| Hver er ég? | Bloggið | Myndir | Vísuhornið | Ýmislegt |
.:Lýðs:. !

fimmtudagurinn 12. maí 2005
Well.....nú er það bara morgundagurinn sem er eftir......þ.e. við eigum núna aðeins eftir að binda inn skýrslur og þá er búið að loka verkefninu ;-) Við höfum alveg til kl 17 á morgun til að ganga frá þessu og við ættum að verða búnir fyrir þann tíma ! Úffff damn verður fine að losna við þetta mar.......talandi um fine......hvar er Peterinn ?

Hauu......hver man ekki eftir froskinum sem líkti eftir formúlubíl hérna fyrir ekki svo löngu......hérna er búið að endurgera þennan gaur og það inn í lagið um Axel Foley.....sem Eddie Murphy lék hérna um árið.......!? Well tjékkið bara á þessu hér !

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 12. maí 2005 kl.: 23:49 Athugasemdir (6)

miðvikudagurinn 11. maí 2005
Úúúúíííí......well mar.....nú erum við kjellarnir að verða búnir með lokaverkefnið ;-) Úfff þetta er búið að vera törn en þetta er allt að koma ! Við eigum að skila á föstudaginn kl 17 og núna erum við bara að klára skýrslur og handbækur.....líklegast tilbúnar.....og svo er það bara að færa þetta yfir á þróunarumhverfi VÍS og framkvæma prófanir ;-) Þannig að þetta er að klárast......svo verður líklegast smá skrall á fös......skoðum það allavega ;-)

Heiii mar hehe......ég er búinn að setja bíldrusluna á sölu.......hann er auglýstur hjá bílasölunni Bílahöllin sem er uppi á Höfða........hér eru myndir af honum.....allt í legi með það......en tjékkið á neðstu myndinni.......ekki verra að vera með Benz innvið á Peugeout 206 ! Snilldin Einar =)

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 11. maí 2005 kl.: 15:18 Athugasemdir (6)

þriðjudagurinn 3. maí 2005
Hohohoho......loksins kom að því að eikkað lið lækkaði rostann í þessu sjálfumglaða Chelskí liði......það voru snillingarnir í Liverpool sem það gerðu rétt í þessu......seinni leik Meistaradeildar Evrópu var að ljúka og Liverpool hafði þetta 1-0......glæsi mar.....það þýðir aðeins einn titill til Chelskí í ár =) haha......snilld !

Well núna er það bara að halda áfram að rigga......en mar lætur allavega nokkra tengla fylgja hérna......

Hér er loka atriðið úr myndinni Seven (Brad Pitt o.fl) en leikið af brúðum =)

Þetta íshokkí mark er alveg ótrúlegt.....veit ekki alveg hvernig þetta er hægt...!?

Snilldar dansatriði......tjékkið á gaurnum/aðdáandanum við hliðina á tækinu =) hehe

well........l8er =)
Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 3. maí 2005 kl.: 20:49 Athugasemdir (6)

laugardagurinn 30. apríl 2005
Ussi.......laugardagskvöld og mar er bara á fullu að rigga ennþá......við kútzarnir í verkefninu höfum verið að framkvæma prófanir á kerfinu okkar og það hefur gengið fokkalega ;-)

En mar hefur nú stolist til að gera sér glaðan dag líka.....fórum í bíó í gær.....sáum þar fína ræmu sem heitir Sahara.......þetta var bara nokk góð ræma....það er alveg vel þess virði að sjá hana á breiðtjaldi....mar fer ekki í bíó nema að myndin sé þess virði.....mig hafði svo sem grunað að þetta væri fín mynd og það stóðst alveg.....þannig að ég mæli alveg með henni........en allavega.......best að gera eikkað af viti........s1a !

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 30. apríl 2005 kl.: 21:46 Athugasemdir (6)

fimmtudagurinn 28. maí
Alú alí......lífið er undursamlegt þessa dagana......ekki hægt að segja annað =) Allt vitlaust að gera en það er samt bara stemmning......er einmitt að búa mig undir að fara heim.......komið ágætt í dag ;-) En allavega eins og staðan er í dag er verið að undirbúa prófanir á kerfinu okkar......það ætti að verða á mánudaginn......vonum bara að það gangi upp ! Það væri náttlega Einar (snilldin) ef það gengur upp........well best að fara koma sér heim........well hér er ein mynd sem enginn vill kannast við.........kannski ekki skrýtið =)

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 28. apríl 2005 kl.: 19:08 Athugasemdir (16)

mánudagurinn 25. apríl 2005
Þetta er nú meira fjörið mar......mér finnst eins og það sé svo langt síðan ég bloggaði......en málið er eiginlega þannig að dagarnir eru að lengjast nú þegar verkefnið er í fyrirúmi........en þetta er engu að síður stemmning.......búið að vera nóg að gera.....vorum líka að funda með verðandi notendum að kerfinu í VÍS í dag.....það gekk bara vel og við erum on track ennþá ;-) Það er það sem skiptir máli í þessu......!

En nú eru margir að velta fyrir sér hver það verður sem kaupir Landssímann......margir hafa verið nefndir þ.a.m Forstjóri VÍS, Finnur Ingólfs.......en þetta kemur allt í ljós í sumar.......spurning samt hvort að nýir eigendur að Landssímanum taki uppá að selja svona síma ??? Spurning =)

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 25. apríl 2005 kl.: 21:36 Athugasemdir (38)

sunnudagurinn 24. apríl 2005
Well well well......eða brunnur brunnur brunnur......úff þetta var ódýrt.......nú er prófum lokið og lokaverkefni tekið við.....það verður því nóg að gera þangað til því verður skilað.......það verður 13. maí......svo er sýning á bilinu 17. - 20. mái......en þetta gengur engu að síður fokkalega hjá okkur köllunum.......hef ekki trú á öðru en við eigum eftir að massa þetta verkefni ;-)

En já það var audda próflokadjamm og mar var alveg svartur sko......hérna eru einhverjar myndir til að skoða ! En best að halda áfram að rigga ;-)

Innlegg eftir Sigurjón Lýðsson þann 24. apríl 2005 kl.: 16:03 Athugasemdir (41)

fimmtudagurinn 21. apríl 2005
Hmmmmm......síðasta prófið á morgun.......og það verður skrall í kjölfarið.......man.....þetta verður megnað...það er próf í TSAM......aka Tölvusamskipti.....sem þýðir eiginlega að convergera BIOS-inn eftir að hafa spoofað leiðarsmíðina =)


En mar verður að halda áfram að massa þetta námsefni.....svo verður það bara öl og allir hinir vinir hans á morgun ;-) Það verður Vísó í Streng.....þó ekki G.......en svo er partý á eftir í Húnabúð......úfff þetta verður blautt ;-)

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 21. apríl 2005 kl.: 21:05 Athugasemdir (8)

þriðjudagurinn 19. apríl 2005
Hoho......mar er alltaf eikkað að skoða......annars á ég reyndar að vera læra fyrir próf.....en mar þarf stundum að taka sér smá pásu ;-) En þar sem mar hefur alltaf áhuga á byssum og veiði þá get ég ekki annað en sýnt þetta vídjó......hehe......þessir Kanar eru alveg magnaðir.....peyjinn þessi getur ekki verið meira en 5-6 ára.....en er samt að skjóta úr haglabyssu :-/ En þetta er samt fyndið =)

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 19. apríl 2005 kl.: 09:47 Athugasemdir (16)

þriðjudagurinn 19. apríl 2005
Úúúúúíííí.......var bara að koma frá Eyjum mar.....var í fermingu um helgina......ussi bussi.....þetta var hrein snilld.....systir mín var algjör hetja þennan dag og þetta gekk allt svakalega vel........og ekki má gleyma að minnast á matinn sem var í boði......úfff ég held ég sé ennþá saddur bara =) En allavega......skondið með þessar fermingar í dag.....mar heyrir alltaf í eldra fólkisegja....ekki fékk mar svona gjafir þegar mar fermdist....ég fékk fölskutennurnar hans afa.....eða ég fékk túkall....eða ég fékk nýja sauðskinnskó.....sem þóttu flottir á þeim tíma......en annars....helgin var mögnuð og mar er alveg sáttur við lífið og tilveruna....!

Nú er bara að bretta upp ermar og halda áfram að læra....það er próf á morgun.......mmmm....skattskil einstaklinga er það heillin......hehe.....það gengur svo sem ágætlega að massa það........við sjáum til ;-) Auu já til lukku til Buffy......varð 25 ára um helgina......verst að hafa misst af þvi :-( En mar getur ekki fengið að gera allt sem mar vill =) Ahhh svo er annað ammali á morgun........Bóbó bróðir verður 31 þá =) Vííí alltaf nóg um að vera =)

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 19. apríl 2005 kl.: 09:43 Athugasemdir (17)

fimmtudagurinn 14. apríl 2005
Maður lifandi......mar er að fara til Eyja á morgun mar.....vííí......snilldin Einar.....hlakka ekki lítið til.....er ekki búinn að fara á suðurhafseyjuna góðu síðan um jólin.......en það er náttlega ferming í vændum......systir vor er að fermast !

Heiii......þeir þarna úti sem nota MSN.....tjékkið á nýju útgáfunni......hún var að koma í gagnið.......n.b. þetta er ekki BETA þannig að þessi ætti að virka ;-)

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 14. apríl 2005 kl.: 10:26 Athugasemdir (7)

miðvikudagurinn 13. apríl 2005
Pjúff.....þá er fyrsta prófinu lokið......held að þetta hafi gengið fokkalega......sko venjulega líður mér alltaf illa eftir stærðfræðina en núna er önnur og ný tilfinning......hehe vona bara að það sé ekki bara falsvonir sem ég er að finna =) En þetta kemur bara í ljós.....væri sáttur ef ég fengi 7.......en annars er fyrir mig nóg að ná (þ.e. bara í stæ :-)

En þá er bara að undirbúa næsta próf......Tölvusamskipti er það heillin......DNS......DHCP.......TCP/IP.......gott ef ekki SÁÁ bara líka.......be aware......hér kem ég =)

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 13. apríl 2005 kl.: 15:46 Athugasemdir (18)

mánudagurinn 11. apríl 2005
Próf og aftur próf......nú er mar að undirbúa sig fyrir próf í Strjálli stæ......þetta gengur svo sem ágætlega.....er búinn að vera að fara yfir fyrirlestra og dæmatíma.....næst er það gömul próf......held að það sé ágætt að reikna þau !

Hmmmm svo má nú kannski minnast á ammalisbarn dagsins sem er mágkona mín hún Sigrún.....hún á ammali í dag.....til hamingju með það ;-)

Ekki má heldur gleyma því sem er á næstunni mar.....það er ferð til Eyja......er að fara þangað á föstudaginn......það er sko verið að fara að ferma systur mína á sunnudaginn........man......hlakka ekki lítið til......þarna verður allt liðið......bræður mínir, systir, mútta, Héðinn Konn og fleiri......já ekki má gleyma að mar gistir hjá tengdó.....í Engey ;-) Þetta verður snilldin ein ! En jæja......best að halda áfram.......verð að gera eikkað meira í þessu

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 11. apríl 2005 kl.: 21:26 Athugasemdir (21)

laugardagurinn 9. apríl 2005
Mögnunin er til staðar í þessu lífi.......mar er búinn að liggja í einhverju flensu rugli en það er ýmislegt gert af mínum nánustu að hressa kallinn við.......Ómar frændi var að senda mér þetta snilldar vídjó......hehe.....það er ekki hægt að segja annað en að þetta hressi mann svoldið við.......þessi tjelling er náttlega bara talent af guðsnáð......ég er viss um að hún verði gerð að dýrlingi á undan Páfanum =)

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 9. apríl 2005 kl.: 19:37 Athugasemdir (21)

laugardagurinn 9. apríl 2005
Damn.....nú er mar bara búinn að liggja í flensu rugli í tvo daga......en mar er eikkað aðeins að hressast.......en það er annars nóg um að vera.....prófin að skella á......er einmitt að reyna að koma mér í gírinn....well þetta kemur allt mar ;-) Fyrsta prófið er sem sagt á miðvikudaginn.....það er Strjál stærðfræði.....mmm.....úff....vonum það besta bara =) Svo verður það næst Skattskil einstaklinga.....en það verður 20. og mar endar á Tölvusamskiptum sem er 22. apríl.......en mar fer næstu helgi til Eyja......en það á að fara ferma systur mína þann 17. apríl........þannig að það er nóg um að vera =)

Well best að gera eikkað.....!

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 9. apríl 2005 kl.: 13:39 Athugasemdir (22)

sunnudagurinn 3. apríl 2005
Well......nú er þessi annars fokkalega góða helgi á enda.....mar var náttlega á árshátíð á fös.....það var árshátíð Technosport og hún heppnaðist alvega massa vel......góður matur, góð mæting og bara snilldar árshátíð ! Mar var eikkað að djamma til svona 5 eða aikkað.....svo var bara farið heim.......laugardagurinn var svo bara í rólegheitunum.....var aðeins að vinna að lokaverkefninu.....en svo var líka komið að namminu =) En ég var búinn að vera laus við nammi, gos, kökur eða annan sykur í 4 vikur.......enda voru þá farin 4 kg af kjellinum ;-) En mar er bara rétt 92,5 kg í dag......well það er nóg eftir ennþá =) En eftir að hafa leitað að eina góða namminu í 4 búðum fannst það loksins.......en það var í 10-11 í lágmúla sem Maribou súkkulaðið var til........mmmmmm snilldar súkkulaði =) En ég held að ég haldi mig bara við þetta sykurbindindi.......líður mun betur án sykur........en annars......það er kominn sunnudagur og mar er búinn að fara í ræktina......ná af sér súkkulaðinu =) Og við erum að fara í matarboð til Leiknis og Tinnu ;-) Hlakka alveg fokkalega til.....hef heyrt vel af matargerðinni þarna........slurp =) En allavega......ég er farinn að græja mig fyrir matinn ;-)

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 3. apríl 2005 kl.: 18:23 Athugasemdir (57)

föstudagurinn 1. apríll 2005
Ég hef ákveðið að fara í kynskipta aðgerð.....er það ekki vissara ?

Hauuu svo er mar að fara á árshátíð hjá Techno í kvöld......það verður snilld......ég nebblega tók eina "vakningu" í morgun.........hehehe og það á sjálfann foringjann......Leikni.......þetta var tær snilld.......og allt sett á vídjó =) hehe megnað.......svo verður þetta sýnt í kvöld á árshátíðinni ;-) Well ég segi meira frá þessu s1a !

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 1. apríl 2005 kl.: 17:01 Athugasemdir (50)

þriðjudagurinn 29. mars 2005
Úffff.....þetta var nú meiri helgin.......búið að vera vinna í lokaverkefni og ég veit ekki hvað......var á Selfossi á Páskadag......var boðið í mat hjá Bóbó bróðir......snilld......held ég sé ennþá saddur eftir það =) Svo var brunað í bæinn og við bræðurnir skelltum okkur á Gaukinn......það var audda stórbandið Jet Black Joe að spila.....maaaannn þeir klikka ekki mar.......voru magnaðir !
Svo var vaknað snemma í gærmorgun til að sækja þær Þórey og Kollu í Þ'orlákshöfn en þær lentu um 11 leitið......og það var eiginlega bara sofið eftir það......æ wonder Wæ ?!? En þá er það bara hversdagsleikinn sem tekur við núna.....það er svo sem ekkert verra =)

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 29. mars 2005 kl.: 09:00 Athugasemdir (19)

flöskudagurinn langi
Hmmm flöskudagurinn genginn í garð......mér finnst hann bara ekkert langur !

En djöfulli er mar búinn að lenda í mörgu síðasta sólarhring.........var á flakki meira og minna í gær.....fór m.a. 2 ferðir í Þorlákshöfn og sótti meira að segja heilt rúm þangað......Gamli var með mér og við tróðum rúminu í bílinn hans........það var alveg skíta veður æi gær en það fékk ekki á okkur feðga........svo fórum við á Selfoss til Bóbó bróður í mat......snilld......eftir það var farið í borg óttans aftur.......en svo hrundi pústið undan mínum bíl.......hehe og ég þurfti að bakka honum á verkstæði.......heheheh.....það var magnað.......well svona er þetta stundum =)

Jæja ég er farinn heim......!

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 25. mars 2005 kl.: 18:54 Athugasemdir (18)

þriðjudagurinn 22. marz 2005
Haaaaaaaannnn á ammali í da.....hann á ammali í da......haaaannn á aammmmmmali hann Ófeigur bróðir minn........hann á ammali í daaaagggggg =)

Til hamingju með daginn kallinn ;-)

Well páskar á næstu grösum.......hmmmm alltaf jafn gaman......mér skylst að ég sé að fara borða hjá Pápa á páskadag.......ussssi busssi......það verður snilldin Einar !

En hauuuu við verðum að vera með í þessu.......Jón Arnór Stefánsson er tilnefndur í Stjörnuleik í Evrópska körfuboltanum........hann er í 3ja sæti eins og er......endilega kjása kappann svo hann komist að ;-)

En o well.....ég er farinn að gera ekkert......páskar here we come !

Innlegg eftir Sigurjón Lýðs þann 22. mars 2005 kl.: 17:07 Athugasemdir (14)

Page:  << Prev  1  2  3  4  5  6  7  8  9  10 11  12  13  14  15  16  17  18  19  20  21  22  23  Next >>


Powered by Web Wiz Journal version 1.0
Copyright ©2001-2002 Web Wiz Guide