| Hver er ég? | Bloggið | Myndir | Vísuhornið | Ýmislegt |
.:Lýðs:. !

miðvikudagurinn 28. júlí 2004
Enn er að bætast í tólalífsnauðsynjar fyrir Þjóðarann......var að fá lánaðann magnaðann poka hjá Óla Dan.......össss....snilldar græja.....tjékkið hér að neðan ;-)



Mar verður heldur betur góður með 1,5 ltr af vodka og djús í dalnum !!!! Hmmmmmmm.....svakalegt mar...!

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 28. júlí 2004 kl.: 13:46 Athugasemdir (0)

þriðjudagurinn 27. júlí 2004
Úúúúú nú eru bara 3 dagar í þjóðarann......maður lifandi.......og aðeins 2 dagar í að mar fer til Eyja......en þess má þó geta að ROTTAN Sverrir Jón fer með fyrri ferðinni :-S og ég fer með seinni (eða miðferðinni þar sem það eru 3 ferðir á fimmtudag) En mar er annars alveg að vera kominn í gírinn.....og mar verður víst með brillur og allar græjur.......tjékkið á þeim ;-)



Heiiii og já mar.......snilldar vídjó......takið eftir hvað gellan segir á eftir.....hehehehe

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 27. júlí 2004 kl.: 09:24 Athugasemdir (22)

mánudagurinn 26. júlí 2004
Úúúú hvað þetta var góð helgi......maður lifandi.....hún einkenndist af góðum vinum og frænda....hehe...mar var eiginlega á skinkunni.......og það var kíkt á Celtic Cross.....og við Ómar frændi fengum að taka lagið á neðri hæðinni......well og ekki bara eitt heldur fimm =) Hehe þetta var alveg magnað......og gaurinn sem var að spila á heiður skilinn fyrir að treysta okkur á sviðið :-)

Well svo var mar bara í rólegheitum í gær......kíkti svo á gamla í gærkvöldi og horfðum á fússara......nóg um að vera á þeim vígstöðum.....það var úrslita leikur í Copa America.......United að spila æfingaleik og ég veit ekki hvað og hvað........en allavega......svo er það bara æfing í kvöld og svo að aðstoða frænku......hún er að flytja....!

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 26. júlí 2004 kl.: 14:29 Athugasemdir (31)

föstudagurinn 23. júlí 2004
Hehehehe.......hér er kominn góður leikur til að æfa sig fyrir verslunarmannahelgina......tjékkið á honum =)

Gúdd lökk ;-)

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 23. júlí 2004 kl.: 14:46 Athugasemdir (204)

föstudagurinn 23. júlí 2004
Vúhú.......flöskudagurinn kominn......man.......eftir akkúrat viku verður mar kominn til Eyja og ready á þjóðhátíð......össss......maður lifandi......bara 7 dagar =)

Well mar geriri viíst lítið annað en að tala um þessa blessuðu þjóðhátíð....hehe......nú er mar kominn í þjóðhátíðarlögin......mar verður að hita vel upp.....mar attlar að taka æfingu með Ómari frænda um helgina.....!

Damn......helgin er mætt......glæsi =)

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 23. júlí 2004 kl.: 00:24 Athugasemdir (0)

miðvikudagurinn 21. júlí 2004
Úfff......miðvikudagur......aðeins 8 dagar þangað til mar fer til Eyja.......já það er að styttast í þjóðarann......! Núna er mar bara að undirbúa þetta......er búinn að kaupa regngalla.....hehe.....já það rignir stundum þarna =) Svo er ég búinn að finna loksins stólinn......sko þetta er stóll sem líka bakpoki......snilldar hönnun.......einhverjir heiðursmenn hafa hannað þessa snilld......þetta er svo selt í Rúmfatalagernum ;-)



Svo er það auddað vísa vikunnar......komin í vísuhornið góða......tjékkið á henni......!

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 21. júlí 2004 kl.: 00:14 Athugasemdir (30)

laugardagurinn 17. júlí 2004
Well......kominn aftur á ról......fékk einhverja bölvaða flensu......búinn að ÆLA innyflum í tvo heila dag......en er að verða búinn að jafna mig ;-)

En það er svo sem ekki mikið annað búið að vera að gerast.....fór aðeins í húsdýragarðinn í dag.....hittum þar á Jónatan frænda og Lóu (og audda lillurnar þeirra tvær ;-) En annars, mar er bara að tína sig saman......!

Heiii en eitt....hehe......tjékkið á þessu ! Gaur fer í aðgerð á eistunum á sér.....læknirinn flippar víst og sneiðir af honum djásnið !?!?! Dammmmnnn vonar mar að mar lendi ekki í þessu :-/

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 17. júlí 2004 kl.: 22:34 Athugasemdir (1)

miðvikudagurinn 14. júlí 2004
Möööööö, damn bíður mar bara eftir þjóðhátíð.....ekki nema c.a. 2 vikur í þetta =) Man, þetta kemur allt saman......mar getur allavega tjékkað á dalurinn.is fram að þessu...hehe

Svo er mar líklegast að fá múttu í heimsókn um helgina, þannig að það er nóg um að vera.......tengdó er hérna hjá okkur núna......sit einmitt með Gústa tengdó í fanginu þessa stundina.......hohoho......kannski ekki......en við erum að fara að grilla á eftir......mmmmm......say no more !

Well.......magnað er þetta líf.....það er gott að vera geðveikur....!

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 14. júlí 2004 kl.: 16:00 Athugasemdir (13)

þriðjudagurinn 13. júlí 2004
Jæja þá er loksins komið að því að mar bæti vísu (eða limru) í vísuhornið.......við fáum hér fleiri fregnir af henni Ollý frænku sem áður hefur komið hér fram ! Endilega tjékkið á henni hérna ;-)

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 13. júlí 2004 kl.: 00:37 Athugasemdir (11)

fimmtudagurinn 8. júlí 2004
Maaaannnn......mar er loksins að skríða saman......þessir mögnuðu tónleikar tóku sinn toll en þetta var þess virði.....hehe......hef aðeins verið að heyra frá Ómari frænda síðustu daga en kallinn er í Tjékklandi......magnað að smella sér þangað og skoða sig um.........það sem heillar mann kannski einna mest er að bjórinn þarna er bara að kosta undir 30 kr. !!! Hvað er með það......mar ætti kannski að flytja bara þangað !?!?

Well nú er það bara að safna kröftum fyrir þjóðarann og fara læra þjóðhátíðarlagið í ár.......ágætis lag......hér er t.d. textinn ;-)

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 8. júlí 2004 kl.: 11:06 Athugasemdir (7)

þriðjudagurinn 6. júlí 2004
Well það er nú vert að gera nánari skil á þessari líklegast bestu helgi sem ég hef upplifað……sko þetta fór nú rólega af stað þ.e. á fös var mar bara rólegur og henti sér snemma í háttinn og svona. En svo byrjaði ævintýrið……ef ég get kallað það svo……..dagurinn var tekinn snemma…..vaknaði kl 10 og fór út að skokka, var svo sóttur af bræðrum mínum (Steina og Bóbó) og við forum á búðarflakk…….aðal markmiðið var að finna eitthvað í ammalisgjöf handa pápa………hann varð 56. ára kallinn þennan dag ;-) Well þetta tókst allt á endanum og ég keypti 6 manna kaffistell handa kallinum………hann var ekki lítið glaður með það…..! Það var audda kaffi og með því, svo um munaði, hnallþórur í tugatali og ég veit ekki hvað =)
Það var svo ekki af verri endanum þegar kom loks að kvöldmatnum…….við Þórey smelltum okkur á Hornið…….þetta er fínt pleis…….selja ítalskan mat……mar fékk sér sko pizzu……mmmm……ekki slæmt !
Heyrru svo vippaði mar sér heim…….fékk sér nokkra öl og beint á Gaukinn…….en þá voru heiðursmennirnir í Jet black Joe að spila…..man…..þeir eru svo góðir mar…….úfffff….þarna hitti ég á slatta af fólki………Salla frænka var þarna……og bræður hennar tveir……Ísak og Davíð………svo hitti ég á vinkonur mínar Eygló og Bylgju………ekki slæmt að eiga myndarlegar vinkonur =) hehe þær voru alveg þræl hressar

Well þetta endaði auddað með mikilli ölvun og var mar kominn í háttinn um 4 eða 5 leitið.

Svo var það hinn magnaði sunnudagur……..úúúúú….tónleikar með Metallica……..össss……ég mætti á tónleikasvæðið um 5 með Tanna frænda……við fengum okkur 2 öl á meðan við biðum eftir Sigga Kalla félaga okkar. Þegar hann mætti smelltum við okkur inn í höllina………það var fögur sjón að sjá þarna yfir………ussss annað eins hafði mar ekki séð ! Við smelltum okkur á A svæðið og sátum þar í rólegheitum……..það var svo um 19:30 sem Brain Police steig á stokk…….magnað rokkband þar á ferð……….því næsta var það Mínus……..mér fannst þeir ágætir svo sem……..en þegar þeir voru að klára færðum við okkur alltaf nær sviðinu……..við vorum komnir c.a. 3 metra frá sviðinu þegar Mínus var enn að spila og svo kom alveg klukkutíma pása !!! Maður lifandi hvað það var heitt og þungt loft þarna…….össss og gæslan bara með ½ líters brúsa að skvetta á okkur !?!? Það er ekki skrýtið að það hafi verið að líða yfir folk þarna………á þessum tíma var spennan orðin óbærileg……..mar var að fara sjá uppáhalds bandið sitt á sviði !!! Loksins kom svo að því……ljósin voru slökkt og allt attlaði um koll að keyra……….fyrsta lag var Blackened………..váááá maður……það varð allt crazy…….og ég var engin undantekning þar á…….mar hreinlega sturlaðist……..og þegar það lag var búið og næsta á eftir (sem var Fuel) var rétt að klárast……þá gafst ég upp og bakkaði út úr troðningnum…..þetta var of mikið…….en ég færði mig þó ekki of langt frá þannig að mar sá vel á snillingana ! Kallarnir tóku í það heila 18 lög…….það er ekki slæmt………þetta er án efa það magnaðasta sem ég hef upplifað ! Það er ekki flóknara en það……enda er ég í dag drullu þreyttur og alveg raddlaus =) En það var vel þess virði……….ég verð kominn með röddina fyrir Þjóðhátíð ;-)

Hér er annars playlistinn af tónleikunum…….

Blackened
Fuel
Harvester of sorrow
Welcome home (sanitarium)
Frantic
For whom the bell tolls
St. Anger
Sad but true
Creeping death
Fade to black
Battery
Wherever I may roam
Nothing else matters
Master of puppets
One
Enter sandman
Breadfan
Seek & destroy


Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 6. júlí 2004 kl.: 15:47 Athugasemdir (8)

annar í Metallica.......!
Ég er ekki ennþá að ná þessu........ég var á tónleikum með Metallica í gær........og SHIT hvað þetta var magnað.....ég á ekki orð ! Ég fór með Tanna frænda og Sigga Kalla félaga okkar og við auðvitað tróðum okkur fremst fyrir miðju......úffff hvað það var erfitt að standa í lappirnar þarna :-) En vel þess virði hehe.......og ég get ekki sagt að ég hafi orðið fyrir vonbrigðum......þessir menn eru náttlega bara snillingar ! En ég bara er ekki alveg að átta mig á þessu.........man........well ég var víst þarna.....eða svo segja harðsperrurnar =)

Allavega.....þessi helgi er örugglega ein sú besta sem ég hef upplifað.......Metallica í gær og Jet Black Joe á lau......þeir voru að spila á Gauknum og þarna eru ekki síðri snillingar en Metallica.......þeir voru magnaðir.......klikka sjaldan ;-) Well ég attla að henda inn mynd af tónleikunum.......kem aftur ;-)



Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 5. júlí 2004 kl.: 10:20 Athugasemdir (22)

laugardagurinn 3. júlí 2004
Hannn á ammmmallli hann pápi minnnnn..........já gamli á ammili í dag.......ekki nema 56 ára.....það er nú ekki neitt ;-)

Og svo er það á morgun......ég er ekki að ná því.....en á morgun fer ég að sjá átrúnaðargoðin í Metallica.....össs þetta verður svakalegt.....!

Hei svo hef ég ákveðið að taka smá forskot á sæluna og setja nýja vísu í vísuhornið......þessi er um Náttúruna og hvað hún getur verið slungin =)

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 3. júlí 2004 kl.: 19:28 Athugasemdir (7)

fimmtudagurinn 1. júlí 2004
Fjúúúúúú......nú er að styttast í þessu......METALLICA á sunnudaginn mar.......össss ég er varla að geta beðið eftir þessu.......mar er búinn að selja miðann á B svæðið og kominn með miða á A svæðið......DAAAAAAMN.......reyndar er svo spurning að kíkja kannski á tónleika á lau.....snillingarnir í Jet Black Joe eru að spila á Gauknum ! Ekki slæmt að byrja upphitun á tónleikum með JBJ...well þetta kemur allt saman ;-)

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 1. júlí 2004 kl.: 12:49 Athugasemdir (1)

þriðjudagurinn 28. júní 2004
Hmmmm....nóg um að vera þessa dagana......sko fyrst verður að nefna mína menn í ÍBV en þeir komu sér í 3. sætið í Landsbankadeildinni með 1-2 sigri á Fylki.....já ég verð að segja að þessi úrslit komu mér svoldið á óvart en þó skemmtilega á óvart =)

Well ekki má gleyma að minnast á að goðin í Metallica eru á leiðinni til landsins og ég er enn ekki að trúa því að ég sé að fara sjá þá á sviði.......úfffff get varla beðið ! En hei já mar.....ég er með einn miða á svæði B til sölu....ef einhver vill kaupa þá hafa samband !!!sigurjonl@hotmail.com eða sigurjonl03@ru.is.....fyrstur kemur fyrstur fær ;-)

Heyrru svo má audda ekki gleyma aðalatriðinu.......það er audda komin tími á að smella einhverju í vísuhornið......en að þessu sinni er það limra sem er um hana Boggo gömlu......en hún kann víst ýmislegt meira fyrir sér en aðrir gætu haldið !?!? Tjékkið á henni hér !

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 30. júní 2004 kl.: 00:12 Athugasemdir (298)

mánudagurinn 28. júní 2004
Pjúff.......nuð helgi afstaðin og mar er að tjösla sér saman eftir svallið.....það var sko verið að halda uppá 125 ára ammali og var heldur betur tekið á því......mar þarf svo bara að redda myndum hingað inn......er væntanlega nóg til =)

Well svo er það bara boltinn á eftir og svona þannig að mar bara lætur þetta ganga sinn vanagang !

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 28. júní 2004 kl.: 14:22 Athugasemdir (1)

föstudagurinn 25. júní 2004
Hmmmm......össsss nóg um að vera þessa dagana......félagar mínir á Tilverunni komust í fréttirnar í gær.....útaf einhverju vídjói......well það er víst ekki smekklegt að hver sem er komist í vídjó af aftöku !?!? En ég sá þetta vídjó og það var ekkert fallegt......en minnti á þegar verið er að slagta belju í sveitinni.....!!! Hmmm en annars hér er fréttin !

Heiii já mar.....var á laugarveginum í gær (ekki það skemmtilegasta sem ég geri :-) En engu að síður þá var ég í stæði(fór strax á eftir einum sem var búinn að borga í stöðumælinn ;-) og fyrir framan mig var heilmikið pláss......en þá....kom tjelling á Pajero jeppa og svona gekk henni vel að leggja.....



hehe well það er víst ekki öllum til lista lagt að leggja.....ekki má gleyma að þetta er stór bíll =)

En jæja.....góða helgi ;-)

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 25. júní 2004 kl.: 11:02 Athugasemdir (8)

þriðjudagurinn 22. júní 2004
Jæja, þá er komið að því að bæta í vísnahornið.....þetta er síðasta vísan um prestinn sem gat illa látið tjellingarnar eiga sig sem sóttu messur hans.....þegar hér er komið við sögu er það orðin vitund alþjóðar að þetta hafi komið upp og kallinn er að reyna klóra í grafarbakkann.......well tjékkið á henni þessari ;-)

Svo er bara að styttast í Metallica tónleikana......össsss......var að tryggja mér miða á A svæðið mar......úffffff.....!

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 21. júní 2004 kl.: 23:53 Athugasemdir (1)

mánudagurinn 21. júní 2004
Hvurnig er þetta orðið eiginlega hjá manni ??? Mar er eiginlega að klikka á þessu bloggi hérna.....engin vísa mætt og ekki neitt.....kem með hana í kvöld !

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 21. júní 2004 kl.: 15:21 Athugasemdir (11)

föstudagurinn 18. júní 2004
Össsssssss......ég þarf að selja eitt stykki Metallica miða á B svæðinu......áhugasamir geta sent mér mail á sigurjonl03@ru.is



Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 18. júní 2004 kl.: 17:11 Athugasemdir (6)

Page:  << Prev  1  2  3  4  5  6  7  8  9  10  11  12  13  14  15 16  17  18  19  20  21  22  23  Next >>


Powered by Web Wiz Journal version 1.0
Copyright ©2001-2002 Web Wiz Guide