| Hver er ég? | Bloggið | Myndir | Vísuhornið | Ýmislegt |
.:Lýðs:. !

fimmtudagurinn 18. mars 2004
Maður lifandi.....það er sko ekki hægt annað en að segja að það sé flest í standi þessa dagana.....vitlaust að gera í skólanum......en gengur samt vel ;-) En svo er það auðvitað snillingarnir á tilverunni.......usssss......en já mar.....svo er það eitt sem mér ber skylda að nefna......sko málið er að ég er og hef reyndar alltaf verið, mikill PIZZU kall og mar getur ekki annað en bent á tilboðið sem er á Pizza 67 þessa dagana......16" kvikyndi er að kosta aðeins 699 kall :-| Reyndar bara 2 álegg......en ég meina pepperoni og Xtra ostur er alveg að virka fyrir mig ;-) En allavega kíkið á þetta.....hér er matseðillinn hjá köllunum ;-)




En allavega......þá kemur meira s1a !
Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 18. mars 2004 kl.: 20:04 Athugasemdir (41)

þriðjudagurinn 16. mars 2004
Jæja, þá er það vísuhornið sem mar var víst búinn að lofa að vera með vikulega.....núna er það helvíti skemmtileg vísa sem er líklega ekki fyrir viðkvæma að lesa.....en engu að síður eitthvað sem flestir hafa gott af að fræðast um ;-) En vísan var fengin útí bæ og þarf ekkert að koma neitt meira fram um það ! Kíkið á hana hér.
Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 16. mars 2004 kl.: 16:05 Athugasemdir (13)

mánudagurinn 15. mars 2004
Usss.....helgin búin og enn ein vikan tekin við....ég get svo svarið það.....ég verð orðinn eldri en sólin áður en ég veit af :ö)
En allavega....nú er mar bara að vesenast í C# í skólanum og fátt annað kemst að.....en það nýtist mér líklegast á lífsleiðinni ;-) En annars þá verður ný vísa sett á vefinn á morgun þannig að tjékkið á því hérna á morgun ;-)

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 15. mars 2004 kl.: 19:22 Athugasemdir (6)

laugardagurinn 13. mars 2004
Stuna......nú veit ég varla hvar ég á að byrja......jú, Steini bróðir er 35 ára í dag og óska ég honum alls hins besta í ellinni ....hehehe. En maður lifandi, við vorum saman bræðurnir í gær hjá pabba að borða, þar sem meistarinn Gústi sá um eldamennskuna.......váááááááá hvað kallinn er magnaður að reiða fram magnaða villibráð !!!!!!! Jahérna hér.....á varla ennþá orð. En svo kom heiðursmaðurinn Óli Granz í heimsókn og tók hann þátt í veisluhöldunum með okkur......ég held að allir hafi verið sammála um það að þarna var á ferð matur sem erfitt er að toppa.....en annars á ég ennþá eftir að tjékka á Smára hennar Selmu frænku.....;-) aldrei að vita hvað hann getur gert......Smári.....það er sko naut og humar sem heillar mig mest.....bara benda á'ða :-) hehe

En svo voru Frikki & co að spila í gær (UMFN) í úrslitakeppninni og rúlluðu þeir Haukum upp í ljónagryfjunni suðurfrá í gær. Leikurinn endaði 100-61 og lítur þetta vel út fyrir þá félaga í dag....vonum það besta með s1i leikinn sem er á morgun á Ásvöllum. En hér er annars umfjöllun um leikinn hjá hlutlausum aðila að sjálfsögðu :-)

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 13. mars 2004 kl.: 18:23 Athugasemdir (6)

föstudagurinn 12. mars 2004
Welll mar.....þá er það sko föstudagurinn mikli sem er genginn í garð ! Já það er sko verið að fara í villibráðaveislu, þar sem tekið verður á svartfugli, gæs og einhverju fleiru góðu ;-) En mar getur varla beðið eftir þessu kvöldi en bræður mínir 2 verða þarna og Pabbi.....og auðvitað meistarinn hann Gústi hennar Öllu en hann ætlar að sjá um eldamennskuna ! Málið er sko þannig að hann Steini bróðir minn á sko ammali á morgun og er þetta veislu til heiðurs honum ! Magnað !!!

Já mar.....mikið rosalega er Leoncie þroskaheft (tek það fram að ég er ekki að setja hér útá þroskaheftfólk !)en hún var víst að rugla eitthvað í Ísland í bítið í gærmorgun að Jón Ólafs, tónlistarmaður, hafi reynt að nauðga sér í steggjapartýi hans um daginn...hehehe...einmitt....hver mundi vilja nauðga þessu fríki ????

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 12. mars 2004 kl.: 13:11 Athugasemdir (182)

miðvikudagurinn 10. mars 2004
Jæja.....var að laga aðeins hérna comment kerfið hjá mér....það er komið núna.....gleymdi einu helv***s dálk í töflunni :) En svona er þetta bara.

En kallarnir í UMFN eru enn að gera snilldar auglýsingar fyrir leikinn gegn Haukum í körfunni en leikurinn fer fram á fös....síðasta snilldin sem þeir gerðu er þessu hér....hehe kíkið á hana. Og endilega commenta eitthvað á þetta hjá mér hérna.....!

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 10. mars 2004 kl.: 23:07 Athugasemdir (29)

þriðjudagurinn 9. mars 2004
Sko nú hefur mar alltaf verið soldill UMFN fan í körfunni....þó sérstaklega eftir að Frikki félagi minn fór að spila þar......en n.k. fös byrjar úrslitakeppnin í körfunni og mætir UMFN þar Haukum......en snillingarnir í UMFN eru byrjaðir að auglýsa rimmuna.....kíkið á fyrsta kvikyndið :-) Þetta er alveg magnað....!

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 9. mars 2004 kl.: 13:45 Athugasemdir (21)

þriðjudagurinn 9. mars 2004
Jæja þá er komin smá nýjung á vefinn.....það er vísuhornið og ætla ég að reyna að setja inn eina góða vísu í hverri viku....hér er sú fyrsta ;) Kíkið á hana

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 9. mars 2004 kl.: 00:43 Athugasemdir (650)

mánudagurinn 8. mars 2004
Heyrru magnaðir hlutir að gerast þessa dagana.....en tilveran.is opnar á morgun eftir að hafa legið í dvala um stund. En nú hafa nýir aðilar tekið við rekstrinum og fer kvikyndið í loftið á morgun þriðjudaginn 9. mars ;) Magnað....þarna verður líklegast boðið uppá svipaða hluti og gert var áður þ.e. tenglar á hina og þessa hlutina og verður gaman að fylgjast með hvernig til tekst.





En annars af manni sjálfum......þá er það náttlega bara læra og læra. En jú mar svo er ég að fá byssuskírteinið mitt í kvöld......damn þá getur mar farið að plaffa á svartfugl og svolleiðis......ussssss.....o well

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 8. mars 2004 kl.: 19:06 Athugasemdir (12)

sunnudagurinn 7. mars 2004
Maður lifandi....er mar að verða nokk þreyttur á viðmótshönnun.....en o well þetta er ekki alslæmt ;) Mar gæti svo sem alveg verið að skeina gamla rassa einhversstaðar á elliheimili.....ekki að ég sé neitt að vanmeta þá sem vinna þá vinnu en ég mundi ekki vilja vera í þeirra sporum.

En annars hefur þetta verið svo rólegt undanfarið að mar er nú varla að blogga neitt með viti. En jú annars verður mar að monta sig af því að liðið manns (Man Utd) fékk ekki nema 1 mark á sig í síðasta leik, sem verður að teljast mjeg gott miðað við leikina á undan. Þannig að það er vonandi að þetta verði til þess að þeir drullist til að vinna leikinn við Porto á þriðjudaginn í meistaradeildinni. En allavega fór Nistinn í gang....hann setti bæði mörk United, en menn hafa verið að tala um það undanfarið að hann sé eitthvað að dala, en kallinn sýndi að hann er enn í topp formi. En allaveg þá bara kemur þetta í ljós á þri ;)

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 7. mars 2004 kl.: 13:35 Athugasemdir (18)

fimmtudagurinn 4. mars 2004
Well o well, nú er mar mættur hérna í Gluggakerfis dæmatíma....en þar sem mar er búinn með verkefnið sem á að gera í dag þá bara´mæti ég hérna og bulla eitthvað ;) En kannski að mar kíki á að birta gögn úr grunninum sem ég er að nota hér í þessu kerfi þ.e. verkefni okkar í gluggakerfum var að birta gögn úr access grunni og gekk það vel og langar mig svoldi að prófa þennan grunn.....sko ASP.NET er snilld og ég held að ég sé ástfanginn af því.....?!?!

.......meira s1a ;)

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 4. mars 2004 kl.: 08:23 Athugasemdir (12)

miðvikudagurinn 3. mars 2004
Sko núna er mar að tala saman.....eða þannig :) Nú er mar kominn á ról og með sama efni og var komið áður ;) Jæja þá getur mar haldið áfram að rugla hérna eins og ég veit ekki hvað........

En allavega.....kannski mar fari og nýti sér einkunarorð Gagnasafnsfræðinnar.......

Klasaður index = Gagnafærslur

Best að drullast til að gera eitthvað af viti
En annars kíkið á þennan ;) hahahaha

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 3. mars 2004 kl.: 18:15 Athugasemdir (6)

sunnudagurinn 29. febrúar 2004
Heiii alveg magnað dæmi sem ég fann á netinu. Það hefur verið eitthvað rannsakað með stafarugl á orðum og hér er bútur úr rannsókninni:

Svmkmaæt rnsanókn við Cmabrigde hkóásla þá stkpiir ekki mlái í hðvaa röð stfiar í oðri eru, það enia sem stikipr mlái er að frtsyi og stíasði
stinaurfn séu á rtéutm satð. Aillr hniir sfitarnir gtea vireð í aöljrgu rlgui en þú gtuer smat lseið það aðvuledlgea. Áæðsatn fiyrr þsesu er að
mnnashgrniuun les ekki hevrn satf friyr sig hleudr oirðð sem hiled.

Ef þið getið lesið þetta endilega pósta athugasemd....gaman að vita hvort þetta virkar

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 29. febrúar 2004 kl.: 17:14 Athugasemdir (7)

sunnudagurinn 29. febrúar 2004
Vóóó pældí'ðí að dagurinn í dag er aðeins að 4 ára fresti Jamm heldur betur magnað rugl að þetta sé til en svona er þetta bara
Damn, það hefur verið eitthvað í fjölmiðlunum að á heimasíðu Dallas Mavericks sé einhver teiknimynd þar sem Jón Arnór Stefánsson kemur fyrir.....þetta var meira að segja í Fréttablaðinu í dag.....en það er alveg með ólíkindum hvað fólk getur tekið eftir svona smáatriðum, en gaurinn er auðvitað kallaður Rookie og hann sést í heilar 4, 75 sek þarna....meira að segja klappstýrurnar sjást lengur En þetta er eitthvað sér íslenskt að finna svona hluti En kíkið á teiknimyndina hér !


Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 29. febrúar 2004 kl.: 16:47 Athugasemdir (5)

föstudagurinn 27. febrúar 2004
Jhérna hér.....enn ein helgin að detta inn Magnað hvað þetta líður hratt. En o well alltaf hægt að gera eitthvað skemmtilegt um helgar þannig að best að kvarta ekki of mikið. En þótt mar þurfi að vera að skólast þessi helgi, sem aldrei fyrr, þá er engu að síður nóg um að vera. Sem dæmi þá fer fram bikarúrslitaleikurinn í handboltanum og eru Í.B.V stelpurnar að keppa í kvennaboltanum Þær eru með alveg massa lið og vonandi taka þær bikarinn með til Eyja. Svo er náttlega umferð í enska boltanum og mínir menn í ManUtd eru að spila við Fulham á útivelli. Spurningin er hvort að Saha skori ekki gegn sínum gömlu félögum !?!?
En jæja, best að fara að koma sér í vinnuna og búa til smá pening

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 27. febrúar 2004 kl.: 11:45 Athugasemdir (5)

þriðjudagurinn 24. febrúar 2004
Snilldar fyrirlestur sem ég sat á í morgun en það var fyrirlestur um ADO.NET þ.e. vefforritun í .NET og lýst mér helvíti vel á þetta. Magnað að geta notað C# til að accessa gögn og verður gaman að prófa þá grunna sem ég á og skoða þá í formi En úbs, kannski ekki allir sem nenna að lesa þetta en mér finnst þetta alveg hrein snilld og verður gaman að skoða þetta nánar

En annars er mar bara á milli tíma og það er víst gagnasafnsfræði að byrja þannig að ég kem bara aftur inn í dag með kannski einn góðan tengil eða svo

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 24. febrúar 2004 kl.: 09:42 Athugasemdir (6)

mánudagurinn 23. febrúar 2004
Jæja þá er ný vika að hefjast og verður mar að fara að reima á sig lærdómsskóna.....strax búið að setja fyrir ný verkefni og það verður nóg að gera í þessu næstu daga En annars var helgin góð og aðeins tekið á drykkjunni sem tókst með afburðum vel En nú verður mar bara að fara að skríða saman aftur.
Já mar, ég er hérna með eina snilld....hehe en nú hefur mar notað Microsoft Word þó nokkuð í gegnum tíðina, en hér er komin útgáfa for tha boyz inda hood Það er um að gera að mismuna ekki þjóðfélagsflokkum hérna !!?

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 23. febrúar 2004 kl.: 14:14

laugardagurinn 21. febrúar 2004
Mmmmmmm laugardagur runninn í hlað og mar kominn með einn góðann kaldann í hönd Já ég frysti á mér lillann og held á honum í annarri og með sinnep í hinni :S En svo er bara spurning um að skella sér aðeins á lífið.....hella í sig nokkrum áður en mar þarf að halda áfram að læra :d
En þessi dagur hefur ekki verið dans á rósum svo sem....hafði það að keyra á annan bíl en það svo sem sá ekki mikið á mínum bíl.....þannig þetta var sem í lagi en gaurarnir á hinum bílnum voru rosalega flottir mar.....hehe sko ég keyrði á brettið bílstjóramegin á framan og gaurarnir skriðu út farþegamegin út.....eins og hurðin mundi ekki opnast Meiru kjánarnir hehe en þetta var eins og ég segi bara smá skráma á báðum bílum þannig að engum varð meint af.

En jæja best að fara koma sér af stað ! s1a

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 21. febrúar 2004 kl.: 21:30

föstudagurinn 20. febrúar 2004
Flöskudagur mættur á svæðið......jæja þá er þetta loksins búið í bili, síðasta prófið var í morgun í Viðmótshönnun og gekk það svo sem ágætlega....hefði reyndar viljað fá lengri tíma þar sem ég hafði ekki tíma til að svara einni spurningu en o well.

Já auðvitað mar, það er heiðursmaður og snillingur sem á ammali í dag, en það er enginn annar en Héðinn Konnráðsson. En kallinn er 50 ára í dag....til hamingju með það kallinn

En já svo er hérna smá vídjó sem er snilld, en þetta er af snillingnum Thierry Henry leikmanni hjá Arsenal....skoðið þetta :d

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 20. febrúar 2004 kl.: 15:46

fimmtudagurinn 19. febrúar 2004
Well o well, mar er ekki að nenna að vera að læra lengur fyrir þetta blessaða próf í Viðmótshönnun......ég reyndar aðeins búinn að sitja við þetta síðan kl 9:30 í morgun......reyndar með smá hléum En samt sem áður er þetta nokkuð skemmtilegt viðfangsefni en þær glærur sem ég er með eru kannski ekki alveg 100% En annars er þetta svo sem nóg til að komast yfir það efni sem skiptir máli

En svona að öðru, þá væri nú ekki leiðinlegt að skella smá í sig um helgina.....væri alveg svo sem til í það. Það er kannski nauðsynlegt eftir langa prófa viku sem er nú að klárast.....sem betur fer

Og kannski í tilefni af því að vikan er á enda komin þá get ég alveg mælt með þessari síðu fyrir þau KARLMENNI sem koma á þennan annars létt slaka vef

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 19. febrúar 2004 kl.: 21:49 Athugasemdir (7)

Page:  << Prev  1  2  3  4  5  6  7  8  9  10  11  12  13  14  15  16  17  18 19  20  21  22  23  Next >>


Powered by Web Wiz Journal version 1.0
Copyright ©2001-2002 Web Wiz Guide