| Hver er ég? | Bloggið | Myndir | Vísuhornið | Ýmislegt |
.:Lýðs:. !

föstudagurinn 18. júní 2004
Hmmmm, flöskudagur maættur og manni finnst eins og það sé nýbúið að vera helgi......manni leiðist þetta samt ekkert sko.......helgin er alltaf velkomin ;-)

Heiii snilld......fann þessa síðu á netinu áðan......þetta er síða fyrir kvenfólk í Lögreglunni.....tjékkið á henni

Vorum aðeins að rugla í liðinu hérna í Tölvudeildinni......við erum víst með AS-400 vél og hefur verið í þó nokkuð mörg ár og sendum við póst á starfsmenn tölvudeildar og sögðumst vera Fornleifafræðingar hjá Árbæjarsafni og óskuðum eftir að fá "gömlu" tölvuna sem er notuð hérna......hehe.......held að liðið taki þessu bara vel =)

well annars bara góða helgi ;-)

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 18. júní 2004 kl.: 12:41 Athugasemdir (6)

þriðjudagurinn 15. júní 2004
Daaaaammmmnnnn, hvar er mar búinn að vera eiginlega ?? Össsss þetta náttlega gengur ekki.......það er sko á hreinu......ég attla að reyna að muna eftir nýrri vísu í kvöld ;-) Kominn tíma á hana.


En annars er mar bara nokkuð góður....búið að vera nóg um að vera......mútta var hérna um helgina og var verið að þvælast með kelluna í búðir og svona......já og audda kom systir mín líka......hún var að fara í sumarbúðir í Reykjadal.

Hmmmm já og svo er mar líklegast að fara kaupa sér fyrstu byssuna......hehe......jamm byssuna.....það er sko tvíhleypa.......Baikal.....ohhhh hvað mig hlakkar til í haust mar......að fara í gæs og svona.....uuuuu ef mar hefur þá tíma...!


Well........l8er...!

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 15. júní 2004 kl.: 13:14 Athugasemdir (8)

fimmtudagurinn 10. júní 2004
Heyrru.....snilld......haldiði að bróðir minn sé ekki bara mættur með blogg......sko hann Ófeigur snillingur...glæsi....endilega tjékkið á því ;-)

Allavega.....ég kem aftur !

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 10. júní 2004 kl.: 08:58 Athugasemdir (6)

miðvikudagurinn 9. júní 2004
Jæja þá er komið að því að setja í vísuhornið....mar verður að reyna standa við að hafa þetta vikulega.....en það má í raun segja að vísa vikunnar sé framhald af vísu síðustu viku þ.e. að enn er hún að gefa innsýn í sorugar hugsanir sem geta hreiðrað um sig í hugum okkar allta heilugustu =)

Allavega....kíkið á hana hér !

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 9. júní 2004 kl.: 21:03 Athugasemdir (18)

þriðjudagurinn 8. júní 2004
Hmmmm.....ef þetta er ekki snilldar Quiz þá veit ég ekki hvað......hér áttu að svara nokkrum spurningum og þá kemurí ljos hvaða illmenni kvikmyndanna þú ert ! Ég var enginn annar en Jack Terrance úr myndinni The Shining.....en hvað með ykkur ?



Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 8. júní 2004 kl.: 17:52 Athugasemdir (5)

þriðjudagurinn 8. júní 2004
Hehe.....snilld......var að lesa fréttablaðið og þar segir að á tónleikum Metallica um helgina hafi Lars Ulrich trommuleikari sveitarinnar veikst skyndilega og því hafi verið góð ráð dýr og þurftu víst 3 aðrir að hlaupa í skarðið fyrir hann......hmmmm ég ætla að vona að hann verði nú í lagi þegar hann spilar hérna á klakanum 4. júlí !!! En hér er annars fréttin á vef Metallica.....þarna eru líka myndir af þeim sem hlupu í skarðið !

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 8. júní 2004 kl.: 11:26 Athugasemdir (0)

Sunnudagurinn 7. júní 2004
Jæja....þá er mar kominn aftur á fastalandið og mar getur ekki annað sagt en að þetta hafi verið magnaður tími í Eyjum.......össsss það var nóg um að vera í Eyjum þessa helgi......það var audda Sjómannadagshelgi og þá er audda nóg um að vera. Mar var sko lenntur í við bryggju um 2200 á fös og þá var lítið annað að gera en að smella sér í koju =)En svo smellti mar sér sem dæmi á Sædýrasafnið (hef ekki farið þar í svona 8 ár...! ) á laugardeginum.......tók sko Dagmar Ósk systir með mér þangað......svo var nú eiginlega bara verið að tjilla restina af laugardeginum.

Sunnudagurinn var svo eiginlega þræl nettur þar sem mar kíkti á Stakkó til að fylgjast með hátíðarhöldum á Sjómannadeginum......þarna voru ýmsar sýningar í gangi eins og Maður og öngull sem var til minningar um Binna í Gröf (sem var ein mesta aflakló landsins á sínum tíma ;-) Svo var audda Byggðasafnið skoðað þar sem margt sneðugt tengt Eyjunum var að sjá.....og svo audda allsskonar ræður og annað og meira !

Svo fór ég með Ófeigi bróðir á smá skytterí seinni part sunnudagsins.....við puðruðum nokkra múkka niður og svona ;-) Þannig að þetta var alveg þræl magnað annars......ég er svo með einhverjar örfáar myndir á símanum.....reyni að muna að pósta þeim á morgun eða eikkað.....en allavega.....bara vinna á morgun og svo bara meira af vísum ;-)

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 8. júní 2004 kl.: 00:07 Athugasemdir (1)

föstudagurinn 4. júní 2004
Vúúúúhúúúú......Eyjar here i CUM =) jamms mál málann er að mar er að fara til Eyja......og hlakkar mig, mér, mín ekkert lítið til ;-) Sko það er seinni ferðin með Jólfinum og mar lendir svona nokkurnveginn c.a. kl 11 í kvöld......svo verður mar bara að hanga þarna fram á mánudag.......össsss þetta verður fine =)



Well......góða helgi bara annars !

ps, Sverrir heldur ennþá að Eyjar séu úglönd =)

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 4. júní 2004 kl.: 11:45 Athugasemdir (7)

fimmtudagurinn 3. júní 2004
Sko.....alveg að detta inn glaðlegur flöskudagur....mar bara á leið til eyja og svona um helgina.......damn lýst mér vel áða ;-)

En annars er lífið bara létt og leikandi og þykir mér ægi fagurt hvað lífið er.........hmmmmm o well þetta er búið !

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 3. júní 2004 kl.: 08:44 Athugasemdir (6)

miðvikudagurinn 2. júní 2004
Well.....á meðan mar er ennþá held ég bara að jafna mig eftir þessa annars góðu helgi.....hehe.....held að ég sé að eldast :-S

En, það er víst kominn tími enn og aftur að vikulegri viðbót í Vísuhornið......núna er það hinir allraheilögu.....en þeir hafa víst tilhugalíf eins og við hin......ef við getum kallað þetta það...?
Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 1. júní 2004 kl.: 23:46 Athugasemdir (5)

mánudagurinn 31. maí 2004
Maður lifandi......mögnuð helgi afstaðin og mar er eins og ég veit ekki hvað.....held ég sé bara ennþá þunnur :-S En þetta kemur allt mar.....góð upphitun fyrir þjóðhátíðina ;-) (mar er sko búinn að panta sér far á þjóðarann :-)

En það var farið í bústað um helgina.....þetta var við Húsafell....það var gist á Kolsstöðum sem er gamall bóndabær en það er búið að skvera bæinn og hlöðuna allsvakalega mar.....ég ætla að stefna á að setja inn nokkrar myndir við tækifæri ;-)

En núna er það bara rólegheitin og svo er það Eyjar næstu helgi....þannig að það er nóg að gera !

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 31. maí 2004 kl.: 15:26 Athugasemdir (7)

fimmtudagurinn 27. maí 2004
Issssssss, þessir svokölluðu samstarfsmenn mínir......þykjast vera félagar manns.......issssss.......pisssss......ekkert að marka þessa pappakassa =) Haldiði að kallarnir hafi ekki farið ferð í Mekka sælgætisins (sorry get ekki sagt hér hvar þetta er......því þá væri ég drepinn :-) og skilið mig einan eftir (reyndar var Gumma fyrrum fitubolla eftir líka.....en hverjum er ekki sama :-) Já ég var bara skilinn einn eftir og það eina sem ég fékk þegar þeir komu aftur var þessi forláta mynd !



.....þessi mynd á sér sko sögu frá þessum ferðum okkar til Mekka sælgætisins......þetta er hraðbanki sem ég notaði í síðustu ferð til að taka út aur fyrir góðu kíló-i af lakkrís......en NEI......allt kom fyrir ekki.....ég mundi ekki fjandans PIN númerið og kortið mitt var hreinlega gleypt !!! Já það var gleypt og ég fékk það ekki fyrr en 8 mánuðum s1a :-(

Þetta virðist hafa verið þeim samstarfsfélögum mínum ofviða (hlógu sig næstum til ólífis :-) þannig að ég var ekki tekinn með í dag........Hvílíkir félagar !

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 27. maí 2004 kl.: 17:14 Athugasemdir (1)

fimmtudagurinn 27. maí 2004
Well well, það er sko búið að vera þokkalega mikið að gera mar......var í gær að hjálpa gamla að flytja.....kallinn er kominn í Fýlshóla.....lýst vel á skrjóðinn þar ;-)

En þarna voru mættir heiðursmenn til að aðstoða greifann eins og Steini bróðir, Gústi guðsmaður og Tanni frændi.....en svo var það Hrólfur sem sá um að keyra draslinu á staðinn.......þannig að það er nóg um að vera.....svo má víst ekki gleyma vinnuni.....nóg um að vera þar.....en það er alltaf best að hafa eitthvað að gera =)

Já svo er það audda helgin mar......kallinn er að fara í bústað.....einhversstaðar......skiptir kannski ekki mestu máli hvar þetta er.......því það er víst deginum ljósara að það verður nóg af varningi frá ríkinu þarna ;-) Meira þarf mar varla að vita......hehe

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 27. maí 2004 kl.: 08:37 Athugasemdir (6)

mánudagurinn 24. maí 2004
Vúúúúhúúúú.......Bikarmeistarar 2004.....ekki verra ;-)



Svo er það audda vísa vikunnar.....hún er komin í loftið....en núna er það sveitalífið sem skoðað er og ýmsu velt fyrir sér hvað sveitalífið varðar....kíkið á hana !!!

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 24. maí 2004 kl.: 12:16 Athugasemdir (0)

föstudagurinn 21. maí 2004
Flöööössssskkkuudaggur !!! Össsssss.......það er bara að detta inn helgi.......eina ferðina enn.....held að það hafi verið einmitt ein síðustu helgi :-/

En það er víst nóg um að vera þessa helgina.....bikaúrslitaleikur þar sem mínir menn í MANUTD eru að mæta Millwall (jamm Millwall er víst til :-) En það er víst alveg nokkuðsæmilegaþokkalegar líkur á einum titli í ár ;-)

Heyrru já mar.....ég var að lesa eitt alveg helvíti skemmtilegt þ.e að minn maður Iron Mike Tyson attlar að stíga aftur í hringinn....hehe.....loksins þegar Lennox Lewis er hættur þá fer Tyson af stað =) En kallin, sem verður 38 ára í sumar, á víst að mæta Kevin McBride. Þetta er víst einhver Íraskratti sem Tyson ætti að ráða við !?!? Mar vonar það allavega......en það verður gaman að fylgjast með þessu ;-)

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 21. maí 2004 kl.: 13:26 Athugasemdir (8)

þriðjudagurinn 18. maí 2004
Jæja þá er kannski kominn tími á að smella einni vísu í vísuhornið.....en þessi vísa er um hina óviðjafnanlegu Ollý frænku sem hefur prófað allflest held ég.....!

Annars er það bara rúlegheðen eins og er.....mar er bara að slappa af ennþá.....þetta kemur allt með kalda ;-)

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 18. maí 2004 kl.: 22:52 Athugasemdir (13)

mánudagurinn 17. maí 2004
Vúhú.......við fengum 8 fyrir þetta blessaða lokaverkefni okkar.....þannig að þetta hefur allt borgað sig á endanum ;-) Glæsi......mar getur víst ekki grátið þetta....!

Heyrru já mar.....ekki má gleyma flottustu auglýsingunni sem er í sjónvarpinu í dag....hehe....þar er vinnufélagi minn og mikill snillingur, Óli Dan, á ferðinni =) En þetta er auglýsing fyrir Landsbankadeildina í knattspyrnu....en kallinn tekur þarna magnaða hjólhestaspyrnu.....eins og hann hafi ekki gert annað =) Allavega.....tjékkið á kallinum næst þegar þessi auglýsing er sýnd ;-)

Heyrru...audda......Metallica.....ég fékk miða.....vííííííí.....reyndar á svæði B en það verður örugglega hægt að redda miða á svæði A ;-) Er með öll járn í eldinum..!

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 17. maí 2004 kl.: 12:36 Athugasemdir (6)

mánudagurinn 17. maí 2004
Well helgin liðin og nóg var um að vera.....fyrst og fremst var skrallað á fös....svo var það bara rólegheit í bústað á lau.....þannig að helgin var bara nokkuð góð =) Svo er fyrsta vinnuvika sumarsins að byrja....þannig að nú er nóg um að vera.

Núna er bara verið að bíða eftir einkun fyrir lokaverkefnið....það hlýtur að fara detta inn...well.....meira s1a

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 17. maí 2004 kl.: 10:51 Athugasemdir (244)

fimmtudagurinn 13. maí 2004
Hahahaha, snilld......nóg um að vera þessa dagana......mar er búinn með skólann í bili og allt að gerast.....það var skilað kl 13 í gær og var svona smá stress í gangi en ekkert alvarlegt svo sem. En svo var farið í munnlegt prof í dag og það gekk bara nokkuð vel fyrir sig.....það voru BARA 5 prófdómarar og hefur mar ekki lennt í því áður ! En já mar.....svo er bara djamm á morgun og ekki lítil tilhlökkun fyrir því ;-) En eins og sést að eftir 22 tíma andvöku var eitthvað svona farið að gerast :-/



Og já.....svo var búið að lofa vísu vikunnar......en hér kemur sú sem átti að koma á mánudaginn......og svo kemur bara önnur um helgina ;-)

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 13. maí 2004 kl.: 20:35 Athugasemdir (1)

páskadagur 2004
Núúúúúúúúú er komið að því mar......það er sko veisla framundan.......já og meðan ég man.......gleðilega páska ;-) En sko staðan er þessi.....mar er á leið í mat í kvöld til Selmu og Smára........já Smáááára.....sko ég segi þetta svona þar sem hann er kókkur á Nordica og hlýtur þá allavega að geta búið til kakósúpu og að flambera hrygg (ég nefnilega kann þetta ekki :-) Þannig að núna þarf mar bara að reima á sig betri magatotuna til að geta tekið við sem mestu........hmmmm.......best að fara að æfa sig.......




Mahhhhhaaaatuurrrrr...!

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 11. apríl 2004 kl.: 11:00 Athugasemdir (8)

Page:  << Prev  1  2  3  4  5  6  7  8  9  10  11  12  13  14  15  16 17  18  19  20  21  22  23  Next >>


Powered by Web Wiz Journal version 1.0
Copyright ©2001-2002 Web Wiz Guide