.

En eins og áður hefur komið fram þá er föstudagur í dag og helgin framundan....hmmm er þá ekki tilvalið að vera með link á myndir af einhverri fallegri konu ?!?! Hvernig væri þá t.d. að linka á myndir af Tiu Carrere ? Hver man ekki eftir henni úr Wayne's World myndunum.....æi þarna oriental gellan Hér eru myndir af henni NUDE

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 13. febrúar 2004 kl.: 10:38

mánudagurinn 9. febrúar 2004
Maður lifandi....nú er ekkert annað að gerast en að vinna í einhverjum verkefnum fyrir skólann....kannski er ég bara best geymdur þar En nú var verið að klára verkefni í viðmótshönnun.....damn er það að líta vel út Reyndar búið að eyða skelfinlega miklum tíma í þetta en hvað gerir mar ekki fyrir verkefni sem gilda heil 10 % !?

En allavega....þá er þetta bara stemming

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 9. febrúar 2004 kl.: 22:19

föstudagurinn 6. febrúar 2004
Well það er víst komið að helgi, eina ferðina enn Mar getur víst ekki kvartað yfir því. En það verður víst lítið um frí þessa helgina þar sem mar þarf að skila enn einu verkefni fyrir skólann á mánudaginn....núna er það viðmótshönnun :-S

En annars var ég að spá í því í gær með hvaða síðu mar gæti bent á.....en Biggi frændi benti mér réttilega á góða síðu sem vert er að skoða ! Þetta er síða sem Gilli Foster er með og er hún með allskyns viðtölum og fleira við gamla Eyjamenn og konur.....endilega kíkið á hana

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 6. febrúar 2004 kl.: 22:07

fimmtudagurinn 5. febrúar 2004
Jahérna hér....mar hefur ekkert bloggað síðan á föstudaginn sl. :-/ Það verður að teljast slappt ! En svona er þetta þegar það er svona mikið að gera í skólanum. En engu að síður hlýtur að vera hægt að blogga eitthvað inn á milli

Damn og mar hefur ekki einu sinni neitt til að segja frá......uuuuu......ég er þessa stundina að forrita í C#.....vúhú....ég er viss um að margir geti skemmt sér við þessi tíðindi.....hei ok, þegar mar verður alveg gjörsamlega uppiskroppa með einhverja góða síðu, þá getur mar alltaf linkað á þessa Hún klikkar aldrei !

En o well...ég kem bara með meira á morgun......

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 5. febrúar 2004 kl.: 00:39

föstudagurinn 30. janúar 2004
Jæja...þá er bara komin helgi....og það verður nóg að gera þessa helgi. Sko fyrst ber að nefna að frænka mín hún Hrönn (systir hennar múttu) átti ammali í fyrradag þ.e. 28. jan og ´varð hún fimmtug.....hver hefði trúað því ?!?! En máið er svo það að á morgun ætlar kellan að halda uppá þetta með góðu partýi í hafnarfirðinum...hver veit nema að það verði bara á Kaplakríkavelli Segi nú bara svona.

En svo er það í kvöld...en Bóbó bróðir er að koma á fastalandið frá Eyjum, til að vera með í ammalinu, og við erum að fara hittast familían hjá pápa í kvöld og éta einhverja snilld....gamli klikkar ekki á því ! Þarna verða svo Amma og Frímmann frændi (þeir sem til þeirra þekkja vita að þá verður eitthvað skemmtilegt í gangi :-) Og eins og ég segi að þá verður þetta örugglega massa fín helgi !!!

Heyrru og svo verður mar að vera með eitthvað sniðugt svona fyrir helgina til að benda fólki að skoða. En þessi gaur er í sakleysi sínu að máta föt í búð....eitthvað sem mar gerir ekki á hverjum degi En tjékkið á þessu vídjói

ps. Ekki mæli ég síður með þessari síðu hér !!! Ég verð alltaf svangur þegar ég skoða hana



Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 30. janúar 2004 kl.: 18:05

fimmtudagurinn 29. janúar 2004
Ussss mar er varla að muna eftir að blogga smá....mikið að gera í skólanum. En ég get nú ekki annað en tekið eina og eina stutta pásu frá java forritun og sett eitthvað smáræðis bull hérna inn. En eitt er ég nú til í að blaðra um er það að snillingurinn Ruud Van Nistelrooy var að skrifa undir nýjan samning við meistarana í Manchester United og gildir hann til ársins 2008 Ekki get ég annað sagt en að það er mikill léttir að þessi samningur er í höfn....það eru ófá lið sem vildu fá þennan leikmann í sínar raðir.

En jæja....þar sem mar á að skila þessu verkefni á morgun að þá er best að halda áfram

s1a !

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 29. janúar 2004 kl.: 20:30

miðvikudagurinn 28. janúar 2004
Það er ekki hægt að segja að mar sé bloggari með bloggurum nema að hafa minnst á Indversku prinsessuna Leoncie alla vega einu sinni ! Félagi minn sendi mér link á síðuna hjá Dr. Gunna það sem hann er að blogga og hann hafði víst fengið bréf frá Leoncie og það er hægt að skoða það hér En hún er greinilega alltaf vælandi....kerlingar greyið.

ps. það er algjört möst að skoða síðuna hjá kerlunni líka

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 28. janúar 2004 kl.: 13:41

miðvikudagurinn 28. janúar 2004
Var aðeins að skoða umferðina á síðuna mína síðan ég fór að blogga....í dag eru rúmlega 2700 manns sem hafa komið inn á síðuna og samkvæmt teljaranum þá var mesta aðsóknin 14. nóv í fyrra en þá voru innlit (gestir) á síðuna 1054 og flettingar voru 1061 ! Það er nú held ég bara nokkuð ágætt

Hér svo helvíti gott skilaboð frá Windows sem er eiginlega vel hugsanlegt að mar gæti lennt í einhvern tímann á ævinni



Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 28. janúar 2004 kl.: 00:36

þriðjudagurinn 27. janúar 2004
Get ekki annað en komið inn aftur með smá innslag. Málið er að ég var að fá link á suddalega frétt ef mar getur kallað það frétt. En málið er að þessi tjelling er ákærð fyrir 6 nauðganir og ef ég myndi lenda í þessu hlassi.....þá myndi ég kæra


Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 27. janúar 2004 kl.: 00:13

mánudagurinn 26. janúar 2004
Veijó, Veijó, Veijó....þá er það magnaður mánudagur genginn í garð.....vó alveg rólegur á FM hnakka kynningu hérna mar ! En allavega þá er mar kominn á ról í skólanum og nóg að gera þar...eins gott að vera á tánum þarna svo mar hellist ekki úr lestinni. En allt í góðum gír ennþá.

Heyrru já ég fékk einn góðan sendan í gær um Michael Jackson....vissuð þið að Michael Jackson hélt að Boys2Men væri heimsendingarþjónusta Damn...gaurinn er freaky á þessari mynd !


Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 26. janúar 2004 kl.: 13:25

sunnudagurinn 25. janúar 2004
Jæja....þá er þessi helgi á enda....en mikið var hún nú helvíti ljúf. Það var sko skellt í sig og hellt á Lækjarbrekku og var það hrein snilld sem þar var boðið upp á. Mæli alveg með staðnum

Hehe svo heyrði ég einn góðan í gær. Það er víst komið nýtt nafn yfir VIAGRA.....þetta er víst kallað uppstúfur hér á landi

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 25. janúar 2004 kl.: 12:56

laugardagurinn 24. janúar 2004
Jæja þá er helgin gengin í garð og ekki leiðinlegt að vera að fara út að borra á Lækjarbrekku í kvöld


En svona af öðru....þá er hérna snilldar mynd sem ég mæli með að þið skoðið



Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 24. janúar 2004 kl.: 17:38

föstudagurinn 23. janúar 2004
Damn.....get víst ekki annað en komið með smá innslag aftur í dag. En ég var að fá þennan skemmtilega leik sendan frá félaga mínum og hann er hrein snilld

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 23. janúar 2004 kl.: 15:48

föstudagurinn 23. janúar 2004
Ussss mar, það hefur svo margt gerst síðan ég póstaði hérna inn síðast þ.e. á undan Vúhú skilaboðunum hér að neðan. En andskotinn hafi það....ég nenni nú ekki að fara að tíunda það hér og nú. Jú kannski ber að nefna að það kom nýtt ár núna í byrjun jan....nokkuð merkilegt get ég sagt

En annars er nóg um að vera þessa dagana. Kallinn bara kominn í skóla og nokkurn veginn hættur að vinna. En that's life og er bara spennandi að vera kominn á skólabekk og læra eitthvað nýtt.

Svo er það audda helgin....en kærastan er að útskrifast úr THÍ á lau og það þýðir bara eitt ! Mar fær eitthvað gott að borra þá Get ekki sagt að mér leiðist það.

ps. áfram jesú, jesú best !

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 23. janúar 2004 kl.: 13:56

fimmtudagurinn 22. janúar 2004
Vúhú....vefurinn virðist vera kominn í lag !!!!!! Magnað alveg.......magnað

Í tilefni af því að vefurinn er loksins kominn aftur á KOPPINN þá er vert að skoða þennan vef HÉR Hugsa sér að drulla á stuðaranum ?!!?



Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 22. janúar 2004 kl.: 19:25

Page:  << Prev  1  2  3  4  5  6  7  8  9  10  11  12  13  14  15  16  17  18  19 20  21  22  23  Next >>


Powered by Web Wiz Journal version 1.0
Copyright ©2001-2002 Web Wiz Guide