Well...mar hefur lítið verið að blogga undanfarið......en það er búið að vera crasy að gera.....mútta og Dagmar systir voru hérna um helgina og var mikið gert......við fórum meðal annars á stóru stundina okkar (magnaðir tónleikar fyrir börn sem fullorðna :-) og svo var audda verið að tjilla bara.....svo var mar að klára prófin á mánudaginn......úffff það var mikill léttir.....og audda var hrunið í'ða ;-) hvað annað......við fórum í partý liðið sem var að klára prófin og flestir voru komnir í bjórinn kl 12 þennan dag....jamms það var hádegismaturinn hjá mörgum =) En ég fór ekki af stað fyrr en kl 4.......en allavega......verð að þjóta ;-)
Hmmmmm fór aðeins að pæla hérna áðan.....sat, sem aldrei fyrr, á dósinni og fór þá að velta fyrir mér hinum ýmsu hlutum (það var bara út af því að helvítis Fréttablaðið var ekki komið......búúúúú) En málið er nú þannig að ég fór að velta fyrir mér hverjar mælieiningarnar ættu að vera hjá mér.......uuuu sko......ég fer að meðaltali 2 á dag á settið......eigum við ekki að segja í c.a. 8 mínútur að meðaltali.........ok.....svo er ég búinn að gera þetta svona í c.a. 20 ár.......eigum við ekki að segja að þetta sé aðeins 8 mínútur þar sem fyrstu 8 árin var ég kannski ekki eins lengi að meðaltali ;-) En þá er þetta þannig:
Á hverju ári er það þá 365 * 16 (sem er mín á dag) = 5840 mín á ári eða c.a. 94,4 klst á ári......úffff er það furða að mar sé þreyttur í óæðri endanum stundum.....!
Ok, svo er það pappírs notkunin........verðum við ekki að hugsa svoldið um regnskógana !? Sko.....málið er þannig......ég nota alltaf blúbbsvörn.......og yfirleitt vel til að þerra kvikyndið.........mmmm.....eigum við ekki að segja að þetta séu svo 160 cm í hvert skipti........þá er þetta þannig:
365 * 2 (sem er fjöldi á dag að meðaltali) = 730 sinnum á ári og svo er það metra fjöldinn.........
730 * 160 = 116.800 metrar.......úfffff það er slatti :-S Daaaaaaaamn..........þetta er svo sem ágætt að skoða svona svart á hvítu.......hmmmm........eða kannski bara hugsa minna um þetta hér eftir........ef blaðburðarkvikyndið stendur sig bara =)
Heiiiiiii......systir mín......Dagmar Ósk átti ammali í gær og ég gleymdi að blogga mar......en ég hér með óska henni til hamingju með ammalið.......þá er búið að opinbera það ;-) En mútta og Dagmar koma til okkar í kvöld.....hlakka ekki lítið til.......úúúúhaaaaa
Well það er víst próf á morgun.....best að fara læra ;-)
Man ó man.....próf í fyrramál.....stýrikerfi skal það vera heillin....skondið próf fyrirkomulag þ.e. mar má vera með öll gögn sem mar vill s.s. glósur, kennslubók, verkefni og svolleiðis.....þannig að þetta verður eikkað spennandi að prófa =)
Hauu já mar....litla systir mín......Dagmar Ósk er með smá blogg hérna á veraldarvefnum......tjékkið á henni hér =) En Dagmar og mútta attla að koma í heimsókn til mín á föstudaginn og gista hjá okkur Þórey.....En Dagmar verður 13 ára á fimmtudaginn......@ttli við förum ekki með systir í húsdýragarðinn eða bíjó eða eikkað....finnum eikkað skemmtilegt að gera =)
Jæja.....þá er langur dagur að baki og kjellinn kominn í ölið......ágætt að fá sér tvo fyrir svefninn ;-) Mar er bara búinn að hanga á office-inu hérna @home......er bara nokkuð sáttur við aðstöðuna....
mar er búinn að koma sér sæmilega fyrir.....svo er það Man Utd vs. Newcastle á morgun.....vonum það besta ;-)
Hmmmmmmm - mar hefur nú ekki alveg verið nógu dullegur að blogga mar.....well þetta kemur í skorpum......
En allavega.....mar er að byrja í prófum og svona þannig að mar er bara að læra þessa dagana.....sem aldrei fyrr ;-)
Well - mar er búinn að henda inn nýrri vísu ;-) Var kominn tími á það......en síðasta vísa fékk góð viðbrögð og gaman að heyra að fólk hefur gaman að þessu =) En þessi vísa er um glataða sénsa og eftirsjá......!
Vííiííííííí Maður lifandi.....mar var alveg rólegur þessa helgina....issss.....well það eru reyndar að koma próf....byrja víst 16. í prófum......þannig að mar verður bara að læra næstu daga. Heiiii sem minnir á það.....ég eignaðist þetta forláta pennaveski árið 1988 og það var alltaf draumurinn að útskrifast úr háskóla með það.....
....glæsilegt mar.....reyndar eru ekki allir jafn hrifnir af þessu en svona er þetta bara :-)
Úúúúú ííííí meira ruglið alltaf mar.....var rétt í þessu að skila verkefni í hönnun og smíði (java, jsp o.fl forritun) og eins og svo oft áður vorum við nokkrir að skila svona 10 mín fyrir setta skilatímann =) Reyndar skilaði ég kl 21:30 þannig að mar var síðust 30 mín að skoða bara PrOn á netinu ;-)
Well nú er að styttast í nýja vísu....þarf að drusla henni inn....
Hauu tjékkið á þessari mynd mar.....þetta er pabbi minn (sko þessi hægramegin :-)og einhver vinur hans sem var með honum á sjó í den......gamli er sko flottastur mar
Vííííííí.......nú er mar bara fluttur mar.......kjellinn kominn í Hafnarfjörðinn ;-) Þetta er algjör snilld.......stærra slot og svona......getur ekki verið betra.........en ein aðal ástæðan fyrir þessari stækkun er sú að fjölskyldan er að stækka......ég var að fá mér þennan......
Hehe þannig að mar þarf alveg heilt auka herbergi fyrir kvikyndið.....!
Well svo er mar bara í skólanum núna.....þarf að skila einhverjum 4 verkefnum eftir helgi.....þannig að það er nóg að gera.....!
Hau hau hau.....það er allt að gerast þessa dagana....frænka mín hún Selma Hrönn og listakokkurinn Smári voru að eignast nýjan gaur á föstudaginn (22. okt) kl 22:15 en hann var víst 50 cm og 16 merkur (bíddu eikkað kannast ég við þessar tölur.....var að koma af sprænaranum :-) hehe en hér er mynd af gæjanum.....
Þið getið líkað skoðað fleiri myndir og svona af þessu hér !
Já mar.....svo var mar að koma úr bústað í dag.....vorum í biskupstungum í bústað sem kenndur er við Fell.....það var alveg magnað.....grillað og potturinn og og öl og svona.....fátt betra til ;-)
Well svo fær mar víst íbúðina á morgun......jííííhaaaa......hlakkar ekki lítið til mar.....þetta verður magnað.......Hafnarfjörður here we come.....
.....þá er það ný vika.....úfff....sit heima eins og er......eikkað slappur í mallakútnum :-S well það hlýtur að lagast.....já mar....tók þessa mynd hérna í salnum í Laugardalshöllinni á fös.....var sko í gæslunni...
Þarna var náttlega nýbyrjað að hleypa inn.....en það var alveg pakkað í höllinni þetta kvöld.....og snilldar tónleikar !
Heiii svo er byrjað að kjósa vef ársins á Íslandi í dag.....það er hægt að kjósa besta fyrirtækjavefinn og besta afþreygingarvefinn o.fl. tjékkið á því hér !
Wellll.....nú er mar mættur við skjáinn......United er að spila við Birmingham......hörkuhópur hjá mínum mönnum.....Scholes er að koma og er á bekknum, ásamt Rooney....man.....ekki slæmt að vera með þessa tvo á bekknum =)
Heyrru.....ég var að vinna á Prodigy tónleikunum í gær....var í gæslunni....það var fínt mar.....ekkertu um vesen eða neitt.....bara fyndið að sjá suma gaura dansa við Prodigy....ég er greinilega ekki einn um að vera eins og Gosi spýtukall =) hehe
Megnað.....well.....ég attla að horfa á leikinn ;-)
Well.....mar er nú bara hálf slakur í'onum eftir síðasta skilaverkefni.....hehe....en þetta er allt að koma ;-) Hauuu já mar.....ég var nú búinn að lofa að koma með eina góða vísu í vísuhornið góða......málið er núna þannig að mar vaknar stundum á nóttunni....eða á morgnanna bara.....og mar er með svona hland bóner.....vísan að þessu sinni tekur á einu slíku tilfelli...!
Víííííí´loksins er mar búinn með þetta blessaða verkefni í Hönnun og smíði....þetta var þræl magnað verkefni en nokkuð sein unnið.....en þetta kemur allt mar.....
Svo er það fös mar.....er að fara vera í gæslu á Prodigy tónleikunum......össs það er ekki verra.....þeir eru magnaðir þannig að þetta verður fínt ;-)
Hauu svo attla ég að setja nýja vísu inn mar.....geri það kannski í kvöld.......ef ég nenni :-)
Vííííhaaa.....well það er kominn laugardagur og mar er á fullu að læra.....það er verið að massa verkefni fyrir kúrsinn hönnun og smíði hugbúnaðar.....úfff þetta er stemmning en tekur engu að síður langan tíma að gera þetta.......mar er kominn í skólann og kannski er bara ráð að fara að drullast til að byrja á þessu =)
Öööööööööööö......mar er eiginlega búinn að vera á hvolfi.....hehe.....well það er viss stemmning í því ;-) En það var sko all svakalega tekið á því á lau.......úfff ég held að ég sé rétt að ná mér núna :-/ En það var sko lokahóf hjá Duffa.....krattspynnuliðinu sem ég hef verið að sprikla með.......en við mættum félagarnir til Gests Magg og þar var nóg um ölið og kjellinn tók vel á þeim ! Svo var audda farið á kráarrölt og mar kom sér ekki heim fyrr en um 8 :-S Ég reyndar lagði af stað heim um 6......en labbaði sko =) Hitti þessa snót á leiðinni......
Well þetta voru mikil átök......var alveg úrvinda í nokkra daga......en já mar svo fór ég með kjellunum í bekknum mar að læra á mán......við fengum sal í Þjóðmenningarhúsinu....össss.....aðstaðan var svakaleg.....kjellinn hafði ekki komið þarna inn áður og hann var svona líka hrifinn.......og ekki má gleyma vertinum.....Daníel Mána......úfff hann bar í okkur bakkelsið eins og ég veit ekki hvað......hann á heiður skilið fyrir þetta ;-)
Well best að fara drulla sér að læra....það er nóg um verkefnin ennþá ;-)
Úfff mar....var eiginlega að vakna.....var að vinna að forritunarverkefni í Reikniritum í gær......með Bossman....við erum hrikalegt team ! Hreinlega snillingar....
well svo má segja að mar sé ekki að ná því uppí nösina á sér með nýjasta leikmann ManUtd....Wayne Rooney......maður lifandi peyjinn er snillingur.......setur 3 mörk í sínum fyrsta leik.....hehe.....það er náttlega bara fyndið ! Ég var einmitt að bera aðeins saman við það þegar Diego Forlan kom til United.....hann greyið skoraði ekki fyrr en hann var búinn að spila einhverja 36 leiki eða eikkað......og virtist ekki vera að fúnkera með liðinu......en Rooney er allavega að kikka hressilega inn....það er nokk ljóst.
Heyrru já mar....svo er má ekki gleyma aðalumræðinnu sem er í gangi þessa dagana.....búið að handtaka 12 manns út af kvikmynda eignahaldi og músik og svolleiðis.....svakalegt.....það er eins fallegt að mar á leyfið fyrir win2000 á þessari vél......hmmmm.......vonandi =)
Jæja þá er það mánudagurinn.......ööööö.......alltaf jafn skemmtilegur =) En mar verður nú að vera bjartsýnn á þetta......hei já var að útbúa síðu fyrir æfingarnar.....rUmApLaNiÐ svokallaða =) hehe tjékkið á því !
Annars er það bara skólinn.....þarf að fara koma mér ;-)
Daaaamnnnn.....það er sko búið að vera nóg um að vera þessa dagana.....fimmtudagurinn sl. var heldur betur fínn mar.....dávaldurinn sem var búinn að vera í fjölmiðlunum í síðustu viku kíkti í skólann......hehe.....hann fór á kostum þar.....svo fór mar í FÁ og sá snillinginn Damien Rice spila.....hann er massa öflugur mar !
Well svo var það fös......fór á smá skrall með staffinu í Technosport......við krössuðum á Póstbarnum (snilldarstaður ;-) þar sem við fengum okkur að borra og svo var bara skellt í sig nokkrum........þaðan var svo farið á Celtic eins og venjulega......en mar var alveg svartur þetta kvöld =)
Svo má eiginlega segja að helgin hafi verið róleg það sem eftir lifði.....bara læra og svona.....En svo er enn ein bloggsíðan komin í loftið......tjékkið á'enni glingló.....hún er komin með blogg ;-) Allavega.....velkomin á netið ;-) Well er ekki best að halda bara áfram að rigga.....gerist ekki öðruvísi ;-)