Öööhöössssss......mar er búinn að vera með skituna uppá herðar en nú er mar búinn að skeina bakið og þetta er að koma ;-)
Nú er mar bara að taka því rólega og svo hefst baráttan aftur á morgun.....það er búið að vera mikið um verkefni og fleiri eru komin í kjú ! En engu að síður er þetta að ganga fokkalega og mar brettir bara upp ermarnar......well farinn að læra ;-)
Jííííííhaaaaaa.......kallinn átti ammali í gær ;-) Þannig að það var mikið um góðan mat í gær.......fór með góða hnallþóru í vinnuna.......át slatta af sykri þar.....var svo flissandi eins og skólastelpa næsta klukkutímann á eftir......en þá var líka bara farið í ræktina og svona......aðeins að ná úr sér sykrinum ;-) En svo var audda farið út að borra um kvöldið......fórum á Hard Rock.......mmmmmm.....það var alveg þokkalegt ;-) En þar sem mar er nú bara að vinna í verkefni þá var bara farið aftur í skólann eftir matinn.........svona er þetta nú bara !
Heyrru já......mar hefur ekki sett vísu í vísuhornið góða lengi.......bætum úr því.......þessi vísa er um það hvernig loðnuskipstjórar fóru að því að viðhalda neistanum á meðan þeir voru á sjó....:!
Wúllí......sko nú er það bara nokkrir klukkutímar í að mar komist á 28. aldursárið........eina sem kannski vantar orðið miðað við hvernig þetta var áður er t.d. að mar var kannski að bíða eftir bílprófi (17) og svo eftir því að verða nógu gamall til að komast í ríkið (20).....já og svo 22 til að komast á suma pöbbana =) En núna er það kannski bara.......uuuuuu......hmmmmm......að verða 30 til að geta verið með stóra ammalis veislu......hehe......það er svo sem eikkað til að hlakka til.
Well mar hefur það allavega fínt í dag og mat getur ekki kvartað =)
Jíhaaa.....ammalið nálgast eins og óð fluga.......sit hérna að læra.......enn eitt skilaverkefnið......eins og sjá má á meðfylgjandi mynd þá getur þetta tekið á taugarnar.......
......svona er háskólalífið bara =)
Heyrru helgin var annars alveg þokkaleg.....var sem fyrr meira og minna að læra.....fór engu að síður aðeins niður í VÍS á fös.....það var karaoke keppni þar í gangi......ég hafði reyndar titil að verja en ákvað að gefa öðrum séns ;-) hehe var að vinna í verkefni til 10 og kíkti svo og tók 2 lög eftir keppnina......það heppnaðist alveg fokkalega.....var með Ómar frænda með og svona.....segjum bara að þetta hafi verið í lagi ;-)
En annars.....þá er það bara 3 dagar í ammalið....þetta kemur allt með kalda ;-)
Bahh hvað mar er eikkað myglaður....var að aðstoða við búferlaflutning í gær og það er ekki laust við að mar sé með harðsperrur í dag :-S Hehe mar er kannski að eldast ? Well það eru allavega bara 10 dagar í 28. ammalið !? Spurning hvort mar geri eikkað þá......kemur í ljós. En nú er verið að massa stýrikerfisverkefni þ.e. við erum að smíða n.k. command prompt fyrir Linux stýrikerfið.....það gengur eikkað hægt eins og er......en þetta kemur allt saman ;-)
Well ég er farinn í koju.....nenni ekki að hanga meira !
Well, sunnudagar eru ekki alltaf þeir skemmtilegustu.....ekki síst þegar þynnkan er allsráðandi =) En það var farið á smá skrall í gær.......byrjuðum á því að fara út að borra á Madonna......snilldar staður......svo var farið að sjá hið magnaða sjóv Hárið......damn var það flott ! Mér fannst það svo fyndið að atriðið sem mest er talað um þ.e. þegar allt liðið stripplast á sviðinu að þegar kom að því þá sá ég því miður eiginlega ekki neitt :-S Attli mar þurfi ekki að fara láta skoða í sér sjónina ! En eftir sýninguna var ferðinni heitið á Reynimelinn og þarf var aldeilis tekið á ölinu ;-) Við vorum þarna í slagtogi við þau Jónatan frænda og Lóu.......og svo Ester og Guðna......þræl öflugur hópur.
Á heildina litið þá var þetta alveg mögnuð kvöldstund og vel þess virði að vera aðeins þunnur í dag ;-)
Jíiííhaaaa......mar er að lesa sig stútfullan af Hugbúnaðarfræði þessa stundina......varð aðeins að standa upp og gera eikkað annað......var búinn að sitja í alveg 10-12 mín ;-)
Svoldið skondið.........mar fékk síðustu jól svoldið merkilegan pakka þ.e. Lean mean fat reducing grilling machine.......sko til að gera langa sögu stutta þá er þetta svo sem fínasta grill ! Sko George Foreman hlýtur að vita hvað hann syngur.....en merkilegt nokk......ég var að grilla hammara í kvöld, sem er ekki frásögum færandi.....nema hvað......fituhrúgan sem lekur af þessu er alveg lýgileg ! Eins og sjá má á þessari mynd þá er þetta fitan sem drýpur af 4 borgurum !!! Og þarna er mar ekkert að nota neina olíju eða neitt !
En eins og George segir sjálfur...i'm so proud of it......i put my name on it !
Úúúúíííí það er nú að styttast í ammalið mitt.......en það eru ennþá 2 vikur í það reyndar ;-)
Well henti mér á soltið skrall á fös sl. það var alveg þokkalegt mar !!!! En það var vísindaferð í boði KB banka og EJS (Mig minnir það :-) En allavega þá var þetta alveg rugl gaman mar og kallinn var nú alveg svartur......tja svona eins og Sambó forðum daga.......Hér eru nokkrar myndir sem voru teknar.....Það er hægt að smella á myndirnar til að sjá þær stærri ;-) Hehe snilldar stemmning þarna......eða svo minnir mig =)
Óli Akureyringur Boss-Man og Anna Sigga =)
Ég og D-Moon
Kallarnir mættir við KB banka
En allavega......nenni ekki að tuða meira......farinn að læra !
Pjúff.....helgin nálgast og það verður nóg um að vera um helgina.....sko mar skráði sig í vísindaferð sem er á fös....það er víst EJS og KB-banki sem attla að bjóða......mar getur ekki misst af því ;-)
Svo er það ammali á lau......en litla frænka mín hún Solveig Þóra varð 2ja ára í gær.....en á lau á Ómar frændi ammali líka......hann verður 37 ára ;-) Þannig að nóg verður að gera á lau !
En svo er það spurning með sun.....það er allavega smá yfirvinna og svona......mar kannski lætur bara renna af sér þá =)
Well.....skólinn byrjaður og það verður nóg um að vera í haust......en þetta byrjar samt ekki fyrr en eftir fyrstu vísindaferðina ;-) En annars þá fór mar audda í bæinn á menningarnótt og sá flugeldana og svona.....
já svo var mar á ættarmóti hjá kærustunni á laugardeginum og svona.....þannig að það var nóg um að vera um helgina......en endaði menningarnóttina á skinkunni eins og lög gera ráð fyrir........en mar verður búinn að jafna sig fyrir næsta fös.......þá er fyrsta vísó =)
Ááááááááfram Ísland.......usssss ég kíkti á leikinn í gær......þvílík stemmning í gangi þarna mar......magnað helvíti......það er ekki annað hægt að segja en að þetta hafi verið frábær leikur......topp veður......topp aðstaða......topp mæting (Snorri Rúts :-) en allavega.....hér eru 2 myndir sem ég tók í gær....reyndar með símanum mínum =)
Hauuu eitt sem ég tók eftir í gær þegar ég var að þvælast í Firðinum Hafnarfirði......kallinn þurfti aðeins að skreppa á tojarann, sem er ekki frásögum færandi nema hvað að þegar ég var að fara inn á settið var þetta skilti sem eikkað trufla mig..........
Dæmi nú hver fyrir sig.....ég allavega átti erfitt með að skila mínu þarna og var sífelt að líta yfir öxlina til að kanna hvort þetta stæðist eða ekki.....!
Pjúff mar.....nú er allt að gerast.......landsleikur í kvöld þ.e. Ísland vs. Ítalía......mar getur ekki annað en mætt á leikinn......fer með Gústa tengdó.....en greifinn er að koma í heimsókn í borgina miklu ;-) Heyrru svo er víst vefur hérna sem er tileinkaður þessum leik......tjékkið á henni !
Hauu já svo er mar með link á síðu sem vert er að skoða....nú er Microsoft kominn með nýjann service pakka fyrir Win XP.....en heyrst hefur að eitthvað af forritum og leikjum virka illa eða bara ekki eftir þessa uppfærslu og hér er listinn yfir þau forrit og leiki ;-)
Well......nóg er um að vera þessa dagana...mar er að fara að byrja aftur í skólanum þ.e. á mánudaginn to be exact.....ekki er annað hægt að segja en að manni hlakki bara til......það verður gaman að takast á við það sem á að kenna í haust m.a. Stýrikerfi (Linux, Unix o.fl ), Hugbúnaðarfræði, Reiknirit og Hönnun og smíði.....úff og svo er audda lokaverkefni ;-)
Hauu mar er mættur með eina góða í vísuhornið núna.....þessi er um graðpinnann Árna Johnsen sjálfann.....tjékkið á'enni ;-)
Hmmmmm sunnudagur.....og mar er ekki einu sinni þunnur =) Mar fór bara í bíjó í gærkvöldi og svona.....var ekki alveg að nenna á djammið.....fór að sjá myndina The Village....hún var alveg ágæt sko...svo er mar bara að vinna í dag :-) Pjúff.....svo er bara ræktin í fyrramál......það þarf að reyna að koma sér í eikkað form......hehe......vonum það allavega ;-)
Well, mar er ekki alveg að standa sig í að blogga þessa dagana.......en nú er lag.....já laxmaður nú er lag =)
Mar henti sér í Laugar í morgun með Gvenndi vinnufélaga mínum.......það var slatta vel tekið á því......það verða einhverjar harðsperrur á morgun.....vúhú !
En já mar.....svo er að detta inn helgi.....hmmm....hvað skal af sér gjöra ?! En hehe ég var að horfa á ísland í bítið í morgun og hvað haldiði.......Gylfi frændi (Ægis) var þar mættur með milljónamæringunum og er að fara spila með þeim á balli á Broadway á morgun =) Ja hérna hér.......öllum er nú hleypt á svið :-)
En svona er þetta bara.......well, kem kannski seinni í dag aftur......!
Heyrru.....það er kannski í lagi að setja vísu í hornið góða......uuuuu.....þessi á vel við á erfiðum sunnudegi.....mar kannast við það að hann geti verið erfiður stundum =)
Vóóóó......mar er ekki búinn að blogga í hálfan mánuð núna........issss það er engin frammistaða.......well mar er náttlega nýkominn frá Eyjum og audda fór mar á þjóðarann.......sem var hrein snilld........veðrið var massa fínt og það gekk aðeins á með mikilli ölvun.....svo einfalt var málið !
Mar reyndar lennti ekki í Eyjum fyrr en um 23 hundruð á fimmtudeginum þannig að mar var ekkert sérstaklega að nenna að skralla það kvöld......var bara stilltur og fór snemma í háttinn......enda átti mar eftir að vinna þetta tímatap upp ;-)
Mar var svo kominn í skál um 17 hundruð á fös og mar var alveg að hanga á skrallinu til svona um 6......þá var mar bara eikkað þreyttur og henti sér aðeins í koju......en um 11 var kallinn kominn aftur á ról og þá var það bara öl og mar var kominn aftur á rall......en þar sem mar fór svona snemma af stað þá var mar líka kominn heim um 05 hundruð.......issssss......en þá var það bara sunnudagurinn......hann var tekinn með trompi og mar var að detta inn um dyrnar heima hjá múttu svona uppúr hádeginu á mánudeginum......þannig að mar vann þetta upp ;-)
En annars af öðru þá stóðu aðal þættir þjóðarans alveg undir eftirvæntingum.......eins og brennan......flugeldarnir og Johnsen-inn og brekkusöngurinn.......svo var mar að hitta slatta af fólki sem mar hafði ekki hitt lengi og svona......þannig að þetta var alveg hrein snilld......!
Well mar þarf að henda kannski einhverjum myndum hérna inn.....tók nokkrar á símann......kíki á það...!