Florída og ég veit ekki hvað ! Það vill svo skemmtilega til að ég er að fara, ásamt konunni minni, systur og móður, til Florída í mars ! Málið er að systir mín var dregin út úr Vildarbarna ferðasjóðnum og hún vill endilega fara til Disney =) Hún valdi reyndar fyrst að fara sjá Liverpool spila en hætti svo við um jólin. Þetta verður án efa skemmtilegra og eftirminnilegra en það segja þeir sem áður hafa farið.
Maðurinn á fjésbókinni Það má með sanni segja að maður hafi verið síður en svo öflugur í blogginu en það er nú bara þannig að þegar maður er í svona virku samfélagi sem Fjésbókin er þá gerist það ekki þarft að blogga mikið á meðan.....en ég þarf að fara taka vefinn minn í gegn og stefni á að blogga eitthvað áfram.....sjáum bara hvað setur ;-)
Hmmmm árið senn á enda ! Úff árið er varla hafið þegar því er svo einfaldlega lokið !? En svona er þetta víst....þá er bara um að gera að njóta þess til hins ítrasta.
Ívar Bergs bikarmeistari í vaxtarrækt 2008 Það hefur margt gerst síðan ég bloggaði síðast en eitt af því er að vinur minn Ívar Bergs varð íslandsmeistari í vaxtarrækt 2008 ! Keppendur voru 4 og þar mátti m.a. finna Sigga Gests sem hefur unnið margt á sínum laaanga ferli en hann átti ekki séns í bakarann =) Frómt frá að segja þá var Ívar hrikalegur og rúllaði þessu hreinlega upp.
Sjá kallinn maður lifandi !
Eyjar um jólin Well það eru aðeins 8 dagar í að við hjónin smellum okkur heim yfir hátíðirnar en við eigum far með skipinu föstudaginn 19. des. Við verðum svo reyndar á höfuðborgarsvæðinu yfir áramótin en tíminn í Eyjum verður vel nýttur ;-)
Á leiðinni á Anfield Jamms svona er þetta nú stundum....ég er nú ekki þekktur fyrir mikinn áhuga á hinu fornfræga Liverpool liði en það vill svo til að ég er á leiðinni á leik með liðinu engu að síður.
Vildarbörn drógu út Dagmar systir Fyrsta vetrardag, þann 25. október sl. var afhent úr sjóði Vildarbarna Icelandair og þar á meðal var Dagmar Ósk systir. Ég og Þórey erum skráð sem fylgdarmenn og svo er mamma náttlega með vegna stöðu sinnar =) Dagmar vill ólm fara á leik með Liverpool og þá er bara að smella sér með. Það er víst til margt verra í heiminum held ég.
Jólin eða hvað ? Er ekki svo að jólin eru á næsta leiti....eða er maður kannski heldur fljótur á sér með það hér !? Hehe annars er maður bara nokkuð góður þessa dagana.
Allt að gerast.....! Jamms eins og flestir hafa líklega tekið eftir þá hefur ríkið keypt meirihluta (75%) í Glitni. Þetta vekur margar spurningar....hvernig verður með maraþonið t.d. ? Verður það þá Reykjavikur maraþon ríkisins eða BSRB kannski ?
Eitt og annað Já það virðist allt ganga út á neikvæða umfjöllun í fjölmiðlum þessa dagana en ég nenni ekki að taka undir það....fyrir utan smá grín hér að ofan með Glitni =) En ég er allavega agalega spenntur, enda að fara til Munchen í lok okt. En þá er það námskeið sem ég þarf að sitja ! Hmmm ekki slæmt á sama tíma og októberfest er í gangi ;-)
Svo fyrst maður er byrjaður...þá fer ég á ráðstefnu í Barcelona í byrjun nóvember þannig að það er margt spennani framundan hjá mér =) Well látum það duga í bili.
Well svona er þetta stundum....spurning hvort maður fari ekki loksins að smíða eigið vefkerfi svona til að losna undan svona vitleysingjum =) En o well....kannski er þetta blogg svona rosalega töff að það þarf að skemma það =)
Á þjóðhátíð.....! Úfff það er heldur betur að styttast í þjóðhátíð !!!! Rétt rúm vika! Undirbúningur er í öndvegi þessa dagana....ég er að garfa í gítarbók til að vera með í tjaldinu og það gengur alveg fine. Kominn tími á að ég spili eitthvað sjálfur í tjaldinu =) Ætli marr verði ekki með einhver 40-50 lög sem allir ættu að þekkja, þá ætlar Frikki Stef vinur minn að koma í tjaldið og spila. Já og Ómar frændi verður ekki langt undan.....tja eða Tanni =) Nóg fjör verður í tjaldinu okkar í ár ;-) Engin spurning....bara gaman.
Myndir..... Var að leita af myndum frá fyrri þjóðhátíðum áðan og fann þá þetta fína videó á flakkaranum. Við Gústi tengdó fórum útí Elliðaey eftir þjóðhátíð 2006 og veiddum nokkra lunda. Videóið er af því þegar G'usti fangaði 30. stykkið =) Kallinn flottur !
Alltaf eitthvað nýtt Einhvern tímann skrifaði ég um gæsirnar í garðinum hjá mér hérna í Firðinum. Á veturna koma gæsirnar mikið hingað í hverfið og það er afskaplega notalegt að heyra þær kvaka hérna fyrir utan gluggann.
Í morgun gerðist sá óvænti atburður að "nýjar" gæsir komu í garðinn......en það voru eldriborgarar í morgunleikfimi =) Haha magnað að fá bara leikfimitíma hérna fyrir utan. Að einhver skyldi efast um að mér sé ekki skemmt í vinnunni hérna heima þá veit ég ekki hvað. Smellti audda mynd af genginu og tók stutt videó líka....enda gerist þetta ekki á hverjum degi =)
Kongurinn og drottningin ! Þá er maður mættur til leiks. Nóg hefur verið að gera undanfarið og því hefur maður verið latur við að blogga. En það er svo margt um að vera, þannig að kannski verður maður duglegur núna......!?
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu Váá....það er ekki annað hægt að segja en að maður sé stoltur af stelpunum í íslenska landsliðinu okkar. Þær hafa farið á kostum í undankeppni EM 2009 og eiga góða möguleika á að komast þangað....fyrst íslenskra knattspyrnu A-landsliða !!!!
Fagnið hennar Margrétar Láru - sleppa pysju
Þá hefur engin spilað betur en Margrét Lára Viðarsdóttir en hún hefur skorað 42 mörk í 43 landsleikjum !? Halló.....alveg mögnuð stelpan. Hún er náttlega Eyjapæja og varð maður stoltur í gær þegar hún tileinkaði Eyjamönnum mörkin tvö sem hún skoraði. Fagnið var að "sleppa" pysju =) Haha bara flott...hafði ekki séð þannig áður. Endilega kíkið á vefinn hennar og Tryggingamiðstöðvarinnar.....bara töff.
Í lífsins ólgusjó Pabbi gaf nýlega út diskinn Í lífsins ólgusjó og hefur selt gripinn skruggu vel. Nú þegar eru seld einhver 600 eintök af 1000 sem hann fékk. Þannig að greifin þarf að fara taka meira, fyrst salan er svona góð.
Ég fékk að vera með að þessu sinni þ.e. syng fyrsta lagið á disknum =) Lagið var víst spilað á Rás 2 í gærmorgun ;-) Bara gaman að þessu.
Framundan........ Það styttist í goslokahátíðina heima í Eyjum....spurning hvort maður fari ekki.....verður án efa margt um manninn og mikið fjör. Ég á allavega pantað....sjáum hvað setur. Svo á pabbi líka ammali.....á fimmtudaginn n.k. en kallinn verður 60 ára.....hmmm....gaman.
Gott ef ekki...?! Æi mér fannst nú alveg vel þess virði að henda inn glænýju myndbandi frá Leoncie !!!! Þetta er myndband við lagið þríkantur (e. Threesome) og greinilegt að gæðin eru í fyrirúmi......hmmm :-)
En já þetta myndband talar kannski bara fyrir sig sjálft.
Eyjar um helgina Jamms við hjónin ætlum að skella okkur á capri norðursins og vera fram á þriðjudag ;-) Bara sumarfrí ef svo má segja. Enda kominn tími á smá afslöppun. Þannig að vinir og velunnarar, ég sé ykkur í Eyjum =)
Já komiði sæl og blessuð.... Well ég sé að spaces myndaalbúmið var ekki að gera sig og því er það næst myspace myndaalbúmið =) Endar með því að ég skrifa þetta sjálfur bara ;-) En Ómar frændi tók nokkrar myndir á Íslandsmótinu í Boccia í ár og ég smellti þeim á Myspace-ið mitt.
Nú er bara spurning hvort þetta virki !!! Annars er bara að kíkja á Myspace-ið mitt og skoða myndirnar ;-)
Meistaradeildin....! Jamms það er mikið um að vera næstu dagana. Fyrst er það úrslit meistaradeildar evrópu sem fram fer í Moskvu á miðvikudaginn. En þar mætast tvö sterkustu lið evrópu þetta árið þ.e. MAN-UTD og Chelsea ! Það er von á mögnuðum leik enda bæði lið þekkt fyrir skemmtilegan bolta
Helgin framundan Svo er það helgin en okkur hefur verið boðið í tvær útskriftir. Fyrst er það Einar Karl fósturbróðir minn sem er að útskrifast sem kjötiðnaðarmaður! Æðislegt að peyjinn sé búinn með þetta....til lukku með það kall ! Svo er það engin önnur en Inga Hrund en hún er að klára stúdentspróf frá FG. Það er nú ekki langt síðan að þessi stelpa var að skella hurðum á mig þegar ég var að "stela" frænku hennar hérna um árið.....en þetta líður bara hratt =) En allavega til lukku Inga með áfangann ;-)
Margt um að vera! Já það má með sanni segja að mikið hefur verið við að vera undanfarna daga og vikur. Fyrst ber að nefna skírn litlu prinsessunnar þeirra Esterar og Jónasar vina okkar en hún fékk nafnið Magdalena =) Kannski ekki algengasta nafnið en fallegt er það engu að síður.
Verð að gera smá tilraun með spaces myndaalbúmið =) Sjáum hvort það virki.
Helgin framundan... Það er víst Hvítasunnuhelgi framundan sem þýðit bara eitt.....frí á mánudag !!! Víííí ! Æi það er alltaf gaman að fá aðeins lengri helgi....svona einu sinni og einu sinni.
Hmmmmm má víst ekki gleyma því að mínir menn í MAN UTD spila sinn síðasta leik í enskaboltanum og ef sigur vinnst þá erum við englandsmeistarar annað árið í röð ! Það er ekkert leiðinlegt sko ! Þar að auki eigum við möguleika á evrópumestara titlinum líka þar sem við erum komnir í úrslitaleikinn ;-) Þannig að það er allt að gerast á þeim vígstöðum.
En annars.....ef myndadæmið virkar fínt þá koma fleiri myndir um helgina !
Gas, gas, gas ! Já eins og kannski svo margir hafa tekið eftir, þá hafa mótmæli verið tíð hér á höfuðborgarsvæðinu. Sennilega er það ferskast í minni mótmælin sem framfóru á Suðurlandsvegi þar sen gripið var til handtöku lögreglumanna á óeirðaseggjum og margt spaugilegt sem kom upp. Þó sér í lagi svona eftir á að hyggja því ég er næstum viss að stemmingin hafi verið rafmögnuð þarna. Eitt atvik hefur gengið um á netinu og verið fjallað um í fjölmiðlum en það er þegar sérsveitarmaður gólar af mikilli ákefð GAS, GAS, GAS rétt áður en hann lætur piparúðann tala. En einhver náði upptöku af viðburðinum og setti á netið ! Endilega kíkið á það =)
Skrall og svona Annars var nú tekið á smá öl um helgina....kominn tími á það kannski. Það var haldið smá teiti hérna heima. fyrir einn vinnufélaga Þóreyjar sem er að hætta. Þá var bara um að gera að skála =)
Sumarið er tíminn Ég get svo svarið fyrir það að sumarið er alveg að detta inn ! Þegar maður er farinn að vakna við flugur um helgar þá er nokkuð víst að sumarið er ekki langt undan. Það er alveg ljóst. Þetta er allt að koma =)
Jet Black Joe Usss svo eru það tónleikarnir með Jet Black Joe sem verða þann 16. maí í Höllinni! Ég get varla beðið eftir þeim.....verða án efa magnaðir ;-) Gospel kórinn verður með þeim á sviðinu og svo gesta flytjendur eins og Hreimur úr Landi og sonum, Sigga Guðna og fleiri ! Bara spennandi.
Veiði, veiði, veiði...! Já það var sko farið í veiðferð um liðna helgi (kryppa :-) En við bræður, Steini og Finnbogi fórum túr með stórvini pabba, honum Finnboga Dalla. Sá á magnaða fleytu sem gengur vel í svartfuglatúra sem þessa. Við fórum út snemma dags á laugardaginn og gáfum þessu eina 5-6 klukkutíma. En þess má geta að rennt var einnig fyrir fisk og því fór einhver tími í það. Fengum m.a. þorsk, steinbít, karfa og hraunpussu eða konupung að sögn viðstaddra =)
Finnbogi kann að hantera fuglinn =)
Frágangur og framhald Við fengum sem sagt einhverja 40 fugla sem nýtist í nokkrar máltíðir en mest megnis var þetta Langvía sem við vorum að fá. Eins og sést á myndbandinu hér að ofan, var gert að fengnum að lokinni veiðiferð og gat ég ekki annað en tekið vídeó af Finnboga við aðfarirnar. Hann endar þetta svo skemmtilega =)
Longtæmnósí....! Já komiðið sæl og blessuð.....nú hefur margt og mikið gerst síðan síðast. Þar á meðal páskaferð til Eyja, sem heppnaðist einkar vel. Ófeigur bróðir átti ammali þá helgi og ég veit ekki hvað. Þá var sundmót ekki alls fyrir löngu hjá Íþróttafélaginu Ægir og gekk þeim bara þokkalega vel á því móti. Svo var sl. helgi hladið hið árlega íslandsmót í Boccia.....MAGNAÐ =)
Íslandsmótið í Boccia 2008 Ægir mætti með 3 lið í ár og gekk liðunum misjafnlega vel. A liðið stóð sigg einna best en þau kepptu í afar sterkum riðli í 1. deild. Liðið er skipað þeim Ólafi Jónssyni, Guðna Davíð Stefánssyni og Ylfu Óladóttur. Liðið vann 2 leiki af 4, sem verður að teljast gott miðað við riðilinn sem þau lenntu í. Sem dæmi vannst sigur, í bráðabana þó, gegn liði sem hafði m.a. íslandsmeistara í einstaklingskeppni í Boccia og því ógnar sterkt lið þar á ferð. En af öllum ólöstuðum var það Ólafur Jónsson sem spilaði eins og herforingi. En liðið var reyndar allt að spila vel ;-)
Svo var þetta náttlega allt toppað með svakalegu lokahófi á sunnudeginum en í ár var það hinn eini sanni Páll Óskar sem hélt uppi stemmningu og gerði það einkar vel. Það sem magnaðast var þó, var að hann gaf án efa öllum í húsinu eiginhandaráritun og ekki var fátt um fólk á svæðinu ! Það eru held ég ekki allir sem mundu gera þetta ! Eða það held ég =)
Allavega hefur þetta staðið uppúr síðustu dagana og þá er meira spennandi framundan =)
Æðislegis frábæris =) Það gerðist víst margt meira skemmtilegt þann 13. mars annað en að Steini bróðir og Heiða frænka áttu ammali en Ester og Jónas Logi vinir okkur eignuðust prinsessu þann dag ! Megnað alveg.....bara innilega til lukku með dísina ;-)
p.s. Sigurjón er ekkert ömurlegt sem stelpunafn =)
Slappur titill Hehehe maður veður eiginlega úr einu í annað hérna....sko ég var að lesa á mbl.is um daginn og þá var þessi grein í íþróttadálkinum:
Takið eftir titilinum "Ferguson spenntur fyrir 17 ára strák"....Hmmm þetta er afar óviðeigandi titill...verður að segjast alveg eins og er ! En menn eiga þetta til.
Páskarnir í Eyjum Júmmz það er stutt í heimferð, við eigum far með Jólfinum á miðvikudagskvöld =) En það verður fjölmennt á svæðinu þ.e. Finnbogi bróðir ætlar að mæta á laugardaginn, Ómar frændi ætlar líka að mæta og svo auðvitað verða Tanni og Lóa þarna ! Þannig að stemmingin verður í fyrirrúmi það er alveg klárt =) Vííííí hlakka ekki lítið til.
Boccia á fimmtudaginn Úfff ég var að fá boð um að mæta á Boccia æfingu á fimmtudaginn n.k. í Eyjum með uppáhaldsliðinu mínu Íþróttafélaginu Ægir ! Ohhhh mig hlakkar alveg svakalega til að fá að prófa þetta loksins =) Víhí
Hann á AMMAL í daaa....! Hann Steini, elsti bróðir minn, á ammali í da en kappinn er þrjátíu og píííííííííííp ára gamall =) Nei nei hann er 39 ára í dag. Ég vill hér með senda honum kveðju og vonandi mega ammalisdagarnir vera sem flestir héðan af ;-)
Nipple song! Þetta einstaka Indverska vídeó fékk ég sent frá Steina bróðir í fyrradag.....bara fyndið.....hvet alla til að kíkja á það ;-)
Hún á ammal í da.... Hún Heiða frænka mín á einnig ammal í dag.....sendi henni hér með kveðju ;-)
Páskar@Eyjar.is ! Jamms, það er engin spurning....við ætlum að smella okkur til Eyja um páskana en m.a. á Ófeigur bróðir ammali á laugardeginum (stutta) þ.e. eftir föstudaginn langa !? Well allavega hef ég af því heyrt að SSSól verði jafnvel með ball !!!! Hmmm ekki verra =)
Ekkert land fyrir ellismelli....MINN RASS! Jamms það þarf ekki að hafa neinar sérstakar málalengingar með bíóferð gærdagsins en við hjónin fórum að sjá hina margrómuðu No country for old men. Sko ég skal alveg kaupa óskarsverðlaun fyrir karleikara í aukahlutverki en Javier Bardem er flottur í hrottahlutverkinu en ég get ekki sagt það sama um restina á þessari blessuðu mynd ! Ég er eiginlega enn að reyna finna ástæðu til þess að líka eitthvað við þessa mynd.
Þessi mynd fær aðeins 1 drulluköku í einkun
Páskar framundan En það er engu að síður margt framundan en ég er að verða svo spenntur fyrir því að fara heim til Eyja....get svo svarið fyrir það! Þetta verður án efa megnað.
Gvendur og lína !? Nú er ég bara búinn að vera svo svakalega busy síðustu daga að það hálfa væri nóg ! En það eru engu að síður að glæðast í þessu ;-) Engu að síður er búið að þvæla í bíó tvisvar, út að borða í Perlunni (á konudaginn audda ;-) og parketleggja alla íbúðina =)
Tveir góðir, Gústi tengdó og Bóbó bróðir
Gústi Polzkíj og dóttir hans Það má með sanni segja að tengdafaðir minn er einn öflugasti Pólverjinn sem ég hef kynnst ! Hann sá um að græja parket á öll gólf hérna sl. helgi =) Dóttir hans aðstoðaði með stakri prýði og sjálfur sá ég um að stýra verkinu =) Hahaha og að færa þeim kaffi.
Fússball spielen Það var löngu kominn tími til að taka eina létta fótboltaæfingu í gær.....Tanni frændi dobblaði mig með á æfingu hjá Dufþak, án efa besta liðsins í utandeildinni. Það var fín mæting og magnað að hitta þessa peyja aftur....bara gaman. Við hófum leik kl 22 og hættum ekki fyrr en klukkan var rétt að detta í miðnótt!!!? Rugludallar =) Ég sofnaði svo ekki fyrr en kl 3 í nótt, sökum adrenalíns eftir boltann =) En gaman var þetta engu að síður.
Úff.....en það er eins og ég segi nóg um að vera á næstu vikum s.s. paskar í Eyjum, ferming hjá Ásbirni frænda mínum og ég veit ekki hvað !
Megnaðir tónleikar! Það verður að segjast eins og er að tónleikarnir, sem haldnir voru til styrktar Steina og fjölskyldu, hafi tekist með eindæmum vel. Mætingin var góð, c.a. 250 manns, hljómsveitirnar flottar og þá sér í lagi fannst mér Cliff Clavin og Hoffmann skara framúr. En mér skylst að það hafi safnast hátt í 300 þúsund kjell !!!! Magnað alveg hreint.
Óli Guðmunds og félagar hans í Hoffmann fóru á kostum
Helgin framundan Ég er nokkuð viss um að það verði eiginlega bara tjillað þessa helgina. Kannski að marr fari eina salíbunu í strætó eða svo ?!
Styrktartónleikar á Gauknum í kvöld ! Jamms það eru haldnir verðugir styktartónleikar á Gauknum í kvöld, en þeir eru til styrktar Steina Steina félaga okkar úr Eyjum. En Steini er með sjúkdóm er nefnist ósæðarflysjun ! Það eru Óli Guðmunds og félagar í Hoffmann sem standa fyrir þessum tónleikum. Ásamt þeim koma fram sveitirnar Benny Crespós gang, Æla og Hooker swing =) Megnað alveg hreint. Þannig að um að gera að mæta á svæðið, styrkja gott málefni og hlusta á eðal tóna.
Bóbó makker !!!! Nú eru heldur betur hjólin farin að snúast en Bóbó bróðir er farinn að mæta með mér í ræktina =) Víííí það hefur lengi verið draumur minn að æfa með honum og nú er það að gerast ;-) Verst er að ég vefð án efa skilinn eftir í ryki áður en yfir líkur, þvílíkur er krafturinn þarna =) Hahaha en gaman að þessu.
Valentínusardagurinn á morgun Gaman væri að vita hvað fólki finnst um að halda Valentínusardaginn hátíðlegann en í gegnum tíðina hef ég fegnið mjög mismunandi skoðanir á því. Hvað finnst ykkur ? Ég er sjálfur alveg sáttur við þetta og skammast ekkert fyrir að segja það og skrifa......B O B A =)